Alþýðumaðurinn - 16.11.1967, Side 1
Verzlið í sérverzlun.
Það tryggir gæðin.
TÓBAKSBÚÐIN
Brekkugötu 5 . Súni 12820
annast ferðalagið
Sími 1-29-50
FRAMKÖLLUN — KOPIERING
PEDROM YNDIR Akureyri
HAFNARSTRÆTI 85 . SÍMI (96)11520
ALÞYÐUMAÐURINN
XXXVII. árg. — Akureyri, íinimtudaginn 10. nóv. 1967 — 32. tbl.
AM liarmar úrslit
DIMMIR SKUGGAR YFIR ATVINNULIFI A AKUREYRI
BEÐID UM RlKISAÐSTOD VEGNA ERFIÐLEIKA
SlS VERKSMIDJANNA
1 NÆST SÍÐASTA bæjar-
stjómarfundi var eftirfar-
andi tillaga .frá atvinnumála-
nefnd Akureyrar samþykkt sam
hljóða:
„Vegna þeirra erfiðleika, sem
nú steðja að rekstri verksmiðja
SÍS á Akureyri og með hliðsjón
af liinni miklu þýðingu, sem
verksmiðjurnar hafa fyrir at-
vinnulíf bæjarins leggur at-
vinnumálanefnd Akureyrar til
við hæstvirta ríkisstjórn og lána
stofnanir, að allt verði gert, sem
nauðsynlegt og tiltækilegt er til
þess að tryggja áframhaldandi
rekstur verksmiðjanna.
Kemur þar til greina m. a.:
1. Uppbætur á útfluttar ullar-
og skinnavörur á svipaðan liátt
og er með ýmsar aðrar greinar
útflutningsframleiðslunnar.
2. Sérstök fyrirgreiðsla lána-
sjóða og annarra lánastofnana
vegna rekstrar eða hagræðing-
ar.
Viðræðumar án samkomulags
Yerkalýðsfélögin boða vinnustöðvun 1. des.
VIÐRÆÐUM 12 manna nefndar ASÍ og BSRB við ríkisstjórnina
um efnahagsaðgerðir lauk því miður án samkomulags, og hafn-
aði nefndin þeim breytingum er ríkisstjórnin tjáði sig fúsa að
gera á efnahagsfrumvarpi sínu. Engu að síður voru viðræðurnar
gagnlegar, og í fréttatilkynningu um þær er látið í það skína, að
frekari viðræður skulu fara fram um þau mál er til umræðu voru.
AM birtir hér á eftir opinbera fréttatilkynningu um viðræðurnar,
er birt var fyrir síðustu lielgi. Einnig er vikið að þehn í leiðara
blaðsins í dag.
=>000^
EINN SOTTI UM
GRUNDARÞING
AÐEINS einn prestur sótti um
Grundarþingaprestakall,
séra Bjartmar Kristjánsson
prestur að Mælifelli í Skaga-
firði, en séra Bjartmar er sem
kunnugt er bróðir séra Benja-
míns Kristjánssonar er lét af
prestsskap í Grundanþingi í
haust.
Tillögur 12 manna nefndarinnar
„Að boði ríkisstjómarinnar
hófust viðræður við 12 manna
sameiginlega nefnd frá Alþýðu
sambandi íslands og Bandalagi
starfsmanna ríkis og bæja hinn
24. oktöber sl. Á þeim fundi
varð samkomulag um að laun-
þegasamtökin skipuðu tvær
starfsnefndir til að kynna sér
umfang og eðli vandamálanna.
Þegar nefndirnar höfðu lokið
störfum, var haldinn annar
fundur 12 manna nefndarinnar
og fulltrúa ríkisstjómarinnar.
Lagði 12 manna nefndin þá
fram svohljóðandi svör:
1. Það er ófrávíkjanlegt af
nefndarinnar hálfu, að vísitala
á laun haldist óslitið.
2. Nefndin taldi, að auka
mætti verulega tekjur ríkis-
sjóðs með auknu skattaeftirliti
og betri skattheimtu.
3. Þá taldi nefndin unnt að
spara verulegar upphæðir á
gjaldabálki fjárlaga.
4. Það var krafa nefndarinn-
ar, að verðlagsákvæði yrðu
gerð víðtækari og verðlagseftir
lit bætt.
5. Þá lagði nefndin álierzlu á,
að innlend framleiðsla yrði efld,
til þess að auka atvinnu og
vinnutekjur og þar með tekjur
ríkissjóðs og til þess að halda
jafnvægi í þjóðarbúskapnum út
á við. í þessu skyni skyldi tak-
markaður innflutningur á þeim
(Framhald á blaðsíðu 5).
