Alþýðumaðurinn - 18.11.1971, Page 3
Alyktun 12.þings AN um atvinnumól
sambands Norðurlands og Fjórð
ungssambands Norðlendinga
varðandi uppbyggingu atvinnu-
lífsins á sambandssvæðinu.
\
Á ÞEIM tveimur árum, sem lið-
in eru frá því 11. þing Alþýðu.
sambands Norðurlands var hald-
ið, haustið 1969, hafa ekki verið
gerðar neinar meiriháttar að-
gerðir í uppbyggjngu atvinnu-
veganna á Norðurlandi.
Atvinnuleysi er eins og áður
viðvarandi hjá fjölda verka-
fólks, sérstaklega yfir vetrartím-
ann, í flestum byggðarlögum við
sjávarsíðuna. Atvinnuleysi er
enn mikið meira í Norðurlandi
og atvinnulífið óöruggara en
annars staðar á landinu.
Fiskveiðar og fiskiðnaður er
langveigamesti þátturinn í at-
vinnulífinu og hlýtur að verða
það a. m. k. í næstu framtíö.
Sjósókn og aflabrögð ráða því
úrslitum um atvinnu og afkomu
verkalýðsins í flestum bæjum og
kauptúnum í landsfjórðungnum.
Aflábrögð mega teljast í með-
allagi við Norðurland sl. tvö ár.
En frystihúsin, sem eru 15 tals-
ins á svæðinu — og eru þýðing-
armestu vinnustöðvarnar — búa
þó við mikinn hráefnisskort yf-
ir vetrarmánuðina.
Á sl. 10 til 12 árum hefur nær
öll fjárfesting í sjávarútvegi
norðanlands verið bundin í kaup
um á rúmlega 20 stórum fiski-
skipum, sem hentuðu til síld-
veiða. Um 10 þessara skipa
stunda enn að jafnaöi síldveiðar
(í Norðursjó) mestan hluta árs
og loðnuveiðar við Suðurland
síðari hluta vetrar.
Útgerð þessara skipa hefur
því ekki umtalsverða þýðingu
fyrir atvinnulífið á Norðurlandi,
nema fyr þá sjómenn, sem á skip
unum starfa.
Mikilvægasta útgerðin fyrir
öflun hráefnis fyrir flest frysti-
húsin eru veiðar um 20 allstórra
togskipa, sem að staðaldri
stunda togveiðar við Norður-
land og leggja afla sinn að mestu
upp til vinnslu hjá frystihúsun-
um, og auk þess afli togaranna
5, sem einnig leggja að mestu
upp til vinnslu innanlands.
Auk þess er afli smábátaút-
vegsins sums staðar mikilvægur
þáttur í hráefnisöfluninni og at-
vinnulífinu. En þessi sjósókn á
smábátum er mjög háð veður-
fari og erfið yfir hörðustu vetr-
armánuðina.
Um endurnýjun skipastólsins
á Norðurlandi er það helzt að
segja, að á síöustu þremur árum
hafa verið keypt 7 nýleg togskip,
sem komiö hafa að miklu gagni
fyrir viðkomandi staði og aflað
allvel, en á sama tíma hafa álíka
mörg skip veriö seld í burtu,
flest þeirra þó nokkru minni en
þau skip, sem keypt hafa veriö.
í sam'bandi við endurnýjun
togaranna hefur ekkert komizt
til framkvæmda annaÖ en það,
að samið hefur verið um smíði
á einu skipi, ca. 1000 rúmlesta,
fyrir Akureyri, við Slippstöðina
þar, en mikil óvissa er enn um,
hvað í því efni gerist.
Togaramir fimm eru nú allir
á fallanda fæti, 21 til 25 ára
gamlir og orðnir dýrir í viðhaldi
og varla rekstrarhæfir lengur.
Fyrirhuguð eru kaup á nýleg-
um skottogara, um 650 rúmlesta,
til Akureyrar og nýlega hefur
verið samið um smíði á tveim-ur
nýjum skuttogurum, 400 til 500
rúmlesta, fyrir útgerðarfyrirtæki
á Siglufirði og Dalvík.
Auk þessara skipakaupa hafa
verið byggðir nokkrir litlir fiski
-bátar til útgerðar frá Norður-
landi.
