Alþýðumaðurinn - 11.08.1966, Qupperneq 8
ALÞÝÐUMAÐURINN
KVEÐJA TIL ISAFJARÐAR
AM sendir með þessari mynd bezlu kveðjur til ísafjarðar,
en myndin sýnir fríðan hóp ísfirzkra slysavarnakvenna er
heimsóttu Akureyri í sumar. Þær hlýddu á messu hjá séra Tuliníusi, þá er hann söng messu í Akur-
éyrarkirkju yfir látnum. Við það tækifæri tók ljósmyndari blaðsins Níels Hansson þessa mynd af ís-
firzku konunum ásamt prestunum séra Birgi Snæbjömssyni og séra Tuliníus.
XXXVI. árg. — Akureyri, finnntudaginn 11. ágúst 1966 — 27. tbl.
AM sendir kveðju suður
S
Jafnaðarmenn á Ítalíu sameinast
MÞYKIR það athyglisverð
ustu fréttirnar úr heims
fregnum síðustu daga, þau tíð-
indi, að ítalskir lýðræðissósía-
listar hafa náð samkomulagi
um að sameinast í einn flokk,
en eins og lesendum AM mun
kunnugt, hafa verið tveir flokk
ar sósíalista á ítalíu, Sósíalista-
flokkur Nennis, er um nokkur
ár hafði nána samvinnu við
kommúnista, og jafnaðarmanna
flokkur Saragats, núverandi
forseta ítalíu, er Nenni á sín-
um tíma stimplaði sem hækju
íhalds og auðvalds ítalíu, á lík—
=s
\ Góðaksturskeppni
BINDINDISFÉLAG ökumanna
á Akureyri (B. F. Ö.) efnir til
góðaksturskeppni n. k. laugar-
dag (13. ágúst).
Þátttaka í keppninni skal til-
kynnt formanni félagsins, Níelsi
Hannssyni í síma 12890 eða
12490, og það fyrir hádegi á
föstudag.
Heimil er þátttaka (16—20
alls) hverjum bæjarbúa, jafnt
konum sem körlum og með
ihverskonar bíl, — svo og héraðs
búum, ef Akureyringar fylla
ekki í þessa tölu (16—20).
an hátt og þeir sósíalistar hafa
gert hér á landi, er gengið hafa
í bandalag við kommúnista, —
hafa ásakað Alþýðuflokkinn fyr
ir hægri mennsku.
Reynsla „Hannibals“ ítalíu,
Nennis, af samvinnu og sam-
starfi við kommúnista varð til
þess að þoka jafnaðarmönnum
saman.
Bæði Emil og Hannibal hér
uppi á íslandi ættu að taka
raunsæi ítalskra lýðræðissósía-
lista sér til fyrirmyndar. Innan
samtaka lýðræðisjafnaðarstefnu
hlýtur; að rísa skoðanaágrein-
ingur. Það samrýmist lýðræði
og skoðanafrelsi á líkan hátt
•og nú á sér stað í Bretlandi,
þar sem „vinstri“ kratar eru
óánægðir með ráðstafanir rík-
isstjórnar jafnaðarmanna í efna
hagsmálum nú, en eigi dettur
þeim í hug að ganga til sam-
starfs við kommúnista af þeim
sökum.
Sameining ítalskra jafnaðar-
nianna þykir AM stórfrétt og
jákvæð og vegur upp í þann
hryllingsleik er stórkapítalismi
og kommúnismi leika nú í Víet
Nam. Óheft auðvald og komm-
únismi eru ófreskjur okkar sam
tíðar. Forustumenn jafnaðar-
manna á ítalíu hafa skilið þessi
sannindi og hætt að berjast inn
byrðis. Spurning AM er: Mun
vera langt í það að jafnaðar-
mönnum á íslandi verða Ijós
þau sannindi er ítalskir skoð-
anabræður þeirra hafa komið
auga á?
ÞAU furðulegu tíðindi hafa
gerzt, að útsala og af-
greiðsla Alþýðublaðsins hér
á Akureyri hefur verið stöðv
uð í heila viku og eigi er vit
að hvað lengi slík trassa-
mennska á að standa yfir.
AM vill í fullri einurð segja
skoðanabræðrum sínum við
Alþýðublaðið, að slík fram-
koma er hreinn dónaskapur
og ósvífni við kaupendur A1
þýðublaðsins hér á Akur-
eyri, sem eigi er hægt að af-
saka með því einu að af-
greiðslumaður blaðsins hér
hafi hætt störfum, því hægð
arleikur hefði átt að vera að
senda a. m. k. föstum kaup-
endum það í pósti, þar til
annar afgreiðslumaður hefði
verið ráðinn. Margir kaup-
endur blaðsins hafa hringt í
AM og látið furðu sína og þá
jafnframt vonbrigði sín í
Ijósi yfir þessari framkomu.
