Alþýðumaðurinn - 04.08.1967, Blaðsíða 2
f ... ..=V^
ÍJjróttasíáa A.M.
Sigurður Dagsson varði oft mjög vel í leiknum. Hér bjargar hann föstu skoti Akureyringa. Þorsteinn
er einnig til vamar, en Þormóður og Reynir sækja að. Ljósm.: H. T.
Verða Akureyringar íslands-
meistarar í knattspyrnu 1967?
Unnu 6. leikinn í röð, nú Val með 2:1
AKUREYRINGAR hafa nú góða möguleika til að hljóta íslands-
meistaratitilinn í knattspyrnu 1967. Eftir lélega byrjun í ís-
landsmótinu, töpuðu þrem fyrstu leikjum sínum öllum með 2:1,
hafa þeir unnið sex leiki í röð og skipa nú efsta sætið í I. deild
með 12 stig. Valur hefur einnig 12 stig, en markahlutfall Akur-
eyringa er mun liagstæðara. Fram getur einnig blandað sér í bar-
áttuna um íslandsmeistaratitilinn, en þeir eru með 10 stig að átta
leikjum loknum. Aðeins þessi lið hafa möguleika til sigurs í mót-
inu. — Ilvaða lið fellur úr I. deild í ár er ekki á lireinu ennþá, þó
að telja verði að Akurnesingar séu vonlitlir úr þessu.
- Giæsilegt
norðlenzkt
framtak
(Framhald af blaðsíðu 1).
Síðari leikur Akureyringa og
Vals í íslandsmótinu var háð.ur
á Akureyri sl. miðvikudags-
kvöld í ágætu veðri. Áhorfend-
ur voru mjög margir og víðs-
vegar af landinu, og var mikil
spenna meðal þeirra allan leik-
inn út, enda var hann skemmti
legur og vel leikinn.
Akureyringar kusu að leika
á suðurmarkið og höfðu því sól
ina heldur í bakið. Fyrstu 15
mínúturnar voru Akureyringar
öllu meira í sókn en Valur átti
þó snögg upphlaup, sem Reynir
Jónsson og Hermann Gunnars-
son sköpuðu með hraða sínum.
Á 20. mín. hrekkur knötturinn
til Hermanns eftir mistök varn-
arinnar, og skoraði hann fallegt
mark með föstu skoti. Þar með
hafði Valur tekið forustuna
með einu marki.
Á 25. og 30. mín. á Kári Árna
son tvö gegnumbrot, en bæði
runnu út í sandinn. Rétt fyrir
leikhlé þurfti Kári að yfirgefa
völlinn vegna meiðsla, og inn
kom nýliðinn Rögnvaldur Reyn
isson. Stóðu því leikar 1:0 fyrir
Val eftir fyrri hálfleikinn.
Voru nú margir uggandi er
Akureyringar höfðu misst Kára.
En strax í upphafi síðari hálf-
leiks tóku Akureyringar leikinn
í sínar hendur, og á 3. mín.
jafna þeir leikinn með fallegu
marki sem Magnús Jónatans-
son skorar með skalla eftir send
ingu frá Þormóði Einarssyni.
Fagnaðarlæti voru mikil og
innileg meðal áhorfenda. Og
Akureyringar halda sókninni
áfram og ná nú tökum á miðj-
unni. Á 4. mín. á Skúli Ágústs-
son fast skot á Valsmarkið en
Sigurður Dagsson markvörður
Vals varði meistaralega. Smá
deyfð færðist yfir leikinn næstu
mínútur, en á 20. mín. á Val-
steinn Jónsson gott skot á Vals
markið, sem Sigurður bjargar
naumlega í horn. Og á 26. mín.
tóku Akureyringar svo forust-
una. Valsteinn sendi knöttinn
fyrir markið og Rögnvaldur, ný
liðinn, henti sér á hann og skall
aði mjög fallega í Valsmarkið.
Áhorfendur létu óspart í ljósi
hrifningu sína, sem heyra mátti
langar leiðar. — Eftir markið
drógu Akureyringar sig í vörn
og sóttu þá Valsmenn mun
meira. Á 35. mín. áttu Vals-
menn gullið tækifæri til að
jafna leikinn, er Hermann
komst einn innfyrir vörnina, en
Samúel Jóhannsson markvörð-
ur bjargaði meistaralega í horn.
