Alþýðumaðurinn - 10.11.1966, Blaðsíða 4
WL
Bitstjóri: SIGURJÓN JÓHANNSSON (ób.).
Útgeiandi: ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG AKUR-
EYRAR. — AfgreiSsla og auglýsingar:
Strandgötu 9, II. hœS. sími (96)11399. —
Prentverk Odds BJörnssonar h.i., Akureyri
ALÞÝÐUMAÐURINN
S
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimHiHiiiiMHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiimiiiiiiiimiiiiiiHiiiiiiiiHiiitiiiimiiiiiiiiiiiiiiitk||«
Hin leiðin”
1|/|EÐAL almennings er „hin leiðin“ hans Eysteins, |
formanns Framsóknarflokksins, löngu orðin eins i
konar léleg fyndni. Þrátt fyrir ítrekuð tilmæli hefir |
flokkurinn ekki getað skilgreint þessa leið, svo að I
nokkur hafi skilið útskýringarnar né fest reiður á, |
hvað flokkurinn meinti með „hinni leiðinni".
k ALÞINGI og í blöðum fjargviðrast Framsóknar- 1
■^*- flokkurinn yfir háum fjárlögum og eyðslu ríkis- i
ins, en ber hins vegar fram sífelldar hækkunarkröfur |
við ílesta útgjaldaliði og bendir hvergi á sparnaðar- i
leiðir, svo að nokkru dragi. Þannig slær hann vopn úr |
hendi sér í augum allra ábyrgra kjósenda.
AALÞINGI og í blöðum býsnast Framsóknarflokk- |
urinn yfir lánsfjárskorti bankanna og kennir inn- 1
lánsbindingu Seðlabankans um, rétt eins og flokkur- i
inn viti ekki, að allt bindiféð er ýmist notað til endur- |
kaupa á afurðavíxlum eða til að mynda gjaldeyrisvara- |
sjóð, sem geri okkur fært að haía frjálsa verzlun í land- |
inu að meginhluta. Rýrni sá gjaldeyrissjóður verulega |
frá því, sem hann nú er, yrði þjóðin að taka upp inn- 1
flutningshöft og gjaldeyrisskömmtun. Er það kannske |
„hin leiðin“, sem Framsóknarflokkurinn vill fara?
CTJÓNARANDSTAÐA Framsóknarflokksins hefir §
^ verið mjög hörð og óbilgjörn. Hefði hún að auki |
verið jákvæð, þ. e. flokkurinn bent með skýrum rök- I
um á veilur núverandi stjgrnarstefnu og hvað mætti f
betur vinna og hvernig, hefði ugglaust ýmislegt gott |
gróið upp af andstöðunni. Gagnrýni, sem reist er á |
rökum, er lýðræðinu lífsnauðsyn. En því miður hefir 1
Framsóknarflokkurinn ekki risið undir þessari lýð- |
ræðisskyldu. Hann hefir sáð tortryggni og ótta meðal i
manna og ýtt hvarvetna undir skefjalausa kröfugerð. |
Ein afleiðing þessa er, að þjóðin hefir allt líðandi ár |
verið haldin gengislækkunarótta, sem hefir skapað |
ákafari fjárfestingu, meiri eyðslu og meiri verðþenslu i
en sparifjármyndun landsmanna hefir risið undir. |
Þetta veldur lánsfjárskortinum, ög þarf engan að |
undra. En hvort almenningur getur verið Framsóknar- |
flokknum þakklátur fyrir að róa öllum árum að Jiess- |
ari öfugþróun og nánast vandræðum, er annað mál. |
IjAÐ ER ömurleg staðreynd, að flokkur, sem þykist |
* vera lýðræðisflokkur og viljá heill og hag alþjóð- |
ar, leyfi sér þau vinnubrögð, að róa öllum árum að |
glundroða og upplausn í þeirri von, að upplausnin og |
ringulreiðin, ef skapast, gefi þeim möguleika til |
fylgisaukningar og kannske valda.
