Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 18.11.1971, Síða 4

Alþýðumaðurinn - 18.11.1971, Síða 4
Bóki enntaþáttur Framhald af bls. 6. tryggng okkar fyrir lögun kassa fólgin í samanburði við aðrar rúmmyndir. Eins er um önnur mannanna verk. Sérkenni þeirra koma bezt { ljós með saman- burði, sömuleiðis samkenni. Rétt eins og furðufugl vekti enga at- hygli innan um heilt ger slíkra fugla, verður hið fáránlega eðli- legt í fáránleikanum. Eða eins og Otto Jespersen hafði sér að leiðarsteini um öldurót málfræð innar: Communis error facit jus — Sameinleg della skapar rétt. Nú um nokkurt skeið hefur það verið tízka meðal ungra skálda að hafna öllu ytra skrauti, ná fram meiri einfaldleika í ljóða- formi, varpa af sér „rósfjötrum rímsins“. Einhver galgenvogel, líklega Steinn Steinar, sagði ein hvern tíma, að alveg eins og rím ið eitt skapaði aldrei ljóð, þá skapaði rímleysið eitt aldrei Ijóð. Virðast sum ung skáld- menni seint ætla að fá þetta í kollinn. Orð má nota eins og liti í rnynd eða tóna í lagverki. Orð hafa sitt eigið yfirbragð, sem á stundum er óháð merkingu þeirra og kemur einna skýrast { ljós, þegar orðin raða sér sam- an. Orð sem ein útaf fyrir sig geta verið kröftug og þróttmikil verða aumasta lágkúra, í óhófi notuð oS af bjálfum beitt. Því miður hefur ljóðlist síðustu tíu ára einkennzt um of af ótta við orðin, innhverfi, vangaveltum, sem eru svo persónubundnar og lausar við að geta snert nokkra strengi annars en semjanda síns, eins konar eintal sálarinnar, sem fer í hring í kringum sjálft sig. Bók Ragnhildar Ófeigsdóttur er mjög þessu marki 'brennd. Hún er að miklu leyti eintal sálar- innar. Smáatvik dregin upp án þess málinu sé beitt til myndsköp unar. Dæmi: Ég teygi fót minn til hinmins, sagði skáldið, er sat við fætur ömmu sinnar. — Ég teygi fót minn til himins. Þetta er að vísu einna greini- legasta dæmið um persónubund. ið atvik, ófært um að skapa nokk urt viðbragð lesanda, dautt — andvana. Hins vegar eru einnig til í bókinni rómantfsk stélpu- ljóð eins og Gullharpan, þar sem henni tekst að slá á ljóslita, ang- urværa strengi daufleitra orða, svo sem Ijóðið Gullharpan ber með sér. Óminnisland Aðalsteins Ing- ólfssonar er af allt öðru sauða- húsi, 'hressileg andstæða hinnar bókarinnar. Kemur þar hvort tveggja til að höfundur er þrosk. aðri, markvissari, hetur máli far inn, hefur það næmi fyrir mynd. um, sem var helzti kostur sagna- ritaranna gömlu. Stóru ljóðin, Sjávarmál og Amoretti eru ef til vill ekki með því bezta, sem gert hefur verið í ljóðlist sfðustu tuttugu ára, en vafalítið með því bezta, sem samið hefur verið allra síðustu ár. Þar er að vísu ekkert sagt um gæði þessara ljóða, því hitt er svo lélegt. Báð- ir ljóðaflokkamir eru afar vel unnir hvað mál snertir, orð eru þar notuð við hæfi hugsunar, ekki út í 'bláinn eins og af tilvilj. un, heldur til myndsköpunar. Þaú eru innhverf en ekki fram- andi, ekki auðskilin en skynjan. leg, 'höfða meir til skynjunar en skynsemi án þess þó að vera svo náttúrulaus, að þau verði ekki ekki skynsemi numin. Einna bezt kemur máltilfinning 'höfund ar fram í tilfinningu fyrix hrynj- andi og stuðlum á stöku