Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 06.03.1970, Qupperneq 2

Alþýðumaðurinn - 06.03.1970, Qupperneq 2
ÞROTTIR IÞROTTIR IÞHOTTIR IÞROTTIR IÞROTTIR HOLL ÍÞRÚTT 06 ÞROSKANDI Segir SVANDÍS HAUKSDÓTTIR íslandsmeistari á skíðum - og er liíin j)ó aðeins 14 ára að aldri Norðurlandsriðill í handknattleik: Tveir leikir í II. d. m helgina KÁ-Þór eg Þór-Dalvíkingar Á MORGUN, laugardag, kl. 17.30, leika KA og Þór síð- ari leik sinn í Norðurlands- riðli í handknattleik, 2. deild, í íþróttaskemmunni og verður eflaust um tvísýna keppni að ræða, því þetta getur orðið úrslitaleikurinn í riðlinum. Á sunnudag kl. 1 e. h. leika svo Þór og Dalvíking- ar sinn fyrri leik, því fyrri leikur félaganna var talinn ógildur og samþykkt að leika hann að nýju. — Dómarar verða Oli Ólsen og Óskar Einarsson frá Rvík. Búist er við spennandi keppni. Y etraríþróttahátíðin SVANDÍS HAUKSDÓTTIR gerði AM þann greiða að vera gestur blaðsins í sambandi við Vetrarhátíð þá í íþróttum er nú stendur yfir þessa viku á veg- um ÍSÍ. Hún kom ekki til að tíunda afrek sín eða þá sigra, er hún hefur unnið, heldu'r sem fulltrúi þeirrar æsku er margir kasta nú steini að og kalla glat- aða æsku. Undirritaður hefur fylgzt með sigrum Svandísar Hauksdóttur á undanförnum árum — og hafði löngun til að þekkja hana í sjón — og kynn- ast viðhorfi hennar til þessarar dásamlegu íþi'óttar, sem var minn unaður í æsku þótt út- búnaður væri þá aðeins léleg tábönd úr teygjanlegu leðri og í þann tíð var eigi um annað að ræða en bera skíðin upp brekk- urnar í dásamlegu skíðalandi, sem Skíðadalur hefur vissulega upp á að bjóða. í stórhríðinni sl. miðvikudag leit Svandís ipn til mín, prúð 14 ára stúlka, rjóð í kinnum, látlaus og fallegur unglingur er uppfylla vildi bín mína, sem sé að vera fulltrúi AM á Vetrar- hátíð ÍSÍ. Hvenær byrjaðir þú að stunda skíðaíþróttina Svandís? Ég man það varla, en ég tók þátt í Skíðalandsgöngunni 1962. Þá hefur þú verið 6 ára. Og svo síðan Svandís? Ég held að Magnús Guð- EINAR HELGASON ÞJÁLFAR VÖLSUNGA EINAR HELGASON, sem lengi hefur verið þjálfari ÍBA-liðsins á Akureyri, hefur nú verið ráð- inn þjálfari Völsunga á Húsa- vík. íþróttasíðan óskar Völs- ungum til hamingju með ráðn- ingu Einars. Hann mun ugg- laust ekki liggja á liði sínu sem þjálfari Völsunga — og fá þeir þar góðan liðskraft. NÝLEGA lauk sveitahrað- keppni B. A. Sigurvegari varð sveit Halldórs Helgasonar, hlaut 2467 stig. Auk Halldórs eru í sveitinni Ármann og Jó- hann Helgasynir, Alfreð Páls- son, Guðmundur Þorsteinsson og Baldvin Ólafsson. AUs tóku 11 sveitir þátt í keppninni. Röð efstu sveita er þessi: 1. Sv. Halldórs H. 2467 stig 2. — Harðar St. 2373 stig 3. — Mikaels J. 2249 stig 4. — Páls Pálss. 2235 stig 5. — Guðm. Guðl. 2202 stig 6. — Soffíu G. 2167 stig mundsson skíðakappi hafi fyrst og fremst stuðlað að því að kynna mér dásemd skíðaíþrótt- arinnar, en ég sótti námskeið er hann hólt um áramótin 1967 —1968. Ég á Magnúsi mikið að þakka. En hvenær tókstu þátt í fyrstu keppninni? Það var árið 1968. Og hvernig gekk? Ja, ég sleppti úr einu hliði, segir Svandís og brosir, en ég held að það hafi mest verið að Meðalárangur er 2160 stig. — Vegna íþróttahátíðar ÍSÍ hér á Akureyri var spiluð tvímenn- ingskeppni að Bjargi sl. þriðju- dagskvöld. Sigunægarar urðu þeir Baldur Árnason og Ragnar Steinbergsson, sem hlutu veg- lega veggskildi í verðlaun. Bridgemenn af Dalvík komu til þátttöku á mótinu. Á sunnudaginn 8. marz kl. 1.30 verður svo sveitahrað- keppni að Bjargi. Á þriðjudag- inn hefst einmenningskeppni B. A. Öllu spilafólki er heimil þátttaka. þakka Frímanni Gunnlaugssyni að ég fór að keppa, hann hvatti mig — og fyrir það er ég hon- ui.m þakklát — og ég hefi yndí og ánægju að