Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 17.08.1967, Síða 4

Alþýðumaðurinn - 17.08.1967, Síða 4
• lUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllirilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllMlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII* Ritstjóri: SIGURJÓN JÓHANNSSON (áb.). Útgeiandi: ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG AKUR- EYRAR. — Aigreiðsla og auglýsingar: Strandgötu 9, II. hœð, sízni (96)11399. — Prentverk Odds Björnssonar h.i., Akureyri ALÞÝÐUMAÐURINN 1111111111111111111111111111111111111111111111111111111(1 ii n iiiimmniiiiimiiiiiiiiiimiiiimiMMuiiimiiiiiiiiiiiiii* „Undirstaðan rétt | sé fundin” JJJÖG ER nú rætt um nauðsyn þess að e£la þéttbýlis- 1 kjarna úti um landsbyggðina til mótvægis við of- [ sókn fólksþungans til höfuðborgarsvæðisins. Einn slík- i ur þéttbýliskjarni, og sá stærsti, er þá gjarnast í munni \ manna Akureyri, og engum getur blandazt hugur um, i að til þess hefir bærinn ýmsa kosti, en sá stærstur að § okkar hyggju af hve miklu jafnvægi bærinn hefir þró- | ast: verzlun, iðnaður, útgerð, samgöngur og ýmiss kon- i ar þjónusta hefir verið rekin hér um langt skeið með í festu og þrautseigju, svo að ekki er um neinn skyndi- i vöxt að ræða, lieldur jafna, sígandi þróun, sem gefur í kjölfestu. Þá er sá kosturinn ónefndur, að Akureyri er i mikill skólabær og ýmiss konar menningarstarfsemi í iðkuð, svo sem leiklist nokkur, sönglíf talsvert, skáld- i mennt Jjó nokkur o. s. frv. Hér er allmyndarlegt sjúkra- s hús og veruleg stækkun þess fyrirhuguð, stórt bókasafn i og brátt í veglegum liúsakynnum, góð skilyrði þegar | fyrir hendi til íþróttaiðkana og aukning þeirra og um- í bætur í framkvæmd. Sitthvað fleira mætti nefna, en [ þetta nægir til að benda á, að undirstaða til að reisa i myndarlega byggingu á er fyrir hendi, ef við reynumst í fær um að beina þróuninni á þá braut. JgR ÞÁ FYRST nauðsynlegt að ná alhliða samstöðu í langt út fyrir bæjamiörkin, út um allt hérað og I austur um næstu byggðir og bæi um þessa uppbygg- i ingu, hvernig eigi að henni að standa, og hlýtur þar að [ vera höfuðmálið, að þar hafi öll heildarbyggðin gagn i og viðgang af, ekki Akureyri ein. Næst er mikilvægast, 1 að þess sé vandlega gætt, að engin atvinnugrein sé af- i skipt: verzlun, iðnaður, útgerð, samgöngur, þjónustu- § gieinar, skóla- og menningarmál, heilbrigðismál o. s. f frv. og landbúnaðinum í byggðarlögunum í kring, öllu | þessu verður að fylgja jafnt og linnulaust fram til vaxt- i ar. í bili þurfum við kannske bezt að gæta að útgerð- i inni, — og er þá átt við þá örðugleika, sem togaraút- i gerðin á í, en Akureyri má með engu móti missa þann [ þátt úr vaxtarmöguleikum sínum — og iðnaðinum, i sem telur sig búa við of aðgangsfreka samkeppni inn- | flutningsverzlunarinnar. Akureyri á afar mikilla hags- | muna að gæta varðandi stærri og smærri iðnað, og [ hann er í höfuðdráttum þannig byggður upp, að það i er