Víðir - 08.11.1952, Side 1
XXIV.
Reykjavík, laugardaginn 8. nóvember 1952.
28. tölublað.
Fískinnflutningurinn til
Bandaríkjanna fyrstu 8
mánuði ársins.
nam 33.333 lestum, — og
er það 22% meira en á sama
tímabili árið 1951.
1959: 1951:
Kawada IS.001 lest 18.216 lestir
fsland 10.213 -- 7.366 —
Ndregur 2.547 lestir 1.442 —
Danmörk 1.006 — 72 —
England 019 — 5 —
Holland 539 — 37 —
Þýzkaland 383 — 76 —
Það eft irtektarvei ðasta við'
skýrslu þessa er, hve hlutur
Islands er orðinn stór í þess-
um innflutningi, og sérstak-
lega er það athyglisvert, að í
ár hefur liann aukizt um 40%,
á meðan innflutningur stærsta
innflytjandans, Kanada, hef-
ur heldur minnkað. Það' er
einnig mjög athygiisverð til-
raun annarra þjóða til að
ryðja sér til rúms á þessum
vandlátasta, en um leið eftir-
sóttasta markaði heims.
Fiskframleiðsla Ný-
fundnalands fyrra
misseri 1952.
Heildarframleiðsla Ný-
fundnalands á fiskflökum og
unnum fiski í janúar—júní
1952 var nokkru meiri en á
sama tímabili árið áður:
1952 7747 lestir
1951 7008 lestir
30. júní voru fyrirliggjandi
birgðir alls 803 lestir á móti
543 lestum á sama tíma árið
1951.
ý
Það er
san er um
eftirtektarvert, að
200% meiri nú en
í fvrra. En karfi var aftur á
móti 50%, meiri í fyrra.
Auðlindir hafsins.
Fiskveiðirannsóknunum er
aldrei hægt. að Ijúka til fulln-
ustu, heldur verður að halda
þeim áfram, svo lengi sem
fiskveiðar eru stundaðar, og
eftir því sem fiskveiðarnar
aukast, þeim mun nauð-
synlegri verða fiskveiðirann-
sóknirnar. (Dr. phil. Erik M.
Poulsen).
Ríkisútgjöldin hafa
hundraðfaldazt
á 50 árum.
Ríkisútgjöldin í Svíþjóð
eru nú að krónutölu hundrað
sinnum hærri en þau voru um
aldamótin síðustu.
Yiðskiplasamninga snemma.
ískyggilegt útlit með freðfiskbirgðirnar.
Það heitir svo, að útflutn-
ingsverzlunin sé í höndum
íramleiðenda, en hún verður
það ekki nema að nokkru
leyti vegna þess fyrirkomu-
lags, sem ríkir nú í mörgum
löndum, að viðskiptum verð-
ur ekki komið á nema fyrir
atbeina ríkisstjórnanna. Þarf
þá oftast að semja um inn-
flutning jafnhliða, og eru
þetta allt flókin og vandasöm
mál. Gæti þjóðin tryggt sér
fyrirfram sölu á verulegum
hluta útflutningsins fyrir ára-
mót eða í ársbyrjun hverju
sinni væri mikið unnið.
Það hefur gengið vel með
sölu flestra útflutningsvar-
anna nema freðfisksins og
þorskalýsisins. Þorskalýsið fer
nú þó heldur hækkandi í
verði, og eftirspurnin er vax-
andi. En það eru sömu erfið-
leikarnir með sölu freðfisks-
ins. Er nokkur kvíði í mönn-
um í því efni. Það er komið
fast að vertíð og frystihúsin
hálffull af fiski. Aðalhættan
liggur þó í, að nokkur fiskur
í Evrópuumbúðum þorni, sem
kallað er, sem er stór skemmd,
en að því eru nú nokkur brögð
í sumum frystihúsunum.
Ameríkumarkaðurinn hefur
tekið við miklu af freðfiski í
ár, en það er ekki allt aukin
sala, sem skýrslumar sýna,
heldur er hér um verulega
birgðasöfnun ytra að ræða,
sem gripið var til til þess að
forða einstökum fryisthúsum
frá stöðvun vegna rúmleysis.
