Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 17.08.1967, Blaðsíða 7

Alþýðumaðurinn - 17.08.1967, Blaðsíða 7
- Heyrt, spurt... (Framhald af blaðsíðu 4). er í heinisókn í dag, ja, því er nú andskotans ver að íslending ar eiga ekkert kóngafólk, þá þyrlaðist ekki framan í mann liversdags rykstybba á degi hverjum jafnt við dyr KEA og Landsbanka“ Svo var hann rok inn, en ég stóð eftir þenkjandi á gljáfægðu KEA-torgi og sjá það varð Ijós. Kóngsmaður sagði hann, já, og KEA og Landsbanki og ég fann lausnina næstu ár hvað fegurð og hrein- leika Akureyrar snertir í náinni framtíð. Jú, lausn mín var þessi: VÉR AKUREYRINGAR KJÓSUM JAKOB OG SÓL- NES fyrir kóngsmenn og hyll- um Jakob á KEA-torgi þennan sunnudag en Sólnes við Lands- bankann aftur hinn og svo koll af kolli og vitaskuld getum við um leið blessað liandleiðslu fyrr nefndra manna á Esso og Sana. P. S. Mér er alvara og í ennþá meiri alvöru skal tekið fram að ég fagnaði komu Haralds Ólafs sonar frá Noregi, því að hann hafði vissulega góð áhrif á feg- urðarskyn akureyrskra bæjar- yfirvalda. Snobbmennska er ágæt ef hún virkar svona já- kvætt. Þannig endaði ALÞÝÐU MAÐURINN Á AKUREYRI til skrif sitt. XSKRIFAR. Nú er farið að halla á seinni hluta sumars ins og ekkert bólar á malbik- unarframkvæmdum í bænum. Mér finnst sem mörgum öðrum íbúum þessara bæjar að það gangi grátlega hægt að breyta götum bæjarins úr hálfgerðum öræfaslóðum í viðunandi götur. Ég vil mælast til þess að hátt- virt bæjarstjóm og verkfræðing ar hennar yrðu kostaðir af okk- ur bæjarbúum í reisu til Þórs- liafnar í Færeyjum, en Þórs- höfn er svipuð að stærð og Ak- uréyri og erindi hinnar virðu- legu sendinefndar okkar væri að telja malargöturnar í Þórs- höfn. Það er ákaflega létt verk. Þeir hljóta að hafa tölur yfir malargöturnar í höfuðstað Norð urlands. Ég vona að þeir komi heim með svolítinn kinnroða úr reisunni. BORGARI kom að máli við blaðið og kvað að til lítils væri fyrir íbúa bæjarins að mála hús sín eða snyrta lóðir sínar, þar sem bæjaryfirvöldin legðust á móti fegrun bæjarins. Ætti hann við sjóausturinn á götur bæjarins, því að saltið væri á góðum vegi með að drepa allan trjágróður við um- ferðargötur í bænum og nefndi hann garð sinn því til sönnunar, og sagði hann að tré sem stæðu næst götu væru orðin illa út- lítandi og sum nakin og teldi liann það óhikað saltaustrinum á göturnar að kenna. Rykmett- að saltið á götum bæjarins sem smýgur um allt og allt ætlar að kæfa og aldrei hefir verið meira, er að verða ein mesta plága þessa bæjar og hann spyr hvað ætlar bæjarstjóm Akur- eyrar lengi að láta við svo búið standa. Við sem einu sinni gát um verið stoltir af bænum okk- ar hreinum og með fallegum gróðri, verðiun að horfa upp á að allt verði skítugt af ryki og jafnvel eyðileggist af salti með sí aukinni umferð um götur bæjarins en algjörri fornaldar gatnagerð. Hann spyr einnig: Hvers vegna er ekki notað vatn á göturnar? Eða gerir það kannski ekkert til þótt fegurð gróðurs sé misþyrmt og borg- urum bæjarins 'er vilja að,' bær- inn sé fagur refsað fyrir þá við- leitni. AM tekur undir þessi um- mæli borgarans og vill einnig benda á að saltið er einnig skað valdur allra þeirra ökutækja er leggja leið sína um höfuðstað Norðurlands. Skipaður borgarfógeti í Reykjavík ORSETI ÍSLANDS hefur hinn 9. þ. m., samkvæmt til lögu dómsmálaráðherra, veitt Sigurði M. Helgasyni, aðalfull- trúa, Akureyri, embætti borgar fógeta við borgarfógetaembætt- ið í Reykjavík, frá 1. október n. k. að telja, en um embættið sóttu auk hans Gísli Símonar- son, Sigurður Sveinsson og Þór hallur Einarsson, fulltrúar yfir- borgarfógeta. (Dóms- og kirkjumálaráðu- neytið, 11. ágúst 1967.) - KREPPUÁSTAND (Framhald af blaðsíðu 8). minni en að undanfömu. Sömu sögu er að segja úr Axarfirði, t. d. á hinum svokölluðu Sands bæjum er kal gífurlegt. Veit ég að bændur þar hafa keypt hey frá Akureyri úr Gróðrarstöð- inni og