þjóðhagslegt glapræði að hlynna ekki að honum, i hann byggir sem sé nær eingöngu á úrvinnslu innlends I hráefnis, til innlendra nota eða útflutnings, eftir því i sem hagfelldara er. Nægir þar að nefna verksmiðjur [ SÍS, Niðursuðuverksmiðju K. J., Hraðfrystihús Ú. A., i sem átti 10 ára afmæli í gær, og Dúkaverksmiðjuna, en [ að sjálfsögðu verður að kref jast þess, að iðnaður fylgist | með tímanum í hagræðingu og framleiðslu og þar | kann að vera meiri athygli þörf en verið hefir á. Meðal = annars vilja ýmsir fullyrða, að hinar annars myndar- i legu verksmiðjur SÍS hafi ekki gætt sín þar sem skyldi. í IIMIIIIIMIMIIMIIIIIIIIIIIIIIIItllllllllllllHIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIII* GUNNAR Þ. J. hefur íyrst orðið í þættinum í dag. — Hann segir: „Sæll og blessaður AM. Nú er blessuð verzlunarmannahelg in liðin að þessu sinni. Það komu til mín hjón úr Reykja- vík og sögðust hafa farið í Sjálf stæðishúsið laugardaginn 5. ágúst og kostaði aðgangseyrir 25 kr. „kvölddansleikur“ var til kl. 1 e. m., ekki uppselt en hvergi sæti að fá. Hljómsveitin fékk 20 mín. í „lilé“ og engin músík á meðan. Jæja, við hjón- in fórum svo með þeim sunn- lenzku í Sjálfstæðishúsið mánu dagskvöldið þann 7. ágúst. Þá var mátulega margt, dans til kl. 1 e. m., aðgangseyrir 80 kr. en enn fór hljómsveitin í „frí“ og var það heldur meira en 20 mín. Fólkið byrjaði að klappa saman lófunum og sumir stappa niður fótum, og þá er hljómsveitin gekk í salinn yfirgnæfðu lætin. Þetta fannst okkur í það minnsta, en við höfum kannski tekið mest eftir þessu, því að við notum ekki áfenga drykki. Er ekki hægt að koma því við að hljómsveitin fari ekki öll í einu í „hlé“, það er ekki vinsælt og sögðu sunnlenzku hjónin að þetta þekktist ekki, þar sem þau hafa farið á dansleiki í Reykjavík. Sjálfstæðishúsið, með nýjum breytingum rúmar 2 vínbari, en dansgólfið er ekki stærra en áður. Væri ekki hægt að opna „litla salinn“ svo að allir fái sæti, eða má setja ótak- markað í húsið? Því biðja dyra verðir ekki unglingana um nafn skírteini? Við horfðum á marga innan 18 ára aldurs fara inn, en ekki voru þeir spurðir. Þeir s=== gengu bara óhindraðir inn. Þetta er ekki hægt. P. S. Er það satt að Dúi Bjömsson hafi spurt, hvað marga gesti húsið tæki og hafi fengið það svar, að enginn gæti gefið honum það upp? Ég vona að þú birtir þetta fyrir mig fljót lega og einnig vona ég að hljóm sveit liússms breyti til hvað HEYRT SPURT HLERAÐ „hlé“ á dansleikjum snertir og veit ég að margir eru á sama máli. í Reykjavik er strangt eft irlit með því að unglingar sýni nafnskírteini við innganginn. Ef dyraverðir gera þetta ekki hér verður að fá Iögregluþjóna til að annast það. Þakka svo fyrir- fram fyrir birtinguna.