Alþýðumaðurinn - 24.11.1966, Síða 1
Verzlið í sérverzlun.
Það tryggir gæðin.
TÓBAKSBÚÐIN
Brekkugötu 5 . Sími 12820
annast ferðalagið FRAMKÖLLUN — KOPIERING
stoi i:29-5» PEDROMYNDIR Akureyri HAFNARSTRÆTI 85 . SÍMI (96)11520
50006
XXXVI. árg. — Akureyri, fimmtudaginn 24. nóv. 1966 — 41. tbl.
Stórbruna var af stýrt
Kveikt í húsi K.V.A. á Akureyri
ATÓLFTA tímanum sl. mánu
dag var Slökkvilið Akur-
eyrar kallað að húsi Kaupfélags
Verkamanna í Strandgötu og
var þá eldur laus í húsinu bak-
lóðarmegin. Leigjandi í húsinu,
Fríður Jónsdóttir, varð var við
að tveir drengir voru búnir að
kveikja eld á baklóð hússins og
gerði hún þegar viðvart. Er
Slökkviliðið kom á vettvang
hafði eldur náð að komast í
kyndiklefa Verkalýðshússins.
Slökkviliðið náði að ráða niður
lögum eldsins, en allmiklar
skemmdir urðu á vörum Kaup
félags Verkamanna, einkum
sökum reyks er lagði um allt
húsið. Rok var á er íkviknunin
átti sér stað, og ef eldur hefði
orðið laus að ráði hefði hér orð
ið um stórbruna að ræða, því
að öll nálæg hús voru í bráðri
hættu í rokinu er þá geisaði.
Því vill AM beina þeirri vinsam
legu orðsendingu til foreldra og
annarra aðstandenda barna, að
þeir gæti að því að eldspýtur
liggi ekki á glámbekk er freisti
óvitahendur til voðaverka.
Um svipað leyti var kveikt í
timburstafla við nýbygginguna
við Varðborg. Starfsmenn bif-
reiðaeftirlitsins slökktu eldinn
og komu í veg fyrir verulegar
skemmdir á þeim slóðum.
Sunnanmenn
Sauðárkróki 22. nóv. — J. K.
AÐ sem af er vetri hefur
tíðarfar verið fremur leið-
inlegt. Skipzt hafa á norðan og
norðaustan hríðarveður og suð
vestan þíðviðri og oft mjög
hvasst. Ekki hefur fest neinn
snjó svo teljandi sé og er núna
t. d. ekki snjór nema í fjöllum.
Slátrun er um það bil að
ljúka. Var lógað svipuðum
sækja mjólk
fjölda sauðfjár og í fyrra, en
féð reyndist vera rýrara núna.
Hrossaslátrun var svipuð, en
nautgripaslátrun mikið meiri
sérstaklega kúa. Er það fyrst og
fremst vegna minni heyfengs
en eftir undanfarin sumur og
einnig mun eitthvað af bænd-
um vera að breyta tií með bú-
skaparháttu með því að fjölga
sauðfé, en fækka nautgripum.
norður
Til mjólkursamlagsins hefur
borizt mun minni mjólk nú í
haust en t. d. í fyrra og fer hún
að nokkru leyti á Reykjavíkur
markað sem skyr og rjómi og
nú er farið að flytja neyzlu-
mjólk með tankbílum, sem send
ir eru að sunnan. Kom einn í
síðustu viku og annar fer í dag.
Ennfremur er send mjólk í
brúsum.
Byggingarframkvæmdir við
gagnfræðaskólann nýja stöðv-
uðust í fyrstu snjóum í haust.
Búið var að grafa upp úr grunn
inum og uppsláttarvinna byrj-
uð. Er þess að vænta að byrjað
verði strax í vor af fullum
krafti.
Á vegum kirkjunnar er nú
rekið safnaðarheimili. Voru fest
kaup á gamla sjúkrahúsinu, en
það stendur við hliðina á kirkj-
unni. Hefur að undanförnu far-
ið fram viðgerð og breytingar
verið gerðar. Er nú starfsemi
hafin í heimilinu og byrjað á
námskeiði í föndri og eru full-
skipaðir tveir flokkar.
S.... 000»-'— ,
Þing Alþýðuflokksins
31. ÞING ALÞÝÐUFLOKKS-
INS hefst í Reykjavík á morg-
un. Mun þingið standa í 3 daga.
Mun þetta verða fjölmennasta
þing Alþýðuflokksins til þessa.
Frá brunanum í K. V. A. Gunnlaugur B. Sveinsson festir reyk-
grímu á Þorkel Eggertsson. Ljósm.: N. H.