Verksmiðjur SÍS eru einn
stærsti vinnuveitandi á Akur-
eyri með 500—600 manna starfs
Iið. Væri það bæjarfélaginu
óbærilegt áfall, ef dregið væri
úr rekstri þeirra, eða þær lagð-
ar niður. Mundi þá erfitt að
framkvæma opinbera byggða-
stefnu, sem byggist á vaxandi
þýðingu Akureyrar.“
TUNNUVERKSMIÐJAN
VERÐI STARFRÆKT
ÁFRAM
Á sama fundi samþykkti bæj
arstjórnin einnig samhljóða
þessa tillögu atvinnumálanefnd
ar:
„Atvinnumálanefnd leggur til
við bæjarstjórn, að skora á Síld
arútvegsnefnd að starfrækja í
vetur tunnuverksmiðjuna á Ak
ureyri á líkan liátt og sl. vetur.
Atvinnumálanefnd leggur
mikla áherzlu á þessa áskorun,
þar sem rekstur tunnuverk-
smiðjunnar hefur verið fastur
liður í atvinnulífi bæjarins und
anfarin ár, og þeir starfsmenn,
sem þar hafa unnið munu flest-
ir gera ráð fyrir vinnu í verk-
smiðjunni 3—4 mánuði nú eftir
áramótin.“
(Framhald á blaðsíðu 5).
=S
Enginn a!!i
atvinnulíf
Dalvík 14. nóv. T. J.
GÆFTIR hafa verið mjög
stirðar að undanförnu, en
þótt bátar hafi komizt á sjó, hef
ur afli verið sama og enginn —
er því vægast sagt dauft yfir at-
vinnulífi á Dalvík um þessar
mundir og eftir horfum nú er
allt útlit fyrir að atvinnuleysi
ríki hér í vetur. Unnið er að
pæklun þeirrar síldar er söltuð
var 'hér í haust, og enn er ófar-
in. í dag var allmikil snjókoma
framyfir hádegi, og mun vera
orðið þungfært fyrir fólksbíla
innfyrir Hámundarstaðaháls.
s
KRISTNESHÆLI40 ARA
Þann 1. nóv. sl. varð Krist-
neshæli fertugt, og sama dag
var afmælisins minnzt í Kristneshæli. í Degi skrifaði Jórunn Ól-
afsdóttir frá Sörlastöðum merka grein, er greinir frá yfirlitssögu
þessa heilsuhælis Norðlendinga. Dagur, undir ritstjóm Jónasar
Þorbergssonar, var skær kyndill i baráttunni fyrir þessu þarfa
máli. — AM árnar Kristneshæli hamingju og heilla á þessum
tímamótum, þakkar öllum þeim vormönnum, er hafa lagt lið-
veizlu sína fram í baráttunni við hinn „hvíta dauða“. Og í tilefni
afmælisins sendir AM árnaðaróskir læknum, hjúkrunarliði, vist-
mönnum og síðast en ekki sízt Eiríki G. Brynjólfssjmi ráðsmanni1
Kristneshælis, en hann hefur gengt því starfi frá upphafi. Ljós-
myndin er fylgir þessari stuttu árnaðarósk AM er tekin af Jórunnj
Ólafsdóttur formanni Sjálfsvamar í Kristneshæli, en Sjálfsvöm
færði Kristneshæli að gjöf fagran ræðustól í afmælishófinu, en
gjöf Berklavarnar á Akureyri var vandaður grammófónn.
VARNARBARATTA ALÞÝÐUSTÉTTANNA
Allslierj arverkf all
1. desember?
Á RÁÐSTEFNU ASÍ er haldin var um síðustu helgi, var
samþykkt ályktun þar sem eindregið er mælt með því
við sambandsfélögin, að þau boði til verkfalls með nægileg-
um fyrirvara fyrir 1. des.
n. k. í tilefni þessa örlaga
ríku ákvörðunar hafði A1
þýðublaðið í Reykjavík
samband við Jón Sigurðs
son formann Sjómanna-
sambands íslands. Hann
segir: „Verkalýðshreyf-
ingin er ekki að fara fram
á kauphækkun eða kjara
bætur, heldur berst liún
fyrir því að halda sömu
launum og hún liefur
haft. ÞETTA ER EKKI
BARÁTTA FYRIR
BÆTTUM K J Ö R U M,
IIELDUR VARNAR-
BARÁTT A.“
Núverandi ritstjóri AM
gerir þessi orð Jóns Sig-
urðssonar að sínum, og
vill jafnframt vekja at-
hygli á að allir jafnaðarmenn í forystusveit verkalýðshreyf-
ingarmnar eru á sama máli og Jón, og í þeirri liðsveit er
gott að vera. Það eru engin svik við jafnaðarstefnu á ís-
lenzkri grund, vill AM fullyrða.
Jón Sigurðsson.
LEIÐARINN: GAGNLEG ATHUGUN Afmælisrabb við Sigurð Eiríksson, sjá bls. 5