Alþýðumaðurinn - 31.03.1969, Blaðsíða 5
Mér finnst það mjög líklegt að
við komum til Akureyrar aftur
Aðstaða barna við iðkrni körfubolta þarf að
batna, segir Einar Bollason
VIÐTAL AM í dag er við Einar
Bollason sigursælasta körfu-
knattleiksmann íslands um þess
ar mundir og hefur hann nú
nýverið sett fslandsmet í stiga-
skorun á fslandsmóti í körfu-
knattleik, skoraði hann samtals
318 stig í 10 leikjum eða 31.8
stig að meðaltali í leik. Körfu-
knattleikur er nú orðin vinsæl
Einar Bollason.
íþrótt á Akureyri, og mun eigi
ofmælt, að þar eigi Einar Bolla-
son stærstan hluta að máli. Ný-
afstaðinn glæsilegur sigur Þórs
stúlkna bera þjálfara sínum
gott vitni og mun starf Einars í
þágu íþróttamála á Akureyri
seint verða fullþakkað. Hér
verður ekki rakinn nema stutt-
lega glæsilegur íþróttaferill
Einars. Hann hóf iðkun í körfu-
knattleik þegar hann var 13 árál
gamall, fyrst í ÍR en síðan í
KR, og hefur leikið með því
liði 80 leiki en með Þór 30, og
í 16 landsleikjum hefur hann
tekið þátt í. Akureyringar vita
eftir dvöl Einars í bænum, hve
mikil lyftistöng hann hefur
verið í uppbyggingu körfuknatt
leiks hér, en hann hefur komið
víðar við í sambandi við þjálf-
arastörf og þess má gjaman
geta að hann Var fyrsti for-
maður KDf. Því miður fyrir
Akureyri hyggur Einar á suður
för nú í vor, en eigi skal
örvænta um að hann komi
norður aftur. En hér á eftir
kemur stutt viðtal við Einar. /
Ég hefi heyrt að þú sért að
yfirgefa Akureyri, Einar?
Já, það er rétt og aðalástæð-
an fyrir því er sú, að ég er
ákveðinn í því að ljúka háskóla
námi. Hefi í hyggju að ná BA
prófi í ensku og dönsku.
Þá hættirðu auðvitað að vera
Þórsari og verður á ný KR-
ingur?
Einar brosir. Já, ég mun
keppa með KR aftur. En maður
kemur í manns stað og allt út-
lit fyrir að KR haldi áfram að
veita Þór liðsinni. Nú standa
yfir samningar um að félagi
minn og jafnaldri í KR, Gutt-
ormur Olafsson, komi hingað
norður og gerist þjálfari hjá
Þór. Þetta tel ég góðar fréttir,
því Guttormur er ekki einungis
snjall körfuknattleiksmaður,
heldur og einnig ágætur hand-
knattleiks- og knattspyrnu-
maður. Við höfum starfað mik-
ið saman í KR bæði í keppni
og við þjálfun og einnig dóm-
arastörf. Ég tel Guttorm með
beztu og fjölhæfustu þjálfurum
sem völ er á og óska ég Þór til
hamingju með að fá að njóta
starfskrafta hans. Þess má geta
að Guttormur lýkur námi við
íþróttakennaraskóla íslands nú
í vor.
Mér fannst þetta góðar frétt-
ir, en spyr þó.
En megum við vænta þess að
þú komir til Akureyrar að námí
loknu?
Aldrei skal fullyrða um eitt
né neitt inn í framtíðina. En
eins og málin horfa við í dag
finnst mér það mjög líklegt. Við
hjónin höfum unað okkur hér
mjög vel og eignast marga góða
vini — og því myndi hvorugu
okkar vera það óljúft þótt leið-
ir okkar lægju aftur til Akur-
eyrar.
En hverju viltu ,spá um fram-
tíðargengi körfuknattleiks á
Akureyri?
Ég tel að Akureyringar hafi
mjög góð skilyrði til þess að
koma upp mjög sterkum körfu-
knattleiksliðum, svo framarlega
sem viðhorf ráðenda barnaskól-
anna breytist til hins betra í
sambandi við þessa íþrótt. En
eins og nú er virðist mér sjón-
hringur þeirra næsta þröngur.