BÆJARSTJORNARANNALL
I „fýlu“
VIÐ síðustu bæjarstjórnar-
kosningar hér í bæ unnu
jafnaðarmenn mjög á, svo sem
kunnugt er, og „stóru flokkarn-
ir“ urðu flemtri slegnir. Þeir
öðluðust sameiginlegt áhuga-
mál, það að koma í veg fyrir
aukin áhrif jafnaðarmanna á
bæjarstjórnarmálin — og um
þetta hefir styr þeirra staðið
síðan um kosningar. Hagur og
heill bæjarins hefir þeim
gleymzt. Sjálfstæðisflokkurinn
leit svo á, að tap sitt á einum
fulltrúa væri jafnaðarmönnum
að kenna. Hann leiddi ekki hug
sinn að störfum eða starfsleysi
fulltrúa sinna í bæjarstjórn né
hugsanlegt væri, að tapið ætti
þar skýringar eða kjósendur
væntu sér lítils af hinum fram-
boðnu fulltrúum þeirra. Þótt
hálft ár sé nú senn liðið frá
kosningu, er ekki enn orðið svo
lesbjart í húsakynnum Sjálf-
stæðisforystunnar hér í bæ, að
hún hafi greint þau aðvörunar-
tákn, sem kjósendur rituðu
henni á vegginn í vor. Fulltrúar
Sjálfstæðisins í bæjarstjórn
hafa verið sinnulausir og at-
hafnalausir um öll bæjarstjórn-
armál í sumar og haust — nema
ef lengri opnun kveldsala á að
teljast bæjarstjórnarmál. Þar
hefir þeirra greind og áhugi
fengið að njóta sín, þótt um
reisn áhugans megi deila.
„Stærsti flokkurinn“
VIÐ bæjarstjórnarkosningarn-
ar í vor varð Framsóknar-
flokkurinn stærsti flokkurinn
hér í bæ, bæði að atkvæða-
magni og fulltrúatölu. Hann
bætti við sig atkvæðum, þó að
um hlutfallslega aukningu væri
ekki að ræða, og hann hélt full
trúatölu sinni, meðan Sjálfstæð
ið tapaði einum. Fulltrúatalan
4 Sjálfstæði og 4 Framsóknar,
sem gilti síðastliðið kjörtíma-
bil, varð nú 4 Framsóknar og
3 Sjálfstæði hjá „stóru flokk-
unum“.
í fyrstu gleði sinni hrópaði
Framsóknarforystan upp þau
tíðindi í blaðinu Degi, að Fram
sókn væri orðin stærst í bæjar-
stjórninni og bæri því og mundi
taka þar forystuhlutverkið. Við
fulltrúa Alþýðubandalagsins
skyldi samið um nýjan bæjar-
stjóra og forseta bæjarstjómar
og nefndakjör. En þegar íhug-
ulli menn flokksins settust nið-
ur og fóru að hugsa málið,
greindu þeir ýmis ljón á vegi:
Milli fulltrúa Alþýðubanda-
lagsins ríkti innbyrðis enginn
trúnaður, heldur andúð, sem
nálgaðist fyrirlitningu og
fjandskap. Við flokksfulltrúa
var því ekki að semja, heldur
tvo einstaklinga, sem gátu
hvenær sem var hlaupið sinn
í hvora áttina. Fyrirliðinn, ef
kalla mátti hann það, var auk
þess að skapgerð dæmigerður
ofanveltumaður, ekki upp-
byggjari, og gæti sá stuðnings
stafur bæjarforystu brotnað,
þegar verst gegndi.
í öðru lagi lá það á borðinu,
að við komandi alþingiskosn-
ingar mundu Framsókn og
Alþýðubandalag berjast hart
innbyrðis um sama fylgið:
hin óánægðu öfl í þjóðfélag-
inu. Slík barátta kynni að
verða svo hörð og áköf, að
leiddi til algerra vinslita, og
hvar stæði þá bæjarmálafor-
ysta Framsóknar á Akureyri
— nema á rústum einum?
Hin „órólega" deild Fram-
sóknar vildi taka áhættuna, hin
ir gætnari ekki. Þeir fengu því
ráðið, að fráfarandi bæjarstjóri,
Magnús E. Guðjónsson, yrði
endurkjörinn í starf — í sam-
vinnu við fulltrúa Alþýðuflokks
ins um bæjarstjóra- og forseta
kjör. Annað bindandi samstarf
vildi Framsókn ekki um sinn,
nema það sem allir flokkar
voru sammála um, en Alþýðu-
flokkurinn lagt mesta áherzlu
á, að kjósa skyldi framkvæmd-
aráætlunarnefnd, er gerði
rammaáætlun um framkvæmd-
ir bæjarins á kjörtímabilinu.
Meðalganga Alþýðu-
flokksins
' HERZLU hafði Alþýðuflokk
urinn lagt á það í kosninga
baráttunni, að mynda yrði
fastan, samhentan meirihluta að
baki framkvæmdastjórn bæjar
ins. Og auðvitað lagði flokkur-
inn áherzlu á, að fráfarandi bæj
arstjóri yrði endurkjörinn, enda
hafði hann fyrst komið hingað
til starfs fyrir frumkvæði Al-
þýðuflókksins og reynzt með
ágætum. Hann kom hingað sem
yfirlýstur Alþýðuflokksmaður
og hefir aldrei farið dult með,
hvar í flokki hann stæði, þótt
aldrei léti hann þess gæta í
starfi sínu, svo sem viðurkennt
er. Það er því algerlega út í
hött, þegar Sjálfstæði og Fram-
sókn eru nú að gefa honum að
sök eftir á, að hann hafi verið
fundarstjóri á kosningafundi Al
(Framhald á blaðsíðu 2)
LEIÐARINN: Er þeim alvara eða ekki?
ÞORVALDUR JÓNSSON svarar, sjá bls. 5