stað. Athyglisverð smáljóð eru Vinnu slys og Hjördís. Vafalaust á Að- alsteinn Ingólfsson aftur eftir að láta til sfn 'heyra. Hann gæti orð ið verðugur oddviti ráðvilltrar kaldastríðskynslóðar. >00^---- Stffikkn M Mmjasdfnii d U Framhald af bls. 1. stjórn og fulltrúaráð, sem 'kosið er af hinum þremur eignaraðil- um þess. A nýafstöðnum árs- fundi fulltrúaráðsins gerði stjórnin grein fyrir hag safnsins og einkum hinni brýnu húsnæð. isþörf þess. Lagði 'hún fram til- löguuppdrátt að húsi, sem nægja mundi um alllangt skeið fram í tímann. Margir fulltrúanna tóku til máls, og ríkti einhugur á fundinum um málið og sam- þykkt var þar einróma tillaga stjórnarinnar að skora á eigend. urna að hefjast handa um fjár- öflun og framkvæmdir um 'bygg- ingu safn'húss þegar á næsta ári. Kostnaðaráætlun er ekki fyrir hendi, en ef farið yrði eftir til. löguuppdrætt þem, sem fram var lagður, er ólíklegt að bygging þessi mundi 'kosta meira en 4—5 íburðarlausar einstaklingsíbúð- ir. Verður ekki séð, að slík fram lög ættu að verða ofurefli jafn- voldugum aðilum, og 'hér er um að ræða, ekki sízt þar sem ætla mætti að fé fengist að Iáni, svo greiðslum mætti dreifa á nokk. ur ár. Líklegt er og, að ríkið mundi leggja eitthvað af mörk- um, svo sem það hefir gert á öðr um stöðum. Allt veltur því á vilj a og áhuga ráðamanna þessara aðila. En það er í senn metnaðar- og menn ingarmál bæjar og sýslu, að svo verði að safninu búið, að það megi gegna hlutverki sínu. Ef vér hefjumst ekki 'handa þegar í stað, getum vér ekki kinnroða. laust mætt fólki þeirra 'héraða, sem af drjúgum minni efnum hafa gert stórátök til ‘byggingar og eflingar minjasöfnum sínum. Steindór Steindórsson j frá Hlöðum. 4 — ALÞÝÐUMAÐURINN Við þökkum hlýjar samúðarkveðjur og vin- arhug við andlát og útför eiginmanns míns og föður okkar, ALBERTS SÖLVASONAR, Akureyri. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunar- kvenna Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, ennfremur til stjórnar Kaupfélags Verkamanna og allra annarra, sem sýndu okkur vinarhug með blómum og gjöfum. - Guð blessi ykkur öll. Karólína Gísladótfir og börn. Alúðarkveðjur og þakkir sendum við ykkur öll- um sem studduð okkur og Hervöru í veikindum hennar og hafið við andlát hennar og útför minnzt hennar fagurlega og veitt okkur þá hjálp sem aldrei verður fullþökkuð. Guð blessi ykkur. Gís'li Jónsson, Hjörtur Gíslason, Amfríður Gísladóttir, María Gísladóttir, Soffía Gísladóttir, Guðrún Gísladóttir, Ingi'björg Gísladóttir, Jón Gíslason. Albert Guimundur Sðlfo»n Framhald af bls. 5. lags verkamanna Akureyrar og formaður Sjúkrasamlags Akur- eyrar allra síðustu árin. Loks er að geta þess, a°ð hann vann mjög að byggingu Sólborgar, heimili vangefinna, og að sjálfsögðu lagði hann mikið starf að mörk- um fyrir samtök iðnaðarmanna hér í bæ. Af þessari ófulkomnu upptalningu, sem er 'hvergi nærri tæmandi, geta ókunnugir fengið nokkra hugmynd um óvenjulega hæfileika Al'berts til félagsstarfa. Fyrir kunnugum þarf ekkert slíkt upp að telja. Þeim var full- kunnugt, að þar fór óvenjulegur hæfileikamaður. Ollum, sem kynntust Albert Sölvasyni, varð ljóst, að þar fór mikill