Alþýðumaðurinn - 12.05.1966, Blaðsíða 4
Ritstjóri: SIGUBJÓN JÓHANNSSON (áb.).
Útgeíandi: AtÞÝÐUFLOKKSFÉLAG AKUR-
EYRAR. — Afgreiðsla og auglýsingar:
Strandgötu 9/ II. hæð, sími (96)11399. —
Prentverk Odds Björnssonar h.f., Akureyri
ALÞYÐUMAÐURINN
11111111111111111111111111111111111111111111111111111
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
GLEÐILEG VIÐURKENNING - |
EN ÞVÍ MIÐUR RÖNG ÁLYKTUN
l/'ERKAMAÐURINN, málgagn kommúnista hér í |
* bæ, sem nú kalla sig Alþýðubandalagsmenn, kveð- i
ur Jón Ingimarsson, formann Iðju, félags iðnverka- §
fólks á Akureyri, hafa mælt eftirgreind orð í ræðu 1. |
maí síðastliðinn:
„Fyrr á árum, þegar verkalýðsstéttin gaf sér nægan i
tíma til félagslegra hugðarefna, komu oft fram góðar i
hugmyndir, er bæta mættu hið eihhæfa og snauða líf |
verkamannafjiilskyldunnar, og ég held ég megi segja 1
það, að í dag búum við við ýms hlunnindakjör, sem 1
rædd voru á félagsfundum verkalýðs- og sjómannafé- |
laga fyrir 50 til 60 árum, og síðar. í því sambandi i
mætti minna á togaravökulögin, elli- og örorkutrygg- =
ingar, lífeyristryggingar, orlofslögin, lög um verka- i
mannabústaði, slysatryggingar á sjó og landi. lög um =
vinnumiðlun, atvinnuleysistryggingar, sjúkrasjóði i
verkalýðsfélaga og margt og margt fleira. Allt þetta hef I
upphaflega til orðið fyrir samþykktir og starf verka- 1
lýðshreyfingarinnar. i
Því megum við aldrei gleyma. En hún fylgdi líka I
máli sínu fast eftir, inn á löggjafarþing þjóðarinnar." i
Í ÞEIM ÁRUM, sem Jón nefnir í framangreindum |
orðuin, hafa tveir verkalýðsflokkar átt fulltrúa á |
Alþingi: Alþýðuflokkurinn einn fram til 1931, en sið- i
an einnig KommúnistafLokkur íslands, sem nú eftir I
tvær nafnabreytingar kallar sig Alþýðubandalag. Báðir i
hafa þessir flokkar átt öflugt -fylgi innan verkalýðssam- |
takanna: Alþýðuflokksmenn og konur liafa borið uppi =
sókn sjómanna og verkakvenna til bættra lífskjara, :
stærstu verkamannafélög landsins, Dagsbrún í Reykja- i
vík og Eining á Akureyri, hafa falið kommúnistum i
lengri forystu sína. F.ngum blandast hugur um, að kjara i
baráttu sjómanna hefir verið stjórnað fram til drjúg- i
um meiri hagsbóta fyrir þá en kjarabaráttu verka- i
manna fyrir verkamenn, og verkakonur hafa fyrir at- |
fylgi Alþýðuflokksins á Alþingi fengið launajafnrétti |
kvenna við kárlmenn lögfest. Er þar mjög athyglis- i
verðu marki í hagsmunamálum kvenna náð. En lítum 1
betur á þau hagsmuna- og baráttumál íslenzkrar al- i
| þýðu, sem Jón Ingimarssön telur upp í framangreind- 1
:j um orðum hans hér, og afstöðu hinna tveggja verka- i
II lýðsflokka til þeirra:
THOGARA\TC)KULÖGIN voru sett fyrir atbeina í
Alþýðuflokksins. Kommúnistaflokkurinn þá \
ekki til hérlendis. 1
Elli- og örorkutryggingar voru Uigfestar að frum- |
k^eði Alþýðuflokksins. Kommúnistar brugðu |
ii ádeilufæti fyrir þær, meðan þeir máttu.
Lög um verkamannabústaði voru einnig sett að |
ij frumkvæði Alþýðuflokksins, og hefir framkvæmd- I
um eftir þeim víðast verið stjórnað af Alþýðuflokks- I
jj mönnum, en kommúnistar oft haft horn í síðu lag- í
anna og framkvæmdanna.