Það er ekki sem bjartast yfir
sölu á þorski í Bandaríkjun-
um eins og er, samkeppni fer
þar harðnandi, og margt fleira
kemur til.
Um hina aðalútflutnings-
vöruna, saltfiskinn, gegnir
nokkuð öðru máli. Þó dregizt
hafi nokkuð að flytja hann
út, er þar þó bót í máli, að
hann er svo til allur seldur
fyrir ágætt verð og nú mikið
til farinn. En hvernig verður
það næsta ár? Framleiðslan
verður vafalaust aukin til
stórra muna frá því sem er í
ár, og var hún þó mikil. Hin
miklu afköst flotvörpunnar
munu njóta sín enn betur í
ár, því nokkuð var komið
fram á vertíðina, er hún var
tekin í notkun, og svo æfist
þetta. Þá mun verða lagt
meira kapp á veiðar í salt við
Grænland og meira lagt á
land hér en í ár. Þá mun salt-
fiskur vélbátanna lílca verða
meiri, bæði vegna meiri afla
og getulevsis frystihúsanna
til þess að taka á móti fiski
vegna rúmleysis nema úr
rakni verulega. í þessu sam-
bandi má geta þess, að Italir
þeir, sem keypt hafa fisk hér
undanfarið, hafa nú gengið
saman í félagsskap um kaup
á öllum innfluttum saltfiski
til Italíu. Þó að þetta eigi
ekki að geta haft áhrif á
neyzluna, verður það ekki til
þess að hækka verðið.
Það er í hæsta máta óeðli-
legt að vera alltaf að selja
gamlan fisk. Neýzluþjóðirnar
þurfa að torga fiskinum nokk-
urn veginn jafnóðum, ef vel
á að vera. Það er vafasamt,
að nokkur þjóð sé jafnaítar-
lega með sölu og útflutning á
sínum sjávarafurðum og Is-
lendingar. Aðrar þjóðir eru oft
búnar að metta markaðina,
þegar Islendingar taka við sér,
þó að hér séu auðvitað marg-
ar undantekingar. Það verður
aldrei lögð nógu mikil áherzla
á mikilvægi þess að selja
snenima, og ]jað verður að
vera föst ófrávíkjanleg stefna.
Við það vinnst það, að við-
skiptaþjóðirnar hafa trvggt
sér viðkomandi vöru, og þá
er erfiðara um vik hjá þeim,
sem á eftir koma. Þá yrði
miklu meira öryggi í atvinnu-
lífi landsmanna og urint að
auka framleiðsluna til muna,
þegar framleiðendurnir væru
ekki í stöðugum ótta um, að
varan seljist ekki eða skennn-
ist í höndunum á þeim. Fram-
Jeiðslukostnaður yrði líka
minni.
Ríkisstjórnin þarf því að
láta þessi mál alveg sérstak-
lega til sín taka og ekki sízt,
eins og nú horfir, og það strax.
Gera þarf heildarframleiðslu-
og söluáætlun með framleið-
endum fyrir næsta ár og fara
þegar að vinna að því að
hrinda henni í framkvæmd
með viðskiptasamningum og
föstum fyrirfram sölum, þar
sem því verður við komið.
Flutningsmarkaðurinn.
A ameríska flutningsmark-
aðinum er mikil eftirspurn
eftir skipum, og talið er, að
f 1 utningsgjöldin muni bráð-
lega hækka.
islenzkur fiskur fluffur
til Þýskalands - affur fil
Ísiands - síðan fil U.S.A.
Fregnir hafa borizt um það
til N. F. I., að fjórir íslenzkir
togarar, sem seldu fisk í
Þýzkalandi í september, hafi
orðið fyrir vonbrigðjum með
verðið, og að eitt skip hafi
snúið aftur til Islands með
karfaveiði sína til að frysta
hana fyrir Bandaríkjamarkað.
Verðið í Bretlandi hefur
sömuleiðis reynzt ófullnægj-
andi fyrir Islendinga, og af-
leiðingin hefur orðið sú, að
meira af íslenzkum fiski leit-
ar inn á markaðinn í Banda-
ríkjunum. En þar af leiðir, að
verðið fer einnig lækkandi
þar. Á meðan halda áfram að
berast kvartanir til N. F. I.
frá fisksölum í ð I ið-vestur-
ríkjunum vegna lélegra gæð'a
þessa fisks. Það er mjög mik-
ilvægt, að fiskurinn, sem boð-
inn er amerískum neytendum,
sé ávallt fvrsta flokks að
gæðum, hvaðan sem liann
kemur, annars munu allar
fiskafurðir, sem verzlað er
með í Bandaríkjunum, verða
illa þokkaðar.