vera á skíðum, hvort sem um keppni hefur ver ið að ræða eða bara að njóta yndisslunda upp í Hlíðarfjalli. Fall er fararheill Svandís. Eftir fyrstu- keppnina hefur þú verið sigursæl? Já, heppnin hefur verið msð mér oftast nær, en að sigra er aukaatriði, ánægjan er bara að vera á skíðum finnst mér núm- er eitt. Ég finn að Svandís er ekkert um það að ég fari að telja upp afrek hennar á sviði skíðaíþrótt arinnar til þessa og því sleppi ég því hér, enda þeir sem unna þeirri íþrótt kunnir sigrum •hennar. Stunda margar jafnöldrur þínar skíðaíþróttina? Mér finnst þær vera allt of fáar, það er mín skoðun að tóm stundum sé vart betur varið en skreppa á skíði, það er bæði holl og hressandi íþrótt — og ef ég væri nokkurs megnug þá myndi ég vilja hvetja sem flesta að kynnast yndi þeirrar íþrótt- ar. Það gnauðar stórhríð við glugga en gestur AM í sam- bandi við Vetrarhátíð ÍSÍ orkar sem sólskin. Þessi fallega 14 ára stúlka hefur eigi ofmetnazt af sigrum sínum. Mínar beztu hamingjuóskir skulu fylgja henni í keppni í skíðabraut og á öðrum vettvangi lífsins. — s.j. VETRARHÁTÍÐ ÍSÍ hefur stað ið yfir þessa viku. Eigi er þó hægt að segja að veðurguðirnir hafi verið sérstaklega hliðhollir, þó hefur 'hátíðin að mestu geng ið snurðulaust til þessa. Að vísu þurfti að fresta henni um einn dag, sökum óhagstæðs veðurs. En sl. sunnudag var hún sett á íþróttavellinum af Jens Sumar liðasyni formanni fþróttaráðs Akureyrar, og þar fluttu ávörp Gísli iHalldórsson íprseti ÍSÍ, Bragi SLgurjónsson forseti bæj- arstjórnar Akureyrar, Þórir Jónsson formaður SKÍ og Þor- steinn Einarsson íþróttafulltrúi ríkisins. Heillaóskaskeyti barst frá forseta íslands, dr. Kristjáni Eldjárn. í tilefni hátíðarinnar hefur verið gefið út fyrsta dagblaðið, sem út hefur komið á Akur- í SAMBANDI við Vetraríþrótta hátíð ÍSÍ er haldið 'hér á Akur- eyri skákmót og er hinn ungi og efnilegi skákmaður Guð- mundur Sigurjónsson þar með- al keppenda. Þessu skákmóti er nú að verða lokið því aðeins er eftir ein umferð. Staðan fyrir lokaumfei'ðina er þessi: 1. Guðmundur Sigurjónsson með 6 v., 2. Guðmundur Búa- son 3V2 v. og 1 biðskák, 3. Jón Björgvinsson 3 v., 4. Hjálmar Theodórsson 2V2 v. og 1 bið- skák, 5.—6. Árni Sigurjónsson og Viðar Stefánsson 2V2 v., 7. Jón Ingimarsson 2 v. og 8. Jóhann Snorrason með 1 v. í fyrsta flokki eru efstir og eyri (sumir segja annað) undir dugmikilli forystu Haraldar M. Sigurðssonar íþróttakenara. Þar sem þetta myndarlega dagblað hefur vonandi komið fyrir sjón- ir allflestra bæjarbúa og ná- granna rekur AM hér eigi úrslit í keppnisgreinum, heldur birtir hér á síðunni stutt spjall við Svandísi Hauksdóttur, en við það nafn munu allir kann- ast, sem áhuga hafa fyrir skíða- íþrótt. Mótsstjóri varðandi skíða- keppni er Hermann Sigtryggs- son, en skautakeppni Skjöldur Jónsson. Margan fróðleik má finna í þessu fyrsta eða öðru dagblaði, er gefið er út á Akureyri —og vill AM hvetja lesendur sína að kaupa og lesa það sér til fróð- leiks og skemmtunar. jafnir í 1.—3. sæti Atli Bene- diktsson, Bragi Pálmason og Örn Ragnarsson með 4 v., í 4.—5. sæti Áskell Kárason og Sveinbjörn Sigurðsson 3V2 v., 6. Hafsteinn Ágústsson 3 v., 7. —9. Tryggvi Pálsson, Friðgeir Sigurbjörnsson og Stefán Ragn arsson 2V2 v. og 10. Benedikt Sigfússon með V2 v. Lokaumferðin verður tefld að Hótel Varðborg á laugardaginn kl. 13.30. Hraðskák verður á sunnudag kl. 13.30 og er öllum heimil þátt taka. Þátttakendur eru beðnir að skrá sig að Hótel Varðboi'g á laugardaginn milli kl. 2—6. Skákstjóri. Guðmundur Sigurjónsson skákmeistari. Svandís Hauksdóttir. Ljósm.: Myndver. Mikil gróska í starfi BriclgeféL Akureyrar Staðan í skákmótinu á Akureyri

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.