Þar höfðu Akureyringar sannar
lega heppnina með sér. Ekki
urðu mörkin fleiri í þessum
leik, og mega Akureyringar vel
við una.
Akureyringar áttu meira í
leiknum og v-ar -vörnin sérstak-.
lega góð. Guðni Jónsson lék nú
sinn bezta leik á sumrinu og
var sívinnandi. Hef ég ekki séð
framvörð skila sínu hlutverki
öllu betur í leik. Jón Stefánsson
var einnig mjög góður og stöðv
uðust flestar sóknarlotur Vals-
manna á honum. Ævar Jónsson,
Samúel Jóhannsson, Jón Frið-
riksson og Pétur Sigurðsson
skiluðu sínum stöðum allir vel.
Valsteinn Jónsson, Skúli Ágústs
son og Kári Árnason hafa oft
áður átt betri leiki. Magnús
Jónatansson var duglegur, en
aukaspyrnurnar hjá honum
voru afar lélegar. Rögnvaldur
Reynisson kom skemmtilega á
óvart og gerði margt laglegt.
En sá maður, sem mesta athygli
vakti í framlínu Akureyringa,
sérstaklega í síðari hálfleik, var
Þormóður Einarsson. Hann var
nú óþekkjanlegur frá fyrri
leikjum sínum í sumar og átti
mjög skemmtilegan leik.
Valsliðið er nokkuð frískt.
Sigurður Dagsson markvörður
var mjög góður, sérstaklega eru
gripin falleg. Þorsteinn Frið-
þjófsson og HaHdór Einarsson
voru sterkustu menn í vörn-
inni. í framlínunni bar mest á
Hermanni Gunnarssyni og
Reyni Jónssyni. Þeir eru báðir
fljótir og hættulegir. Reynir
virðist hafa afar erfitt knatt-
spyrnuskap og hættir til að
vera grófur.
Dómari var Magnús Péturs-
son, og var greinilegt að hann
vildi halda leiknum niðri og
forðast alla hörku. Sumir dóm-
ar hans voru nokkuð vafasam-
ir, en í heild kom hann vel frá
sínu. Hermann og Reynir voru
greinilega undir smásjá hjá
Magnúsi. Línuverðir voru Karl
Jóhannsson og Baldur Þórðar-
son. — Þ.
STADAN
STAÐAN í I. deild Islandsmóts
ins er nú þessi:
Akureyri 9 6 0 3 21:11 12
Valur 9 5 2 2 17:15 12
Fram 8 3 4 1 10:8 10
Keflavík 9 3 2 4 7:9 8
K. R. 8 3 0 5 13:15 6
Akranes 9 2 0 7 9:19 4
krafa Norðlendinga og aUra ís-
lendinga að stjórnvöld landsina
hlúi að þessari mikilvægu iðn-
grein svo að hún geti fullkom-
lega orðið samkeppnisfær við
erlendar skipasmíðastöðvar, því
að íslenzkir iðnaðarmenn hafa
sannað verkhæfni sína svo vel
að eigi verður Véfengd og vill
því AM gera orð Alþýðublaðs-
ins, aðalmálgagns Alþýðuflokks
ins, að sínum, en þar segir í
leiðara þar sem vikið er að
smíði Eldborgar m. a.:
„Ástæða er til að reyna að
þurrka út þann mun, sem gert
hefur smíði erlendis hagstæðari
útvegsmönnum en smíði heima.
Stöðvar eru nú til í landinu,
tæknikunnáttu vantar ekki að
iðnaðarmenn okkar eru tví-
mælalaust vandanum vaxnir.
Og enga iðngrein virðist eins
eðlilegt að íslendingar stundi
og skipasmíðar. Til mála hefur
komið að láta smíða innanlands
strandferðaskip fyrir Skiþaút-
gerð ríkisins, sem nú eru fyrir-
huguð. Er ekki óhugsandi að
smiði skipanna, sem verða eitt
eða tvö, verði aðeins boðin út
innanlands. Verði það unnt,
mundi smíði strandferðaskips
marka tímamót í íslenzkri at-
vinnusögu11!
Urri leið og AM tekur undir
þessi orð Alþýðublaðsins óskar
AM forstjóra og öllu starfsfólki
Slippstöðvarinnar tH hamingju
með þetta glæsilega afrek, er
blaðið vill fullyrða að sé einn
stærsti atburðurinn í atvinnu-
sögu höfuðstaðar Norðurlands.