Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 17.08.1967, Blaðsíða 8

Alþýðumaðurinn - 17.08.1967, Blaðsíða 8
Eru stundaðar ólöglegar veiðar á Eyjafirði og Þistilfirði? /WANALEGA mikill ýsuafli " var í Eyjafirði nú fyrir stuttu og fregnir berast um óvenju mikinn þorskafla í Þistil firði. Almannarómur segir óhik að, að liér sé stunduð rányrkja algerlega ólögleg lögum sam- kvæmt. Notaðar séu til veið- anna gamlar síldarnætur, sem leyfðar væru að vísu við ufsa- veiðar, en algerlega bannaðar á þorsk og ýsu. Samkvæmt lög- um verða þorsk- og ýsunætur að vera að möskvHstærð 110— 120 mm., en þessar síldarnætur munu vera með helmingi minni möskvastærð, og er altalað að bátarnir hafi fengið allt niður í smáseiði í nótina. Ef þetta er sannleikanum samkvæmt finnst Örslif í getraun AM um úrslit alþingiskosninga 1967 \1INNINGA fyrir réttustu " tölu hjá hverjum lista hlutu: Ingólfur Jónsson Hóla vegi 1, Dalvík, fyrir 1360 atkv. hjó A-lista. Jón G. Grétarsson Aðalstræti 18, Akureyri, fyrir 4520 atkv. hjá B-lista. Magnús Aðal- hjörnsson Byggðavegi 95, Akureyri og Unnur G. Jó- hannsdóttir Laxagötu 3, Ak- eyri, fyrir 2999 atkv. hjá D- Iista og Vignir Jónasson Grenivöllum 12, Akureyri, fyrir 1568 atkv. hjá G-lista. Fyrir réttustu tölur hjá öllum listum hlaut vinning Ilulda Stefánsdóttir Kletta- horg 3, Akureyri, með 1362 atkv. hjá A-lista, 4537 atkv. hjá B-Iista, 2990 atkv. hjá D-Iista og 1570 atkv. hjá G- lista. Vinninga skal vitja hjá Kolbeini Helgasyni í Kaup- félagi Verkamanna. Frímann Guðmundsson deildarstjóri fimmtugur TjANN 24. ágúst n. k. á Frí- mann Guðmundsson deild- arstjóri í Járn- og glervöru- deild KEA fimmtugsafmæli. Hann er fæddur að Vestara- Landi í Axarfirði og ólst þar upp hjá móður sinni. Hann Frímann Guðmundsson. stundaði nám við Alþýðuskól- ann á Laugarvatni og við Sam- vinnuskólann. Fyrsta septem- ber árið 1939 réðst hann starfs- maður til KEA og hefur starfað þar síðan, fyrst í Nýlenduvöru- deild, síðan' forstöðumaður Alaska og árið 1957 varð hann deildarstjóri í Járn- og gler- vörudeild KEA. Frímann kvæntist 11. maí 1940 Soffíu Guðmundsdóttur frá Sýðsta-Mói í Skagafirði og eiga þau hjón 5 börn, 4 syni og eina dóttur. Frímann mun dvelja á afmælisdegi sínum á Mallorka á Hótel Plava de Palma, en þar nýtur hann nú . sumarleyfis síns. AM úrnar Frímanni heilla í tilefni afmælisins og vill undir- ritaður þakka honum kynnin síðan hann tók við auglýsinga- söfnun fyrir AM. Frímann hef- ur aldrei dregið á svari hvort sem svarið hefur verið já eða nei og það er ómetanlegt manni sem er í tímahraki og því hefur nei Frímanns aldrei sært til þessa, og fáir verið dásamlegri. AM vonar að Frímann uni glað ur á afmælisdegi sínum undir suðrænni sól. AM skal trúa les- endum sínum fyrir því að Frí- mann hefur heitið undirrituð- um viðtali, þá er hann kemur heim frá Spániá. Lifðu svo lengi enn heill og glaður Frímann, og hafðu heila þökk fyrir kynnin. s. j. AM hér svo alvarlegt mál -á ferðum, að eigi megi þegja yfir slíku, og skorar hér með á Eggert G. Þorsteinsson, sjávar- útvegsmálaráðherra að hann láti fara fram rannsókn í þessu máli hið fyrsta. AM fullyrðir að enn muni sjávarútvegur verða aðalatvinnuvegur íslend inga um langan aldur,þrátt fyr- ir tilkomu „áls“ og „gúrs“ og því hljóti og verði þjóðin að líta það alvarlegum augum ef rán- yrkja á sér stað á uppeldis- stöðvum aðal nytjafiskja okkar. AM skorar sérstaklega á sjó- ínenn