er það eina heyið, sem komið er í hlöður þar. Eins og kunnugt er, hafa bát- ar frá Eyjafirði og Húsavík mokfiskað í nót hér austurfrá síðustu daga. Sængurveradamask hvítt og mislitt STÓT og styrkt LÉREFT í lök Verzlun Ragnheiðar 0. Björnsson Járn- og glervörudeild I i | Af alhug þakka ég stjúpbörnum minum, systkinum, a | frœndum, vinum, félagasamtökum og stofnunum, sem * ý heiðruðu mig og glödclu á margvislegan og ógleyman- ® í legan hátt á sjötíu ára afmcelisdegi minum þann 3. f £ júli sl. — Ég bið ykkur öllum blessunar Guðs. f I f | JÓN JÚL. ÞORSTEINSSON. | Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, sonar og bróður, LENHARÐS HELGASONAR. Helga Maggý Magnúsdóttir og böm. Helgi Tryggvason og systkini hins látna. ÚRVALSRÉTTIR á virkum dögum og hátiöum A matseðli vikunnar: STEIKT LIFUR BÆJARABJÚGU KINDAKJÖT KAUTASMÁSTEIK LIFRARKÆFA Á hverri dós er tillaga um jramreiðslu . KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ. Vélskóladeildin á Ákureyri (Framhald af blaðsíðu 1-). mjög svo hagkvæmu menntun- ar, sem skólinn veitir, og ekki hvað sízt nú tel ég þessa mennt un nauðsynlega, þar sem vél- væðingin hefur aukizt svo mjög, bæði hvað viðkemur sjáv arútvegi, landbúnaði og iðnaði, og hlýtur það því að liggja í augum uppi, að kynni af vélum, byggingu þeirra, meðferð, gæzlu og möguleikum í sam- bandi við notkun þeirra, verður æ snarari þáttur í daglegum störfum hvers og eins, hverju sem hann hefur framfæri sitt af. En það er ekki einvörðungu mótorvélin sem kemur hér til, heldur eru einnig kennd undir- stöðuatriði hvað viðkemur smíð um, rafmagni, fjarskiptafræði, eðlisfræði og hvað við kemur kæli- og frystikerfum. Ég vildi aðeins benda á þetta, því ég er ekki viss um að menn geri sér þetta ljóst almennt og einnig það, að hafi menn fullnægt sín- um námsþroska hvað þessu við kemur eftir þá fimm mánuði, sem fyrsta deildin (námskeið- ið) stendur yfir, þá geta þeir þar með látið náminu lokið, en að sjálfsögðu stendur skólinn þeim opinn til frekara náms. Hver eru inntökuskilyrði í skólann? Inntökuskilyrði í skólann eru þau, að umsækjandi hafi lokið tilskyldu barnaskólanámi, sé fullra 17 ára, kunni sund, og sýni heilbrigðisvottorð. Mér er sönn ánægja að því, að veita allar upplýsingar hvað viðkemur námi og öðru viðvíkj andi Vélskóla íslands. Umsóknaffrestur »er útrunn- inn. Umsóknarfresturinn er að vísu útrunninn, en ef menn yndu bráðan bug að því að láta skrá sig, þá er ekki alveg öll nótt úti enn. AM þakkar Bimi svörin og væntir þess að margar umsókn- ir berist um Vélskóladeild á Akureyri næstu daga. s. j. NEFNDAKJÖR NÝLEGA var kjörið í bygg- ingamefnd og hafnamefnd Akureyrar. Byggingamefnd er þannig skipuð: Haukur Haralds son, Gunnar Óskarsson, Árni Jónsson, Haukur Ámason, Stef án Reykjalín og Bjarni Einars- son bæjarstjóri, sem er formað- ur nefndarinnar. Hafnarnefnd: Stefán Þórarins son, Tryggvi Helgason, Árni Jónsson, Stefán Reykjalín og Zophonías Árnason. - Ekki fensið svar o (Framhald af blaðsíðu 5). ir rísi þá a. m. k. úr dvala og hyggi að hvað gjaldeyrisvara- sjóður vor sé gildvaxinn. Þetta virðist kannski útúrdúr fi’á við talinu. Þá skal viðurkermast að það er sök undirritaðs en ekki Ármanns. s. j. - H-DAGURINN (Framhald af blaðsíðu 8). vegum og götum um land allt áður en kl. slær 6 að morgni hins 26. maí. Hafnar eru nú þegar breyt- ingar á umferðarmerkjum og eru ökumenn og aðrir vegfar- endur beðnir að hafa það x huga. Þá segja sunnanblöð að búið sé að semja við Strætis- vagna Akureyrar um gx'eiðslur vegna breytinga á vagnakosti , ,héi\ Úr því sem komið er þýðit eigi að deila um nauðsyn á hægri handar akstri á íslandi, heldur hljóta allir að vera ákveðnir í því að stuðla að því að H-dagurinn verði án umferð arslysa um láhd allt. Steypu* styrktarjárn I I rii I lii I mm slippstodin H.F. PÓSTHÓLF 246 . SfMI (96)21300 . AKUREYRI 7

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.