Orlofslögin voru samin og lögfest fyrir atbeina Al- |
þýðuflokksins. Engum miðaldra manni mun enn I
ij hafa gleymzt, hve margt og mikið kommúnistar i
fundu þessari lagasetningu til foráttu í upphafi og f
um mörg fyrstu starfsárin.
Li)g um almannatryggingar voru sett fyrir forgöngu |
og undirbúning Alþýðuflokksins. Kommúnistar |
l>rugðu enn ádeilufæti fyrir bæði í uphafi og lengi i
síðan. =
ij (Framhald á blaðsíðu 7.)
ÞIÐ VERÐIÐ að fyrirgefa
sveitamanninum er nú rit-
stýrir AM þótt hann sé með hug
ann úti í sveit, þá er hann upp-
hefur þennan þátt í dag. Vaðla-
heiði hnýpir hrollköld í hvítri
kápu, þá er ég festi þetta á blað
í gærkveldi. Það er slubb á B. S.
O.-plani og fallegar ungmeyjar
hrista blauta lokka í Strand-
götu, og víst má sjá að þær þrá
vorið, en eigi hreggviðri á maí-
dægri. En hvað er að þreyja vor
um miðjan maí í kaupstað. Það
sækir að vísu á mann hroll, en
koma vorsins er samt ekki lífið
allt eins og í sveitinni. í sveit-
inni stendur nú yfir sauðburður
og þeir sem hafa átt rót þar og
eiga hana enn, vita um hve erf-
ið sú glíma er, sem nú er liáð
þar. Jökull yfir öllum túnum,
allt fé á húsi, þrotlaus vinna
nær allan sólarhringinn, enginn
spyr um eftirvinnu eða nætur-
og helgidagakaup, heldur að
hinu, hvort sigur vinnist í stríð-
inu, hvort stabbinn endist þar
til þeyrinn komi, er bræði jök-
ulinn og nýtt líf vaknandi mold-
ar færi björg í bú. AM. vill ó-
hikað lýsa því yfir, að blaðið er
með norðlenzkum bændum í
baráttu þeirra og vonar sem
þeir, að sigurinn verði þeirra,
og sunnanþeyrinn fari senn að
bræða klaka af túni o gengi.
k LLMARGAR mæður liafa
hringt í AM. og látið í Ijós
áhyggjur sínar yfir börnum sín-
um, einkum unglingum, að eng-
in leið sé að koma þeim í heppi-
lega vinnu eftir að skólum ljúki
og hafa þær bent á þá stað-
reynd, að nokkur vinna sé
hraustum unglingum hollur
skóli, mun jákvæðara en iðju-
leysi. AM. veit að þetta er sann-
leikur. Skólagarðarnir eru vissu
lega virðingarverð tilraun bæj-
arfélagsins, til að skapa ungling
um holla vinnu. En þetta nær til
of fárra* og því vil AM. hvetja
þá bæjarstjórn, er kjörin verð-
ur þann 22. maí að stuðla að
enn meiri unglingavinnu á veg-
um bæjarins en nú er. Hæfileg
vinna fyrir unglinga er nauðsyn
leg og jákvæð. Iðjuleysi getur
verið jafn háskalegt á vissan
hátt og vinnuþrælkun var áður.
AÐ GEFNU tilefni vill AM
vara alla velunnara sína
við Gróusögum, er nú ganga um
bæinn og þjóna því einu að
HEYRT
SPURT
HLERAÐ
reyna að hræða fólk frá því að
kjósa A-Iistann. Jafnaðarmenn
eru ákveðnir í því að heyja sína
kosningabaráttu heiðarlega, án
slúðurs og Gróusagna, og AM
veit einnig að allir stuðnings-
menn A-listans munu heyja
orustuna af drengskap, og frá-
biðja þau vopn er eigi samrým-
ast góðum málstað, þótt þeir
séu ákveðnir í að sigra í orust-
unni. Akureyringar! Enginn
jafnaðarmaður mun fala lið-
sinni í gervi Leitis-Gróu, því
megið þið treysta. Oddviti A-
listans, Þorvaldur Jónsson, tek-
ur það einmitt fram í viðtali við
AM í dag, að jafnaðarmenn
berjist af drengskap.
FjAÐ ER svo sem vor í lofti á
vissan hátt fyrir jafnaðar-
menn á Akureyri, já, og þá einn
ig fyrir AM. Við höfum hitt
Sjálfstæðismenn að máli er spá
því hiklaust að A-listinn vinni
einn fulltrúa frá Framsókn,
einnig hafa góðir vinir í Fram-
sókn fullyrt að við vinnum
fulltrúa frá Sjálfstæðinu og
svo hittum við einn hrein-
skilin komma í gær, er sagði
það án nokkurrar tæpitungu, að
helv. kratarnir myndu vinna
sæti af kommum. Þá eru komn-
ir 4 jafnaðarmenn í bæjarstjóm.