¥¥ÉR ER Framsóknarflokkurinn að leika sama leik |
við alþjóð, sem hann hefir um áraraðir leikið I
gagnvart bændastéttinni, henni til óbætanlegs tjóns. 1
En nú eru bændur hver af öðrum að vakna til skiln- §
ings á tjóninu, sem þessir „vinir“ þeirra hafa valdið I
þeim, og það er ekki ósennilegt, að almenningur hvar |
sem er á landinu átti sig hvað úr hverju æ betur á |
fyrirbrigðinu: þar sem einkis er svifizt í valdabaráttu, =
þar sem ekkert er spurt um heill og hag alþjóðar, þar I
getur ekki gróandi þjóðlíf dafnað. Þetta er í reynd |
„hin leiðin“, eins og hún birtist í orðum og gerðum §
Framsóknarflokksins nú, og þeirri leið hafnar hver |
einasti framsækinn íslendingur.
tStlllintlHHHHHtHHIHHHIHIIIHtHHHHtHIIHHIHIIHHItniWlHHÍHIIHHttlllíllífÍ^ÍHIIItllllHIHIHtHIIHIHIHIIItla
BÆJARBÚI SPYR: Er heim-
Ut að taka fullt gjald aí
þeim er aðeins sjá seinni hluta
bíómyndar. Um daginn keypti
ég mér miða í sýningarhléi og
var krafinn fulls gjalds. Þetta
finnst mér óréttlátt og ég spyr:
Er þetta löglegt? AM væntir
þess að fullnægjandi svar verði
gefið við þessari spumingu.
SAMI BÆJARBÚI segir einn
ig að viðskiptavinir þurfi að
kaupa glerið með á bíósjoppun
um þá keypt er gos og segir
hann að það sé ekkert óeðli-
legt, en margir standi í þeirri
meiningu að ekki sé hægt að
skila flöskunum aftur, eða með
öðrum orðum hægt að fá þær
greiddar. Segir hann að sér
finnist það góð þjónusta við
viðskiptavini að þetta væri
auglýst á áberandi stað í sjopp-
unum.
KONA keypti 2 sviðahausa í
matinn. En þegar til kom
sá hún að þeir myndu engan
veginn verða nógir á matborð-
ið, því að þeir reyndust vera
lieldur rýrir gimbrarhausar.
Hún lagði því leið sína í hina
nýju Kjötiðnaðarstöð KEA og
bað um vænan hrútshaus. Jú,
það var í lagi, hausinn kostaði
90 kr. En þá sagði vinkona
hennar er með henni var, að
hún skyldi heldur kaupa heilt
HEYRT
SPURT
SEÐ
HLERAÐ
slátur, hvað hún gerði og þá
fékk hún 10 krónur til baka af
hinum 90 er hún var búin að
greiða fyrir hrútshausinn ein-
samlan. Hver er svo að tala um
að ekki sé hægt að gera góð
kaup nú á dögum!
ORÐSENDING til hinsháaAI
þingis. Væri ekki rétt að
banna með lögum að aðrir stað
ir séu skírðir BESSASTAÐIR
og ÞINGVELLIR. Við eigum
aðeins einn ÞINGVÖLL og einn
BESSASTAÐ. Við vanvirðum
þessa söguhelgu staði með því
að skíra húskumbalda þessum
fornhelgu nöfnum.
SÓTHREIN SÚN stendur nú
yfir í bænum. Starfsmaður
við sorphreinsunina í bænum
hefur beðið blaðið að koma
þeirri orðsendingu til húseig-
enda að þeir láti ekki sótið í
sorptunnurnar heldur í t. d.
pappakassa er hægt væri að
látá við tunnurnar. Sótið Ios-
að í sorptunnurnar veldur
starfsmönnum sorphreinsunar-
innar miklum óþægindum, eyði
leggur m. a. föt þeirra því að
sótið þyrlast upp við losun.
AM væntir þess að bæjarbúar
verði við þessum tilmælum.
ENN HEFUR íslendingur
nokkrar áhyggjur út af
krötum og vill AM enn fullvissa
blaðið að það er með öllu
ástæðulaust og væntir AM þess
að ritstjóri fslendings nái fót-
festu á skötubarði sínu. Og það
er nú það.
s
AF NÆSTU GRÖSUM
MESSAÐ á sunnudaginn kem-
ur kl. 2 e. h. í Akureyrar-
kirkju. Sálmar: 223 — 52 —1
94 — 26 — 54. P. S.
SUNNUDAGASKÓLI Akur-
eyrarkirkju verður n. k.
sunnudag kl. 10.30 f. h. Eldri
1 hömin uppi í kirkjunni en
yngri böriiin í kapellunni. —
Bekkjarstjórar mæti kl. 10.15.
Sóknarprestar.
FRÁ Kristniboðshúsinu ZION.
Almenn samkoma verður í
húsinu n. k. sunnudag kl.
8.30 e. h. Allir velkomnir.
FÍLADELFÍA, Lundargata 12:
Almenn samkoma hvem
sunnudag kl. 8.30 síðd. Verið
velkomin. Sunnudagaskóli
hvern sunnudag kl. 1.30 e. h.
