Alþýðumaðurinn - 06.03.1970, Síða 7
Pálmi Friðriksson
MINNING
Aldrei verSur að öllu vitað
ævi langferða manns.
Liggur þó á hans víðavangi,
vegurinn kærleikans.
Öi'laga þræði enginn rekur
alla í hendi sér.
Drottinn gefur og drottinn
tekur.
Drottinn sé með þér.
Þessi orð úr eftirmælum um
þingeyskan bónda koma mér í
hug er ég minnist Pálma Frið-
rikssonar, Gránufélagsgötu 5 á
Akureyri. Hann kom úr sinni
síðustu sjóferð mánudaginn 16.
febrúar sl., þá lagði hann bátn-
u'm sínum í hinzta sinni. Nafni
hans og dóttursonur kom til
móts við hann, vafalaust hafa
afabörnin oft verið búin að bíða
hans í fjörunni og fagna honum,
þegar hann kom af sjónum, svo
náið var samband Pálma, þessa
góða manns, við niðja sína.
Heima var honum fagnað að
venju, því Pálmi Friðriksson
var svo mikill gæfumaður að
njóta hins sanna kærleika ást-
vina sinna til hinztu stundar,
og stundin var komin, hún kom
að kveldi síðasta starfsdagsins,
mild og hljóðlát kvaddi hún far
mann til ferðar án tafar, án
mikilla þjáninga. Umvafinn
kærleika sinnar góðu konu
kvaddi Páhni Friðriksson þenn
an heim eftir starfssamann og
farsælan ævidag, þessi hóværi
og hlédrægi maður var sannur
gæfumaður.
Pálmi Friðriksson var fædd-
ur að Naustum við Akureyri 29.
okt. árið 1900. Foreldrar hans
voru hjónin Friðrik Guðmunds
son frá Teigi, hinn mesti sæmd-
armaður, og Anna Guðmunds-
dóttir, bæði voru þau af ey-
firzkum ættum. Anna var göfug
kona, trúuð og bænrækin. Þau
hjón bjuggu í Arnarnesi og
fleiri bæjum í Arnarneshreppi,
þeim varð 6 barna auðið, dóttur
misstu þau unga, hin náðu full-
orðinsaldri og' lífið brosti við
þessum gjörvilega systkinahóp.
En örlagaþræði enginn maður
rekur, annar ræður þeim. Bræð
urnir þrír, Jónas, Andrés og
Guðmundur, deyja allir á bezta
aldri, miklir efnismenn. Frú
Sigríður 'kona Stefáns Ág.
Kristjánssonar forstjóra er nú
ein eftir af börnum Önnu og
Friðriks Guðmundssonar.
Pálmi Friðriksson fluttist
með foreldrum og systkinu|m
til Akureyrar árið 1925. Þar
varð á vegi ‘hans ung og falleg
stúlka, Guðrún Jóhannesdóttir
frá Patreksfirði, þau gengu í
hjónaband 18. desember 1926.
Skömmu síðar fluttu þau í
Gránufélagsgötu 5 og bjuggu
þar síðan. Þau eignuðust fjögur
börn: Jóhönnu Maríu, gifta
Matthíasi Einarssyni lögreglu-
þjóni, Andreu, gifta Bjarna
Jónssyni bifreiðastjóra, Guð-
bjöngu, hjúkrunarkona og hús-
freyja í Revkjavík, maður henn
ar er Gunnar M. Guðmundsson
hæstaréttarlögmaður, yngstur
er Jóhannes er les lög við Há-
skóla íslands, kvæntur Jóhönnu
Árnadóttur. — Barnabörnin eru
tíu.
Pálma var það mikil ham-
ingja að eignast svo ágæta
konu, sem frú Guðrún er, hún
stóð við hlið hans, fagnaði heim
komu hans hverju sinni, bjó
honum og börnum þei.rra hið
fegursta 'heimili, þvi svo verk-
hæf kona er Guðrún, að segja
má að allt leiki í höndum
'hennai'.
Sameiginlega vöktu þau hjón
yfir velferð og þroska barna
sinna og barnabarna. Börnin
öll bera það með sér að hafa
hlotið hið bezta uppeldi á menn
ingarheimili, þai' sem foreldr-
arnir og hin góða amma vöktu
yfir velferð þeirra, báðu fyrir
þeim og vísuðu til vegar. Það
er trú mín að sú leiðsögn nái
lengra en til barnabarnanna,
þau munu kenna sínum böm-
um og þannig rætast fyrirheitin
og bænir trúaðra.