Þetta er frá andstæðingum kom
ið og AM bíður hér með Hauk
Haraldsson fjórða mann á A-
listanum velkominn í næstu bæj
arstjórn Akureyrar. Þetta er
ekkert grín góðir Akureyringar,
heldur neyðaróp úr herbúðum
andstæðinganna.
tTlRAUSTUR og lieiðvirður
maður hefir kvartað undan
versnandi þjónustu hvað heim-
sendingar vara frá KEA snert-
ir og vegna þess að ritstjóri AM
er bæði samvinnu- og jafnaðar-
maður vill hann gjarnan koma
þessari orðsendingu á framfæri
við KEA.
ER EKKI gott að fá svolítið
grín í slyddu á vordegi. Einn
stuðningsmaður AM (vonandi
A-Iistans Iíka) sendir okkur eft-
irfarandi: Um daginn kom
strangheiðarlegur maður, er
eigi má vamm sitt vita inn í
virðulegt fyrirtæki hér í bæ og
heyrði þá talað um ágæti Sjálf-
stæðisflokksins og afrek fram-
bjóðenda hans í bæjarstjórn. Af
rekaskráin orkaði þannig á okk-
ar ágæta borgara, að það stein-
leið yfir hann og var hann flutt-
ur þungt haldinn í einkabíl
Björhs er allir þekkja upp á
sjúkrahús og fyrir ágæta að-
hlynningu Ingibjargar okkar
var hann vakinn aftur til lífs-
ins, en nótaben fyrir Framsókn
og Erling, þar fór hann. Ingi-
björg virkar svo sem á fleiri en
Erling.
¥jAÐ VAR nærri því orðið
* umslaga og pappírslaust á
Akureyri núna um síðustu
helgi. Sjálfstæðisflokkurinn tók
(Framhald á blaðsíðu 7)
AF NÆSTU GRÖSUM
GUÐSÞJÓNUSTUR í Grundar-
þingaprestakalli: Kaupangi,
sunnudaginn 15. maí kl. 2 e.h.
Grund, hvítasunnudag kl:
1.30 e.h. ferming. Munka-
þverá, annan hvítasunnudag
kl. 1.30 e.h. ferming. Ferm-
ingarbörnin eru beðin að
koma til viðtals í Barnaskól-
ann á Syðra-Laugalandi mánu
daginn 16. maí n.k. kl. 1.30 e.h.
og hafi með sér Biblíusögur,
sálmabók og bólusetningar-
vottorð.
MESSAÐ verður í Lögmanns-
hlíðarkirkju n. k. sunnudag
kl. 2 e.h. (Almennur bæna-
dagur). Sálmar: 374, 376, 378,
51, 675. B. S.
MESSAÐ verður á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu Akureyri n. k.
sunnudag kl. 5 e.h. B. S.
KIRKJAN. Messað í Akureyrar
kirkju kl. 10.30 f.h. á Sjó-
mannadaginn, sem einnig er
almennur bænadagur. Séra
Björn O. Björnsson messar.
Sálmar no. 374, 376, 125, 126,
660. P. S.
I.O.G.T. st. Ísafold-Fjallkonan
no. 1. Fundur fimmtudag 12.
maí kl. 8.30 e.h. í Alþýðuhús-
inu. Fundarefni: Vígsla ný-
liða. Kosið í fulltrúaráð. Kvik
mynd frá síðasta bræðra-
kvöldi. Kaffi. Dans. — Mætið
stundvíslega. Æ. T.
ZION. — Sunnudaginn 15. maí.
Samkoma kl. 8.30 e.h. Allir
velkomnir.
TIL hjónanna á Brekku í Svarf-
aðardal. — Afhent Jóhanni
Daníelssyni kr. 1100.00. Af-
hent Brjáni Guðjónssyni kr.
1000.00. Afhent Sigurjóni
Jóhannssyni kr. 500.00.
FRA SJÁLFSBJÖRG.
Almennur fundur verð
ur haldinn í Bjargi
laugardaginn 14. maí
kl. 4 eli. Mætið vel og
stundvíslega. Stjómin.
MUNIÐ minningarspjöld EIli-
heimilis Akureyrar. Fást í Æ
Skemmunni.