Öll böm velkomin. Sauma-
fundir fyrir stúlkur hvern
miðvikudag kl. 5.30 e. h. All-
ar telpur velkomnar. Fíla-
delfína.
HJÁLPRÆÐISHERINN. Kvöld
vaka verður laugardágs-
kvöldið 12. þ. m. kl. 20.20 í
sal Hjálpræðishersins. Hlust-
að á þátt í útvarpinu „Undir
fána hersins". Kaffi og fleira.
Sunnudaginn kl. 2 e.h. Sunnu
dagaskólinn. KI. 4 e. h. fjöl-
skyldusamkoma. Börnin
syngja, lesa upp, kvikmynd
o. fl, Kl. 8.30 e. h. Hjálpræðis
samkoma. Kapt. Aasolson
stjórnar þessum samkomum.
Allir velkomnir.
FRÁ Þingcyingafélaginu. Mun-
ið annað spilakvöld félagsins
að Bjargi föstudaginn 11. nóv.
og hefst kl. 20.30. Allir vel-
komnir. Nefndin.
FRÁ SJÁLFSBJÖRG.
Spilakvöld verður
laugardaginn 12. nóv.
kl. 8.30 e. h. Mynd á
eftir.
Kvenfélagið FRAMTÍÐIN held
ur kvöldskemmtun í Sjálf-
stæðishúsinu laugardags- og
sunnudagskvöld næstkom-
andi. — Ómar Ragnarsson
skemmtir bæði kvöldin. Auk
þess verður þjóðdansasýning
og skyndihappdrætti. Vinn-
ingar verða til sýnis í glugga
Kaupfélags Verkamanna. —
Bamaskemmtun á sunnudag
kl. 3 e. h. Ómar Ragnarsson
skemmtir. Dansað.
KONUR úr kristilegum félög-
um halda samkomu föstudag
inn 11. þ. m. í sal Hjálpræðis-
hersins kl. 8.30 e. h. Allar
konur eru hjartanlega vel-
komnar.
KA-FÉLAGAR! Herðið happ-
drættismiðasöluna og gerið
skil sem fyrst. KA
HAPPDRÆTTI Styrktarfélags
vangefinna. Enn geta margir
fengið númersmiða bíla sinna.
Auk þess frjáls sala hjá Verzl
uninni Fögruhlíð Glerár-
hverfi og afgreiðslu Dags.
LEIÐRÉTTING. í siðasta blaði
er sagt var frá aðalfundi
F.U.J. á Húsavík var sagt að
Örn Jóhannsson hefði verið
kjörinn fulltrúi félagsins á
þing S.U.J. Hið rétta var að
Öm var fulltrúi á þing Iðn-
nemasambands íslands og
leiðréttist þessi missögn hér
með.
KVENFÉLAGH) Framtíðin á
Akureyri gefur. út ný jóla-
merki eins og áður, og fást
þau í Pósthúsinu. Ágóði af
sölu jólamerkjana reíinur til
Elliheimilis Akureyrar. Merk
in eru teiknuð af frú Alise
Sigurðsson.
ÞÓRSFÉLAGAR!
Ákveðið er að ' hefja
sundæfingar á ný á veg
um félagsins. Fyrst um
sinn verða æfingarnar á
hverjum föstudegi frá kl. 7.30
til 8.00 e. h. Stjómandi verð-
ur Jónas Jónsson. Mætið vel
og stundvíslega. Stjómin.
FRÁ BÆJARSKRIFSTOF-
UNNI. Fram til áramóta verð
ur bæjarskrifstofan oþin kl.
5—7 e. h. á föstudögum til
móttöku á bæjargjöldum.
LÖGREGLÁN biður foreldra
og aðra umráðamenn barna,
að leggjast á eitt1 úm það að
framfylgja ákvæðum um úti-
vist barna á kvöldin.
J
RHNNINGARSPJOLD kvertfé-
lagsins Hlífar. Öllúm ágóða
varið til fegrunar við bama-
heimilið Pálmholt. -Spjöldin
fást í bókabúð Jóhanns Valde
marssonar og hjá Laufeyju
Sigurðardóttur Hlíðargötu 3.
JVmtsíjóKasafmð ér opið
alla virka dága k£ 2—7 e. h.
BARNABÓKASAFN I.O.G.T.,
Kaupvangsstræti 4, verður í
verður opið á miðvikudögum
kl. 5—7 síðd. — Útlán hefjast
í dag (miðvikudag).