Framleiðsla Brefaveldis
á hraðfrysfum fiski.
Árið 1951: Jan.-jimí ’52:
Þorskur o. fl. 14.410 lestir 7.364 lestir
Síld 2.908 — 689 —
Makríll 432 — 7 —
Hrogn og’ svil 402 — 106 —
Alls 18.152 lestir 8.166 lestir
Til samanburðar má geta
þess, að Islendingar frvstu í
fýrra rúmlega helmingi meira
magn en Bretar gerðu.
Þjóðverjar veiða mest
við island.
Fiskveiðar Þjáðverja á fyrri
árshelmingi 1952:
Norðursjórinn 14.354 lestir
Sundin 2.990 —
Island 72.810 —
N orégsst rengu r 46.643 —
Barentshat' 25.586 •—
Bjarnareyjar 1.390 —
Ymsir staðir 10.324 —
Alls 175.140 lestir
1. júlí 1952 átti þýzka sam-
bandslýðveldið 209 togara,
107 reknetaskip ti! síldveiða
í Norðursjónum, 1590 vél-
báta og 1807 hálfopna og
opna báta til strandveiða.
85% af auglýsingunum
beinf fil neyfendanna.
Sænski rithöfundurinn og
hagfræðingurinn Karl-Erik
Wiirneryd hefur gert athug-
un á 19 auglýsingaskrifstof-
um. Arið 1949 var veltan hjá
þeim sein svarar um 180 milj.
ísl. kr., og af þessari upphæð
voru 53% frá iðnaðarfyrir-
tælcjum. Hitt skiptist milli
heildverzlana (10%), smá-
söluverzlana (12%,) og ann-
arra atvinnugreina (25%).
Heildartala auglýsinganna
var árið 1949 um 750.000, og
þar af voru um 80% auglýs-
ingar á ýmsum framléiðslu-
vörum. Af öllum þessum aug-
lýsingum var um 85%, beint
til neytendanna, meginhlut-
inn varðandi neyzluvörur.
50 kúfferar frá Esbjerg
eiga í vetur að stunda lax-
æiðar í Evstrasalti. 27 þeirra
eru þegar komnir þangað.
Portúgölsku fiskxskipin,
sem stunda veiðar við Ný-
fundaland og við Vestur-
Grænland, vilja nú skipta um
veiðarfæri, hafa verið með
handfæri, en byrja nú með
línu. Leitað er aðstoðar til
þessara framkvæmda hjá
dönskum fiskveiðisérfræðing-
um.
Evrópa er þýttbýl-
asta heimsálfan.
Nú í dug eru íbúar heimsins um 300
til 400 milj. fleiri en fyrir stríðið. Þeir
voru um 2.300 milj. iirið 1947, en um
2.000 milj. árið 1939.
Meira en helmingur af íbúum jarð-
arinnar bvr í Asíu, en þar eru íbúarnir
um 1253 milj.
Mestur er íbúafjöldinn í Kína og
Indlandi, áætlaður um 463 milj. í Kína
og 457 milj. í Indlandi.
Evrópa er þéttbvlasta svæðið með
alls 393 miljónir íbúa, og svarar það
til 78 manna á hvern ferkílómetra. A
Tslandi er 1.5 á ferkílómetra.
Eftir stríðið hefur giftingum og
barnsfæðingum fjölgað mjög víðast
livar í heiminum. Það fæddust fleiri
drengir en stúlkur árin 1946—48, en í
flestum löndum Evrópu eru ]ió enn
fleiri konur en karlar.
í SFISKSÖLUR:
Söludagur: Skipsnafn: Sölust.: Lestir: Meðalv. kg.:
4. nóv. Jón Þorláksson. Rvík Cuxhaven 188 £6038 kr. 1.45
5. — SvaJbakur, Akureyri Bremerhaven 198 £6415 — 1.50