Það sem ég á við er það, að ráð
endur barnaskólanna meina
nemendum sínum aðgang að
körfubolta- og handknattleiks-
æfingum. En ég vil taka það
skýrt fram og tel mig hafa
þekkingu til þess, að mjög er
nauðsynlegt að æfa börnin
strax frá 9—10 ára aldri ef
viðunandi árangur á að nást.
Ráðamenn bamaskóla í Reykja
vík og víðar t. d. í Borgamesi,
hafa fyrir löngu leyft nemend-
um sínum að stunda þessar
íþróttir og frekar talið þær já-
kvæðan þátt í uppeldisstarfi en
hið gagnstæða. Ég vil benda á
það að skólamenn hafa víðara
svið hvað skíðaíþróttina áhrær-
ir, enda þakka forystumenn
íþróttamála á Akureyri þann
frábæra árangur er Akureyr-
ingar hafa náð að undanförnu
í þessari íþróttagrein fyrst og
fremst því, hve þeir sem nú eru
á toppnum og halda uppi hróðri
Akureyrar í þessari íþrótt byrj-
uðu ungir að árum að þreyta
þolraun í snæviþöktum skiða-
brekkum. Ég vona að ráðendur
skólamála á Akureyri nái víð-
ari sjóndeildarhring innan tíð-
ar. Hópíþróttir glæða öðru frem
ur til samábyrgðar, þar sem
hver treystir öðrum og allir eru
ábyrgir fyrir sigri eða tapi, slík
samkennd í þjálfun og keppni
tel ég að sé bamaskólanemum
á Akureyri eigi til háska frem-
ur en börnum annars staðar á
landinu.
En hvemig liefir þér Hkað að
starfa að íþróttamálum á Akur-
eyri?
Það hefir verið mjög ánægju-
legt — en ég vona að ég móðgi
engan þó að ég taki samstarfið
við íslandsmeistara Þórs í
kvennaflokkum fram yfir allt
annað. Þar er á ferðinni ein-
hver samstilltasti og dugmesti
íþróttahópur, sem ég hefi
nokkurn tíman kynnzt.
En hvernig finnst þér aðstaða
hér til iðkunar á körfubolta?
Það vantar tilfinnanlega að-
stöðu utanhúss til iðkunar á
þessarri íþrótt og er það mjög
til baga og vonandi verður
fljótt bætt úr þessu. Þá væri
mjög óskandi að fyndist einhver
úrlausn varðandi gólf íþrótta-
skemmunnar. Gólfið er alltof
hart undir fæti og það veit hver
heilvita maður að svona hart
gólf er ekki hollt fyrir unglinga
með óþroskaða vöðva og beina-
uppbyggingu.
Viltu segja mér Einar, hver
er minnisstæðasti kappleikur-
inn er þú hefir tekið þátt í?
Ætli það sé ekki úrslitaleik-
ur KR og ÍR þegar KR varð í
fyrsta sinn íslandsmeistari í
körfuknattleik, það var árið
1965. En þá hafði ÍR verið alls-
ráðandi í körfuknattleik í 6 ár.
Er aðeins 1 mín. var til leiks-
loka stóðu leikar jafnir 53 stig
gegn 53, en þá tókst okkur að
skora eina körfu og höfðu ÍR-
ingar fullan hug á því að
kvitta fyrir. Einn liðsmaður ÍR
brunaði upp með hliðarlínu, en
þá bar svo við að einn ungur
og skapmikill liðsmaður KR í
áhorfendahópnum sló knöttinn
úr höndum hans og hafnaði
knötturinn langt fyrir utan
hliðarlínu. Dómari dæmdi um-
svifalaust innkast fyrir KR. ÍR-
ingar mótmæltu kröftuglega,
sem hafði það í för með sér að
dómari dæmdi tæknivíti og
Guttormur Ólafsson.
skoraði KR aftur úr báðum vít
unum og höfðu þar með fjög-
urra stiga forskot og úrslit þar
með ráðin.