“ AM þakkar Gunnari fyrir bréfið og vísar hér með spum- ingum hans til réttra aðila og býður um leið rúm fyrir þau í þessum þætti sínum. ALÞÝÐUMAÐUR á Akureyri kveður sér næst hljóðs og hér kemur hans innlegg. „Ég vona að guð almáttugur gæfi það að við fengjum í viku hverri heimsókn fyrirmanna utan úr löndum. Þá myndi bær- s inn okkar bera það nafn með rentu að vera „SNYRTILEG- ASTl BÆR A ÍSLANDI“. Ég var stoltur af því að vera Akur eyringur sl .sunnudag, allur miðbærinn var sniu-fusaður, nema hvað ein opna úr Mogg- anum skammaðist sín þó í ráða leysi rétt fyrir ofan Kristjáns- bakarí í Strandgötunni. Það lyfti sér af og til fyrir mildum suimanblæ er kyssti vegfarend ur jafnt yfirgefinn Moggatetur og ungmey í töfrandi stuttu pilsi. (Ég man að vísu ekki lit- inn á pilsinu, en man fegurðina er það huldi ekki, svro em þeir í París að hugsa um að hylja eftir árið þá guðdómlegu feg- urð er 25 cm. fyrir ofan hné kvenfólksins birta karlkynsveg farenda). En þetta innskot er nú bara innan sviga eins og hjá Kristmanni er allar konur elska í hæfilegri fjarlægð. Jæja, pist- ill minn átti að vísu ekki að vera um óhjúpuð kvenmanns- læri, heldur uin fegurð, já, og snyrtimennsku höfuðstaðar Norðurlands. En því miður kom skrattinn úr sauðarleggnum. Þá er ég var dolfallinn eftir spásse túr um allan miðbæinn og hafði staðnæmst á spegilfægðu torgi Hótel KEA. Kom þá einn kunn- ingi minn askvaðandi út úr piss eríinu hans Rögnvaldar undir kirkjutröppunum. Hann glotti bara við tönn þegar ég fór að minnast á hreinleika bæjarins og svo kórónaði hann með því að spýta um tönn og eftir að hafði snörlað í honum af heil- agri vandlætingu langan tíma gusaði hann út úr sér: „Ertu cinhver rati maður, veiztu ekki að kóngsmaður frá Noregi kem (Framhald á blaðsíðu 7). 1 • AF NÆSTU GRÖSUM* MESSAÐ verður n. k. sunnu- dag kl. 10.30 f. h. — Sálmar: 536 — 131 — 356 — 223 — 226. B. S. FÍLADELFÍA Lundargötu 12. Almenn samkoma verður á sunnudag kl. 8.30 s. d.'Norsku systurnar Anna og Inger syngja og tala ásamt Anne Marie Nygren frá Finnlandi. Allir velkomnir. Fíladelfía. MBDGARÐAKIRKJA í Gríms- ey 100 ára. — 100 ára afmælis Miðgarðakirkju í Grímsey verður minnst við guðsþjón- ustu þar n. k. sunnudag. Pró- fasturinn í Eyjafjarðarpróf- fastsdæmi predikar en fyrir altari þjónar séra Pétur Sig- urgeirsson á Akureyri. Orgel leik annast Ragnhildur Ein- arsdóttir. Eftir guðsþjónustu býður sóknai-nefnd söfnuði til kaffidrykkju í félagsheimili eyjarinnar. MINJASAFNIÐ opið alla daga kl. 1,30 til 4 e. h. Tekið á móti ferðafólki á öðrum tím- um ef óskað er. Sími safnsins er 1-11-62 og safnvarðarsími er 1-12-72. MATTHÍASARSAFN opið kl. 2—4, alla daga, nema laug- ardaga. Sími safnvarðar er 1-17-47. MINNINGARSPJÖLDIN fyrir kristniboðið í Konsó fást hjá frú Sigríði Zakaríasdóttur, Gránufélagsgötu 6. — Sími 11233. ----------------------------> BRÚÐHJÓN. Hinn 5. ágúst sl. voru gefin saman í Akureyr- arkirkju ungfrú Dómhildur Rúna Jónsdóttir, Víðimýri 5, Akureyri og Haukur Amar Kjartansson. Heimili þeirra verður að Lækjarkoti, Borg- arhreppi, Mýrasýslu. Ljósm.: Ljósmyndastofa Páls. ---------------------------->

x

Alþýðumaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.