að hindra áframhaldandi rányrkju, hvort sem er á ýsu eða þorski úti fyrir Norðurlandi eða á síld á miðum sunnanlands. sCSXv: =s Bílveltur á Akureyri og á Múlavegi ASUNNUDAGINN valt Skodabifreið frá Dalvík í sjó fram sunnan Samkomuhúss ins á Akureyri. Valt hún niður hálfs annars metra bakka og hafnaði hún á hliðinni í sjón- um. Farþegar sluppu ómeiddir. Þá valt Moskvitsbifreið frá Olafsfirði á Múlavegi skammt norðan Sauðaness aðfaranótt sunnudags. Valt bíllinn fram af nær 3ja metra háum vegkanti niður í grýtta móa. Þrennt var í bifreiðinni og slapp fólkið með lítil meiðsli, en bíllinn er talinn gjörónýtur. ALÞYÐUmAÐURINN XXXVH. árg. — Akureyri, finuntudaginn 17. ágúst 1967 — 23. tbl. Einsöngur í Akureyrarkirkju T KVÖLD, fimmtudaginn 17. AM hvetur lesendur sína til A úgúst, klukkan 9 e. h. gefst þess að hlýða á hinn unga Akureyringum kostur á að söngvara og þakka honum með hlýða á ungan íslenzkan tenór- því á viðeigandi hátt fyrir kom söngvara, Hrein Líndal, halda Una norður. kirkjutónleika í Akureyrar- kirkju. Hreinn hefur stundað söng- nám á ítalíu síðan árið 1960 og lauk liann prófi frá Santa Sicilía tónlistarháskólanum í Róm árið 1964. Kennarar hans þar voru Giuseppi Morelli ! hljómsveitarstjóri og Mario !- Borrielle frægur baritonsöngv- ari er hefur sungið við hina frægu Scalaóperu í 15 ár. Áður en Hreinn Líndal lióf söngnám á ítalíu hafði hann verið tvö og hálft ár við nám hjá Maríu Markan söngkonu. Þetta eru aðrir opinberu tón- leikarnir er Hreinn heldur liér á landi ,en í vetur hafði hann tónlcika í Kristskirkju á Landa koti. Á föstudagskvöld heldur listamaðurinn tónleika í Húsa- víkurkirkju. Hreinn Líndal. ■<\VV Kreppuástand á Raufarliöfn S Raufarliöfn 14. ágúst. — G.Þ.Á. ÞAÐ koma fáar góðar fréttir frá Raufarhöfn núna og er ekki ofmælt að kreppuástand ríki í öllu atvinnu og fram- kvæmdalífi í þorpinu og veld- ur því að að síldin hefur brugð- izt okkur það sem af er sumri. í bræðslu hafa borizt aðeins rúm 19000 tonn, en engin branda á plönin sem öllum mun kunnugt um. Segja má, að hér sé atvinnu- leysi. Einkum skortir marga unglinga tilfinnanlega vinnu. — Menn stunda hér handfæri og hefur verið reytingsafli að und anförnu og gæftir allgóðar síð- ustu daga. Unnið hefur verið við félagsheimilið og má segja, að byggingunni sé senn lokið. Byrjað var aðeins á einu nýju íbúðarhúsi hér í sumar, en unnið er við ein fjögur, sem byrjað var á í fyrra. Ekki er ástandið glæsilegra í sveitum hér í kring. Er hey- skapur stutt á veg kominn, veldur því grasleysi, geysilegt kal og ótíð. Fyrstu sæmilegu þurrkarnir voru núna um helg- ina og náðu bændur hér í grenndinni ednhyerju upp. Ekki munu það vera neinar ýkjur, að heyfengur mun verða um 60% (Framhald á blaðsíðu 7). A\v N H-DAGURINN AKVEÐINN ÞANN 26. MAÍ NÆSTKOMANDI H-DAGUR, hvað er það? Jú, það er dagurinn, þá er hin umdeildu lög um hægri umferð ganga í gildi á íslandi. Dóms- málaráðuneytið hefur nú að til lögu framkvæmdanefndar hægri umferðar ákveðið að breytt skuli í hægri umferð kl. 6 að morgni hins 26. maí n. k. Ákvörðunin um hinn örlagaríka dag var tekin samkvæmt upp- lýsingum frá Valgarði Briem að vel athuguðu máli. Skólar verða þá yfirleitt búnir, en ráð- gert er að kennarar og eldri nemendur í framháldsskólum aðstoði við breytinguna. Ákveð ið mun vera að 10 mínútna um- ferðarstöðvun verði á öllum (Framhald á blaðsíðu 7).

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.