Svo lokaorð Einar?
Akureyringar hafa á að skipa
í dag geisisterkum hópi efni-
legra körfuknattleiksmanna. Að
þessum unglingum verður að
hlúa með öllum ráðum og
hvetja þá til dáða. Ef rétt er á
málum haldið af forustumönn-
um beggja íþróttafélaganna,
Þórs og KLA, er það alls ekkert
fjarlægur draumur, að innan
fárra ára eignist Akureyri tvö
fyrstu deildar lið í körfuknatt-
leik. Efniviðurinn til þess er
nógur. Að lokum vil ég þakka
stjórn Þórs fyrir ágætt sam-
starf. Félag sem á við stjórnvöl
menn sem Harald Helgason og
Herbert Jónsson þarf engu að
kvíða varðandi framtíð sína.
AM þakkar Einari Bollasyni
fyrir rabbið og margir munu
taka undir þá ósk mína að leið
þeirra hjóna Einars Bollasonar
og Helgu Stefánsdóttur liggi á
nýjan leik til Akureyrar. Heilla
óskir fylgja þeim suður. s. j.
(Framhald af blaðsíðu 1)
ingu skipa. I öðru lagi er nauð-
synlegt að miðbærinn hafi skil-
yrði til þróunar og haldi hlutverki
sínu sem verzlunar- og félagsmið-
stöð bæjarins. í þriðja lagi verður
útlit bæjarins að vera eins fagurt
og kostur er, og síðast en ekki sízt,
kostnaður verður að vera sem
minnstur.
í þeim skipulagsuppdrætti, sem
iggur hér fyrir, er revnt að sam-
eina öll þessi sjónarmið svo sem
kostur er. Höfuðatriði í gerð
skipulagsins er, að hið eiginlega
hafnarsvæði er allt flutt austur fyr-
ir I-Ijalteyrargötu, en miðbænum
ætlað rúmt svæði vestan hennar.
Við þetta skapast afar góð og
skemmtileg vaxtarskilyrði fyrir
miðbæinn. Vaxtarrýmið er það
mikið, að þessi miðbær ætti að
geta þjónað 50000 manna bæ. En
vegna þess að miðbærinn er L-
laga verða fjarlægðir ekki miklar,
þetta á að geta verið göngu-mið-
bær. Framundan miðbænum, inn-
an í ellinu, er gert ráð fyrir stóru
opnu svæði, þar sem gert er ráð
fyrir þremur stórum opinberum
byggingum. Annars á þetta svæði
að vera eins grænt og aðstæður
leyfa. Tilgangurinn með þessu er,
að reyna að tryggja það að mið-
bær Akureyrar haldi því merki-
lega félagslega hlutverki, sem
hann hefur, og er eitt af sérkenn-
um Akureyrar. Mannfjöldinn í
miðbænum um lielgar og á tylli-
dögum er eitt af skemmtilegustu
sérkennum bæjarlífsins á Akur-
eyri. Það ætti ekki að þurfa að
fara eins fyrir Akureyri og Reykja-
vík, að missa miðbæinn.
A syðsta liluta uppfyllingar
þessarar er gert ráð fyrir viðlegu-
kanti fyrir skip, sem ekki flytja
vörur, skemmtiskip, varðskip og
svo iramvegis.
Vöruhöfnin er vinkilmyndaður
viðlegukantur, sunnan og austan
Oddeyrartanga. Fullyrða má, að
þarna fáist einhver bezta og ódýr-
asta vöruhöfn hér á landi. Höfn
þessa má byggja í áföngum eins
og henta þykir, en afköst liennar
geta orðið geysimikil. í austur-
hluta þessarar hafnar er gert ráð
fyrir aðstöðu til uppskipunar sem-
ents og korns.
Við togarabryggjuna er svo gert
ráð fyrir fiskhöfn, viðlegu fyrir
togarana sunnan bryggjunnar, en
að norðan hennar verði gerð lok-
uð kví fyrir fiskiskip, sem komi í
stað kvíarinnar við Torfunef.
