Alþýðumaðurinn - 03.11.1966, Side 8
vanti yöur húsgögn, þá veljið þaö bezta. # Valbjörk h.f.
Hið inyndarlcga hús er Byggingarfélagið byggði við Skarðshlíð í Glerárhverfi.
Ljósm.: N. H.
Átján íbúða sambýlishús við Skarðshlíð
reist á vegum Byggingariél.
Formaður félagsins er Stefán Þórarinsson, húsasmíðameistari
NÝLEGA var haldinn aðal-
fundur Byggingarfélags
verkamanna á Akureyri. AM
kom að rriáli við formanninn
Stefán Þórarinsson og innti
hann fregna af síðustu fram-
kvæmdum félagsins. Stefáni
sagðist svo frá.
Félagið lauk á síðastliðnu
vori byggingu 18 íbúða sam-
býlishúss við Skarðshlíð í Gler
árhverfi. Félagið skilaði íbúð-
unum fullfrágengnum til kaup-
enda og reyndist kostnaðarverð
hússins 13 millj. 335.000.00 kr.
og eru þá taldir í byggingar-
kostnaðinum áfallnir vextir
meðan húsið var í smíðum.
í húsinu eru 12 4ra herbergja
íbúðir, 5 3ja hei'bergja og 1 2ja
herbergja. 4ra herbergja íbúð-
irnar kostuðu 800.000.00 kr. og
látiaði Byggingarsjóður verka-
manna 480.000.00 en kaupendur
greiddu 320.000.00 kr. Til 3ja
herbergja íbúðanna var lánað
400.000.00 kr. en kaupendur
greiddu 250.000.00 kr. Til 2ja
herbergja íbúðarinnar var lán-
að 340.000.00 en kaupandi
greiddi 145.000.00 kr. Lán Bygg
ingarsjóðs verkamanna eru
óvísutölutryggð og eru þau til
42 ára með 6% vöxtum og
verða því mánaðargreiðslur af
lánunum 2740.00 kr. á 4ra her-
bergja íbúðirnar, 2285 á 3ja her
bergja og 1945 á 2ja herbergja
íbúðina.
Ætlun okkar er að hefja bygg
ingu annars sambýlishúss að
vori sagði Stefán að lokum, og
þakkar AM honum fyrir upp-
lýsingarnar.
Auk Stefáns skipa stjórn
Byggingarfélags verkamanna,
þeir Júlíus Oddsson, Hallgi-ím-
ur Vilhjálmsson, Reynir Vil-
helmsson og Björn V. Magnús-
son.
XXXVI. árg. — Akureyri, fimmtudaginn 3. nóv. 19G6 — 38. tbl.
Aðalfundur F.U.J=
Húsavík 1. nóv. G. II.
AÐALFUNDUR Félags ungra
jafnaðarmanna á Húsavík
var haldinn sl. föstudag Baldur
Jónasson var kjörinn formaður
félagsins, en með honum í
stjóm eru Gunnar P. Jóhannes
son, Þorsteinn Einarsson, Orn
Jóhannesson og Garðar Jónas-
son. Fulltrúar á þing S.U.J.
voru kjörnir Orn Jóhannesson
og Þorsteinn Einarsson.
Fulltrúar Alþýðuflokksfélags
Húsavíkur á flokksþingið eru
Guðmundur Hákonarson og
Einar M. Jóhannesson.
Baldur Jónasson.
N
Fleiri nemendur í Hríseyjarskóla
BARNA- og unglingaskóli
Hríseyjar var settur 16. f.
m. og eru nemendur 51 en voru
46 á síðasta skólaári. Er því
eigi rétt ei; var birt í Degi ný-
verið að nemendum hafi fækk-
að frá því í fyrra. Kennsla í 4.,
5. og 6. bekk hófst 17. okt., en
kennsla í 1., 2. og 3. bekk þann
5. október.
Á næstunni er nýr prestur
væntanlegur til Hríseyjar, séra
Kári Valsson, og er það von
þeirra er með skólamál fara í
eyjunni, að hann taki að sér
einhverja kennslu við unglinga
deild skólans.
Skólastjóri við Hríseyjar-
skóla er Alexander Jóhanns-
son, en kennari Guðjón Björns-
son. Formaður skólanefndar er
Garðar Sigurpálsson.
%
SUNNUDAGINN 6. nóvember
mun Zontaklúbbur Akureyrar
sjá um sýningu á þjóðbúning-
um frá ýmsum löndum, batik
og tízkufatnaði.
Sýningin verður í Sjálfstæðis
húsinu og hefst stundvíslega kl.
15, en húsið verður opnað hálf
tíma fyrr. Kaffiveitingar með
heimabökuðum kökum verða á
boðstólum. -
Aðgöngumiðasala verður
laugardaginn 5. nóvember í
Verzl. Ragnheiðar O. Björns-
sonar kl. 15—17.
Allur ágóði sýningarinnar
rennur til styrktar vangefnum.
*S
Stulf heimsókn til lislmálarans í Sandvík
UNDIRRITAÐUR og Níels
Hansson skruppum í stutta
heimsókn út í Sandvík í Glerár
hverfi sl. þriðjudag. Þar býr
Jósep Kristjánsson verkstjóri
við Krossanesverksmiðju. En
Jósep er sem kunnugt er lands
þekktur málari og mörg munu
þau íslenzk heimili vera þar
sem mynd eftir Jósep prýða
veggi og einnig eru málverk
hans þekkt utan landsteinanna
í fleiru en einu landi.
Jósep Kristjánsson er ekki lærð
ur málari, eins og sagt er og
hefir ekki getað helgað sig list-
inni nema í tómstundum og á
nóttum þá er aðrir sváfu. „Ein-
liver innri þörf knúði mig til
þess að fara að mála, mér
fannst ég þurfa að tjá mig á ein
hvem hátt og mín tjáning em
myndimar mínar“, segir Jósep.
I stofunni á Sandvík mátti
líta margar fagra mynd og vist
Jósep Kristjánsson.
hefði verið hægt að eyða þar
lengri stund og kynnast mann-
inum betur, er hefir fundið sig
knúinn til að vaka rnn nætur til
listsköpunar og með því glatt
þá er unna fegprð og sakleysi
í Iitum. Við finnum lag íslands í
littúlkun Jóséþs. Hann sýnir
stórbrotna tign Stóls í Svarf-
aðardal og litríka töfra Mý-
vatnssveitar, þá er horft er til
Sellandafjalls óg Bláfjalls.
AM vill þakka Jósep fyrir
verk sín og vökunætur og ósk-
ar hinum sextuga listmálara
farsældar á komandi árum.
Myndin er af einu málverki
Jóseps og tók hana Níels Hans-
son. s. j.