í iðnaðarstarfseminni hefur
þróunin gengið hægt á síðastl.
tveggja ára tímabili og starfs-
fólki í þeirri grein lítið fjölgað.
Nýjar skinnaverksmiðjur hafa
þó verið byggðar á Akureyri og
Sauöárkróki. En aukning fram-
leiðslu og fjölgun starfsfólks hef
ur farið hægt vegna sölutregðu
á framleiðsluvörunum. Aðrar
meiri háttar framkvæmdir til
aukningar á framleiðslu iðnað-
arvara á Norðurlandi er varla
um að ræða.
Þingið telur, að sú endurnýj-
un atvinnutækja og uppbygging
í atvinnuvegunum á Norður.
landi, sem átt hefur sér stað síð-
ustu árin, sé algerlega ófullnægj-
andi til að sigrast verði á -hinu
illræmda atvinnuleysi, sem þjak-
að hefur þessi byggðarlög um
langt árabil og bitnar sérstak-
lega á verkamannaheimilunum,
jafnframt því sem þetta ástand
hrekur árlega fjölda fólks til
burtflutnings frá Norðurlandi til
þéttbýlissvæðanna við Faxa-
flóa.
Til þess að útrýma atvinnu-
leysi og skapa nokkurn veginn
öryggi í atvinnulífinu, eftir því
sem kostur er, vill þingið leggja
áherzlu á, að eftirfarandi ráð.
stafanir komi til framkvæmda á
næstu tveimur til þremur árum:
1. Að hraðaö verði svo sem
hægt er virkjunarframkvæmdum
á NorÖurlandi: Orkusvæðin
tengd saman og aukin með há-
spennulínu til Þistilfjarðar-
hyggða, svo ávallt verði fyrir
hendi næg raforka við sem
lægstu verði á ÖLLU svæðinu.
2. Að togararnir verði endur-
nýjaðir á næstu 2—3 árum með
nýjum skipum, sem svara í öll-
um 'búnaði að gerð kröfum tím-
ans og 'henti vel til veiða hvar
sem er við landiö, og þá með
það fyrir augum, að þeir landi
aflanum fyrst og fremst til
vinnslu á Norðurlandi.
3. AS veitt verði sérstök fyrir-
greiösla um lánsfé til útgerðar.
fyrirtækja á Norðurlandi til að
auka útveginn með 4—5 nýjum
skut-togbátum árlega næstu 2
árin, enda verði þeir af hag-
kvæmri stærð og gerð til að afla
hráefnis fyrir frystihúsin á við-
komandi stöðum.
4. AS veitt verði nauösynleg
lán til óhj ákvæmilegra stórum-
'bóta á frystihúsunum á Norður-
landi, svo að þau geti sem fyrst
orÖið svo vel úr garði gerð, að
þau svari kröfum tímans um
hreinlæti og hollustuhætti, eins
og til er ætlazt um fullkomna
matvælaframleiðslu.
5. Að kappsamlega verði unnið
að markaðsleit fyrir niðursoðn-
ar og niðurlagðar sjávarafurð.
ir, svo að sú framleiðslugrein
geti stóraukizt á Norðurlandi og
veitt fleira fólki atvinnu en ver-
ið hefur og þjóðarbúinu auknar
gjaldeyristekjur.
6. Að gerðar verði ráðstafan-
ir til að bæta uppsátur og að-
stöðu til viðgerða hinna smærri
fiskibáta á þeim stöðum, þar
sem veruleg bátaútgerð er, og
jafnframt tl nýsmíði fiskibáta.
Með þessum hætli verði keppt
að því að gera við'hald 'báta og
véla ódýrara en veriö hefur.
Unnið verði að sem beztu skipu-
lagi á nýsmíði fiskibáta.
7. Að 'hraðað verði fullkom-
inni rannsókn á starfsemi Slipp-
stöðvarinnar á Akureyri —
bæði fj árhagslegri og tæknilegri
— og gengið úr skugga um,
hvernig bezt verði 'hagað áfram.
haldandi skipasmíðum í stöð-
inni.