A svæðinu á milli Togarabryggj-
unnar og vöruhafnarinnar eru svo
sýndir vaxtarmöguleikar.
A nyrzta hluta þessa hafnar-
svæðis er gert ráð fyrir aðstöðu
skipasmíða og skipaviðgerða, svo
----— ■ - -
- Mjög mikil efling
(Framhald af blaðsíðu 1).
skapast aðstæður til að stór-
bæta aðstöðu til framleiðslu á
muldu steinefni. Hafnarfram-
kvæmdirnar munu beinlínis
stuðla að því, að unnt verði að
óvggja hér upp öflugt þjón-
ustufyrirtæki, sem á að geta
aukið gæði bvgginga á Akur-
eyri og nágrenni og lækkað
byggingakostnað og einnig
orðið bænum sjálfum til mik-
ils hagræðis við sínar fram-
kvæmdir.
I-.. ...'J
og smábátahöfn þar sem hún nú
. er.
Utan þessa hafnarsvæðis er svo
gert ráð fyrir aðstöðu fyrir
skemmtibáta við eða í grennd við
Höpfnersbryggju og olíuhöfn í
Krossanesi.
Útlit er smekksatriði livers og
eins, en ég held að þetta skipulag
auki fegurð bæjarins. Reynt er að
láta Oddeyrina halda lögun sinni
svo sem verða má, og aðstaða til
gönguferða að útilífs á þessu svæði
er bætt. Nauðsynlegt er, að bygg-
ingarskilmálar við Strandgötuna
verði strangir, og verði þess gætt
er ég viss um að heildarmyndin
verður mjög fögur.
Eg vil nota þetta tcekijari lil að
leggja dherzlu á þýðingu hafnar-
innar fyrir Akureyri. Eigi þróun
bœjarins að vera örari i framtið-
inni en undanfarin 20 ár, er nauð-
synlegt að hér verði byggð uþþ ný-
tizku höfn. Akureyri hefur farið
mjög halloka i samkeþþninni við
höfuðborgina á þessu tímabilii og
tölur sý?ia að þróim verzlunar og
þjónustu hefur verið hœgari en
nemur landsmeðaltali. Eg er ekki
i minnsta vafa um, að það er
þjóðhagslega hagkiiœmt að Aliur-
eyri verði rneiri miðstöð verzlun-
ar og þjónustu en nií er, og þá
um leið vörudreifingarmiðstöð.
Við höfum verið minntir á þetta
nýlega, þar sem slcersta skiþafélag
landsins, sem einmitt nú er að
endurskiþuleggja rekstur sinn og
fcera til nýtímahorfs, hefur borið
fram eindregin tilmceli um að fá
hér fyrsta flokks aðstöðu til af-
greiðslu skiþa hér i höfninni. —
(Leturbr. AM.)
Staðsetning liafnarmannvirkja
er nauðsynleg í upphafi gerðar
aðalskipulags. Eðlilegan áfanga
tel ég næstan vera að skipuleggja
og staðla umferðar- eða gatnakerfi
bæjarins. Á sama tíma verði unn-
ið áfrarn að öðrum undirbúningi
aðalskipulagsins, svo sem að korta-
gerð og jarðvegsathugunum. Þeg-
ar gerð umferðarskipulagsins er
lokið er unnt t. d. að gera endan-
legt deiliskipulag fyrir miðbæinn.
En þessi störf munu taka sinn
tíma og kosta talsvert fé. Þvf vil
ég að síðustu nefna atriði, sem ég
tel mjög mikilsvert, en það er að
hér verði sem fyrst komið á fót
skipulagsskrifstofu, sem verði a.
m. k. að hluta deild frá Skipulags-
skrifstofu ríkisins. Skipulagsstörf-
um lýkur nefnilega aldrei. Þó
ákveðnir áfangar náist í slíku
starfi, þá eru viðhorí og ytri að-
stæður sífellt að breytast, og því
þarf skipulag að vera í sííelldri
endurskoðun.
Akureyri, 28. marz 1969.
Bjarni Einarsson.
—
- FRAMTÍÐARSKIPIJLAG AKUREYRAR
s