Pálmi Friðriksson var fríður
maður og vel á sig kominn, það
var mikil hýra í svipnum, hann
var gamansamur, smá glettinn
en hlédrægur og naut sín bezt
heima, þar var allt sem hann
unni.
Pálmi var kvaddur hinztu
kveðju frá Akureyrarkirkju 24.
febrúar að viðstöddu fjölmenni.
Þó Pálmi Friðriksson sé horf-
inn sjónum þá geymist mynd
hans og minning hjá ástvinum
hans öllum og vinum.
Æðruleysi dugur og dreng-
skapur er arfurinn dýri, sem
ekkert fær grandað og það er
góð arfleifð.
- HEYRT - SPURT - SÉÐ - HLERAÐ ...
(Framhald af blaðsíðu 4).
kcma út seinnipart vikunnar,
t. d. á föstudögum, birtu sjón-
varpsdagskrána í heild fyrir
næstkomandi viku og ætti sjón
varpið aS hafa ráð á að greiða
blöðunum vel fyrir. Blöðin
fengju þá líka eitthvað af þeim
auglýsingum, sem hin óstund-
vísa og ruglingslega sjónvarps-
dagskrá hefir frá þeim tekið.
Það sem mest er þó um vert,
er það, að með þessu móti
fengju menn dagskrána borna
i húsin með blöðunum.
Einn af mörgum.
P. s. Orðið er laust hér í þætt
inum ef óskað verður. — s. j.
TVÖFÖLD ÚRSLIT.
Bæði Tíminn og Dagur birta
tvennskonar úrslit varðandi
prófkjör Framsóknar á Akur-
eyri. í báðum útreikningum sézt
Alúðarþakkir til allra þeirra, er sýndu okkur sam-
úð og heiðruðu minningu
PÁLMA FRIÐRIKSSONAR,
Gránufélagsgötu 5, Akureyri.
Guðrún Jóhannesdóttir,
Jóhanna M. Pálmadóttir, Matthías Einarsson,
Andrea Pálmadóttir, Bjami Jónsson,
Guðbjörg Pálmadóttir, Gunnar M. Guðmundss.,
Jóhannes Pálmason, Jóhanna Ámadóttir,
barnabörn og systir hins látna.
EH
að sigurvegari Framsóknar í
síðustu kosningum, Arnþór Þor
steinsson, er fallinn kandidat í
herbúðmn maddömunnar, en
Stebbi okkar Reykjalín er sagð
ur í 4. sæti í fyrri klásúlunni,
en í öðru í þeirri seinni. Spurn-
ing AM er: Hvers vegna er
maddaman að leika tveim
skjöldum? Því að enginn mun
trúa því, að stjórnendur próf-
kjörsins hafi eigi sett ákveðnar
reglur varðandi talningu. AM
hélt að núverandi formaður
Framsóknarflokksins á Akur-
eyri kynni betur á lykil áróðurá
tækninnar.
TVÖFÖLD FRAMKVÆMDA-
STJÓRALAUN.
Hver eru laun framkvæmda-
stjóra Slippstöðvarinnar, ásamt
fríðindum? Mér skilst nú að
valdarúinn maður eigi að njóta
sömu kjara varðandi kaup og
hlunnindi. Er nokkuð óréttlátt
að spyrja eftir þessu? — Akur-
eyringur.
-AXARSKAFT EÐA...
(Framhald af blaðsíðu 2).
þeirra smekklegur og öruggur.
Að lokum er rétt að tjá bæjar-
búum það, að ef þá grípur löng
un til að hlæja hjartanlega, þá
eiga þeir erindi á sýningu
Menntaskólanema. Leikurinn
er bráðskemmtilegur frá upp-
hafi til enda og óvíst að betur
hafi tekizt til í leikstjórn Jór-
unnar frá Sörlastöðum.
Með þökk fyrir sýninguna.
SJÖB.
- Stokkað upp í Slipp
(Framhald af blaðsíðu 1).
ólfi Árnasyni og Þorvaldi Jóns-
syni:
„Bæjarstjórn Akureyrar sam
þykkir að starfsmenn Slipp-
stöðvarinnar h.f. tilnefni annan
stjórnarmann Akureyrarbæjar
í stjórn Slippstöðvarinnar h.f.
og varamann hans.“
Tillagan var felld með 8 at-
kvæðurn gegn 3.