8. AS aukin verði, og styrkt
af ríkinu, víðtæk markaðsleit
fyrir iðnaðarvöruframleiðsluna,
svo sem skinna- og ullarvörur
o. fl. Jafnframt verði felldir nið-
ur eða stórlækkaðir tollar af að-
keyptu hráefni og vélum til iðn-
aðarins. — Gert verði sérstakt
átak til að komiö verði upp létt-
um iðnaöi á hverjum stað, sem
hentaÖ geti sérstaklega atvinnu.
þörfum þeirra, sem ekki geta
unnið erfiðisvinnu.
9. AS á næstu árum verði kom
ið upp heykögglaverksmiöjum
á a: m. k. tveimur stöðum á
Norðurlandi, og verði þeim
valdir staðir, þar sem skilyröi
eru góð til grasræktar í stórum
stfl. Verði með þessu stefnt að
því, að í landinu sjálfu verði
framleitt sem mest af því fóðri,
sem þarf til innanlandsnotkunar.
Fagnar þingið frumkvæði Kaup-
félags Þingeyinga um byggingu
slíkrar verksmiðju og lýsir
fyllsta stuðningi við framtak
þess í þessu máli.
10. Að ríkið setji á stofn og
reki fiskiræktarstöð á Norður-
landi, og verði henni valinn stað
ur, þar sem skilyrði eru talin
bezt til þeirrar starfsemi.
11. Að gert verði stórt átak í
vegamálum Norðurlands með
undirbyggingu varanlegra vega,
fjárframlög verði aukin og þar
með bætt fyrir vanrækslu í vega-
málum landsfjórðungsins mörg
undanfarin ár. Þar á meðal
verði þegar á næsta sumri lagð-
ur góður vegur, er tengi Axar-
fjarðar- og Þistilfjarðarbyggðir.
12. Að haldið verði áfram við
nauðsynlegar framkvæmdir í
hafnamálum, með auknum fjár.
veitingum og lánsútvegunum,
svo að hafnimar verði sem fyrst
sæmilega öruggar fyrir fiski-
flotann og tafalausa afgreiðslu
farmskipa.
Þingið lýsir eindregnum á-
huga fyrir samvinnu Alþýðu-
Þingið ítrekar samþykktir
fyrri sambandsþinga um skipun
atvinnumálanefndar Norður-
lands.
Frá Sjálfsbjörg
JÓLABAZAR félagsins verður
sunnudaginn 12. desember í AI-
þýðuhúsinu, og hefst kl. 3 e. h.
Félagar og velunnarar, sem
myndu vilja styrkja félagið með
því að gefa muni á bazarinn eru
vinsamlega 'beðnir að koma
þeim í Bjarg (skrifstofuna). Op-
ið alla daga nema laugardaga.
Með fyrirfram þökk.
Sjálfsbjörg.
- Málefni Slippstöðvarinnar
Framhald af bls. 2.
arsviði? Hvaðan átti yfirstjórn verkmenntarinn-
ar að koma, sú sem allt hlaut og hlýtur að byggj
á við þvílíkt fyrirtæki?
í greinargerð Slippstöðvarinnar, sem í upp-
hafi getur, er látið í veðri vaka, að gágnrýnisJ
orðrómur sá, sem vissulega er uppi um afköst
Slippstöðvarinnar, beinist gegn iðnaðarmönn-
^um þeim, sem í Slippstöðinni vinna. Þetta er al-
veg ástæðulaust. Akureyrskir iðnaðarmenn eru
landsþekktir fyrir iðnmennt sína. En hitt er rétt,
að það gengur þrálátur orðrómur um, að yfir-
stjórnin sé í ólestri, og hér er það, sem velunnar-
ar Slippstöðvarinnar setja fingurinn á og segja:
Þetta þarf að laga og hér má ekki endurtaka
kákið, þegar skipt var um síðast: Verkfræðileg
og fagleg yfirstjórn verður að komast í lag og
verða í lagi, annars er Slippstöðin dauðadæmd
sem mikilsverð verkstöð, og slíkt mó ekki ske.
Br. S.
Sólþurrkaður
Saltfiskur
Svartfugl
(sviðinn)
KAUPFÉLAG VERKAMANNA
KJÖRBÚÐ OG ÚTIBÚ
ALÞÝÐUMAÐURINN — 3