Því vill AM án nokkurs hiks
benda ráðamönnum Alþýðu
blaðsins á það að ráða hér á
bót hið fyrsta. Akureyrskir
jafnaðarmenn og aðrir vel-
unnarar Alþýðublaðsins í
höfuðstað Norðurlands eru
eigi skaplausir og þola því
eigi þá lítilsvirðingu er ráða
menn Alþýðublaðsins hafa
sýnt þeim í heila viku.
N
Fjölmenn bændahátíð að Árskógi
¥¥INN árlegi bændadagur Ey-
■N-* firðinga var haldinn sl.
sunnudag að Árskógi og fjöl-
menntu Eyfirðingar til samkom
unnar, sem fór hið bezta fram.
Ármann Dalmannsson setti sam
komuna og stjómaði henni, en
síðan flutti predikun séra Stef-
án V. Snævarr. Ræður fluttu
Ingólfur Jónsson landbúnaðar-
ráðherra og Jón Hjálmarsson
bóndi í Villingadal. Tónakvart-
ettinn á Húsavík söng og keppt
var í íþróttum og um kvöldið
var dansleikur.
Eins og áður stóð UMSE og
Búnaðarsamband sýslunnar fyr
ir samkomunni.
STÖÐUG NORÐANATT OG ÚRKOMA
Litlu-Laugum 9. ágúst. — T. S.
HÉR hefur verið látlaus ótíð
norðanátt, kuldi og úrkoma
flesta daga. í hálfa þriðju viku
hefur ekki komið nema einn
sólskinsdagur, þar til í dag, er
skein upp, en núna síðdegis er
aftur farið að þyngja. Að sjálf—
sögðu hefur heyskapur gengið
mjög erfiðlega sökum ótíðar-
innar og eru til bændur hér um
slóðir, er engu hafa komið í
hlöðu enn. Aftur á móti voru
einstaka bændur, er hófu slátt
Óblíð sumarveðraltð
s
Raufarhöfn 8. ágúst. — G.Þ.Á.
HÉR er búin að vera leiðinda-
veðrátta í allt að mánaðar-
tíma, og hefur það sagt til sín
bæði til sveitar og sjávar. Af
þeim sökum hefur heyskapur
gengið lítt og einnig hefur
minni síld borizt hingað, en von
ir stóðu til, enn sem komið er.
Búið er að bræða um það bil
ANDLÁTSFREGN
OTTÓ N. Þorláksson lézt á
þriðjudaginn 94 ára að
aldri. Ottó var fyrsti forseti Al-
þýðusambandsins og var kjör-
inn á stofnþingi þess 1916.
30000 tonn og er nú ekkert hrá-
efni fyrir hendi eins og er. Bú-
ið er að salta í á milli 14—15000
tunnur og heyrzt hefur, að von
sé á tveimur skipum í kvöld
með eitthvað af söltunarsíld —
Oddgeir frá Grenivik og Skarðs
vík frá Ólafsvík.
Allmikið er hér af aðkomu-
fólki, bæði körlum og konum.
Vinna við síldarbræðsluna hef-
ur verið nokkuð stöðug fram að
þessu. Allt hefur verið rólegt
og friðsamlegt og auðvitað vona
allir, að að norðanáttin fari að
setja ofan og um leið lifni yfir
atvinnuvegum bæði til lands og
sjávar.
snemma, búnir að hirða inn
fyrri slátt áður en þessi lang-
varandi óþurrkakafli hófst. —
Vegna hinrra stöðugu kulda
mun háarspretta verða rýr. —
Annað er lítt að frétta. Heilsu-
far er gott. Hvað félagslíf snert
ir má minnast á hinn unga en
dugmikla Lionsklúbb, Náttfara,
er starfar af fullu fjöri og aflar
fjár til nytja fyrir menn og mál
efni. — Aðalfundur Skógrækt-
arfélags íslands verður haldinn
að Laugum 19. til 20. ágúst
n. k.
=s
IBA-KR I KVOLD
IKVÖLD heyja ÍBA og KR
sinn síðari leik í I. deildar-
keppninni hér á íþróttavellinu-
uni. Egi er að efa að um spenn-
andi leik verði að ræða, því enn
eiga bæði Iiðin mögulcika á því
að vinna mótið og því getur á
vissan liátt verið um úrslita-
leik að ræða. Egi er að efa að
Akureyringar muni fjölmenna
á völlinn og vonandi livetja þeir
lið sitt kröftuglega til dáða og
sigurs.