Bæjarfulltrúi Jakob Frí-
mannsson bar fram ósk um, að
kosningu varamanna í stjórn
Slippstöðvarinnar h.f. yi'ði frest
að til næsta bæj arstj órnarfund-
ar.
Forseti tók ósk þessa til
greina án þess að mótmælum
væri hreyft.
Þá var óskað eftir tillögum
um stjórnanmenn, og komu
fram eftirtaldir þrír listar, sem
forseti auðkenndi með bókstöf-
um:
A-listi: Bjarni Einarsson,
bæjarstjóri og Jón G. Sólnes,
bankastjóri.
B-listi: Alfreð Möller, for-
stjóri og til vara Árni Magnús-
son.
C-listi: Birgir Þórhallsson,
skipasmíðameistari.
Við atkvæðagreiðslu féllu at-
kvæði þannig:
A-listi hlaut 7 atkvæði.
B-listi hlaut 3 atkvæði.
C-listi hlaut 1 atkvæði.
Forseti lýsti réttkjörna sem
aðalmenn í stjórn Slippstöðvar-
innar hi. þá Bjama Einarsson
og Jón G. Sólnes.“
Á næsta bæjarstjórnarfundi
voru þeir Stefán Reykjalín og
Tómas Steingrímsson kjörnir
varamenn bæjarins af sama
meirihluta.
Á öðrum stað í blaðinu eru
birt nöfn þeirra er nú skipa
stjórn Slippstöðvarinnar h.f.
Eftirmáli AM.
AM hefur hér á ' undan birt
hlutlausa bókun úr dagskrá
bæjarráðs og bæjarstjórnar um
mál þetta, lesendum til fróð-
leiks — og einnig til utmhugs-
unar. AM mun eigi gagnrýna
að 'bæjarstjórinn skyldi af hálfu
bæjarins vera kjörinn í stjórn
hins nýja hlutafélags um Slipp-
stöðina h.f., en vill gagnrýna
og draga í efa að kosning Jóns
G. Sólnes sé lögleg, ef taka á
mark á bankalögum þeim, sem
í gildi eru. Jafnframt ætlar AM
í engu að vanmeta starf Skapta
Áskelssonar — og kemur það
sjónarmið einnig skýrt fram í
tillögu jafnaðarmanna og Ing-
ólfs Árnasonar, en telur það
nokkra ofrausn af hálfu bæjar-
félagsins, um leið og hann er
gerður valdalaus að tryggja
honum há fram’kvæmdastjóra-
laun, auk fríðinda, einhliða,
áður en hin nýja stjórn fyrir-
tækisins er fullskipuð. En íhald
og Framsókn virðast vera í inni
legum faðmlögum um þessar
mundir — og er það allgóður
vegvísir fyrir kjósendur bæjar-
ins í bæjarstjórnarkosningun-
um í vór. Þó finnst blaðinu það
gegna enn meii'i furðu að verka
lýðsforinginn Jón Ingimarsson
skyldi hlaupa til hjálpar hinu
tvíhöfða íhaldi í 'bænum til varn
ar því, að annar starfsmaður í
Slippstöðinni yrði valinn úr
hópi starfsmanna Slippstöðvar-
innar — og vill AM spyrja hann
í fullri vinsemd hvort hann 'hafi
haft samráð við frú Soffíu tón-
listargagnrýnanda Dags hvað
þetta snertir.
Nýkomið!
Eldhúshnífasett
Steikarsett
Flöskuopnarar
Tertuspaðar
Ostaskerar
Kökuföt
o. m. fl. af
búsáhöldum
KAUPFÉLA6
VERKAMANNA
KJÖRBÚÐ
Akureyrardeild KEA
heldur AÐALFUND sinn að Ilótel KEA íinimtu-
daginn 12. marz.og hefst hann kl. 20.30.
Kosnir verða á fundinum:
1. Deildarstjóri til þriggja ára.
2. Tveir menn í deildarstjórn til þriggja ára og
tveir varamenn til eins árs.
3. Einn maðtir í félagsráð til eins árs og einn til
vara.
4. Áttatíu og níu fulltrúar á aðalfund KEA og
þrjátíu til vara.
Listum til fulltrúakjörs ber að skila til deilda-
stjórna í síðasta lagi mánudaginn 9. marz n.k.
DEILD ARST J ÓRNIN.