drengskaparmaður. Oft er það, að ákveðnum flokks. mætt með nokkurri varfærni og mönnum, eins og Albert var, er tortryggni af hendi annarra flokka mönnum. Slíku var ekki að dreifa gagnvart A'lbert. Menn fundu strax, að hann lék aldrei nema drengilegum leikjum, því reyndist farsælt að kveðja hann til starfs, þar sem allt valt á, að góð og 'heils hugar samvinna og samstarf tækist. Hann 'brást aldrei góðum málstað. Verk- lægni 'hans var ekki síður að treysta í félagsstarfi en að smíð- isiðju. Enda þótt menn þættust gagn- kunnugir Al'bert Sölvasyni, var hann alltaf að koma vinum sín- um á óvart með hæfileikum sín. um. Þannig gat hann á málþing- um æ ofan í æ staðið óvænt upp og flutt tölur undirbúningslaust, að því er virtist, um hin ólík- ustu efni, eins og hann hefði lengi kynnt sér þau af kostgæfni. „Fáir vissu afl hans,“ segir um suma afreksmenn- í fornsögum. Ég 'hygg fáir hafi að fullu þekkt andlegt atgervi Alberts Sölva- sonar, það var svo ótrúlega fjöl- þætt. Og nú er þessi ágæti dreng. skaparmaður allur. Af einstöku- þreki og æðruleysi bar hann þunga 'banalegu. Hetjuhugur hans 'hvikaði aldrei. Albert Sölvason var kvæntur Karólínu, Guðnýju Gísladóttur, verzlunarmanns á Sauðárkróki, hinni mætustu konu. Börn þeirra 'hjóna eru Jón Guðmann, véla- verkfræðingur, búsettur í Banda ríkjunum, og Stefanía Kristín, búsett 'hér í bæ. Um leið og Alþm. þakkar 'hin- um látna öðlingsmanni í nafni Alþýðuflokksins öll hans störf í þágu norðlenzkra jafnaðar. manna, leyfir 'hann sér fyrir þeirra hönd að senda eiginkonu, börnum og barnabörnum inni- legustu samúðarkveðjur. Br. S. FRÁ SJÁLFSBJÖRG. Félags- funur verður haldinn í Bjargi, sunnudaginn 21. nóv. og 'hefst kl. 3 e. h. Vinsamleg. ast mætið vel og stundvíslega. Fjár§öfonn NK. LAUGARDAG mun Lions. klúbburinn Huginn fara af stað með sína árlegu fjáröflun. Munu félagar í klúbbnum ganga um bæinn eins og undanfarin ár og 'bjóða bæjarbúum Ijósaperur og jafnvel eitthvað fleira. Á sl. ári veitti klúbburinn 60 þús. kr. til vistheimilisins Sól- borg til kaupa á leiktækjum og ennfremur var ákveðið að klú'bb urinn gæfi Flugbjörgunarsveit Akureyrar 45 þús. kr. til kaupa á súrefnistæki í sjúkrabíl sveit- arinnar. Félagar fóru með böm af vistheimilinu Sólborg í réttir og einng hringferð um Eyja. fjörð. Farnar voru 2 ferðir að sumarbúðum þjóðkirkjunnar við Vestmannsvatn og máluð þar nokkur herþergi. Félagar bjuggu til jólatrés- seríur og komu þeim fyrir við Elliheimilin á Akureyri og Skjaldarvík og við vistheimilið Sólborg, og verður það gert framvegis um 'hver jól. Þessum stofnunum og Krist- neshæli voru einnig færðar bóka gjafir fyrir jólin eins og undan. farið. Klúbburinn hefir á undanförn um árum gefið ýmis tæki til Fjórðungssjúkrahússins á Akur- eyri og má m. a. nefna augn- skurðartæki, hitakassa fyrir ung börn og hjartarúm fyrir hjarta. sjúklinga. Að þessu sinni hefir klúbbur- inn ákveðið að gefa sjúkrahús- inu tæki til augnlækninga og er þá sérstaklega höfð í huga bar. áttan gegn gláku, en hún er nú vaxandi sjúkdómur 'hér á landi. Nánari ákvörðun verður tekin í samráði við augnlækni. Klúbbfélagar vænta þess að bæjafbúar taki þessu jafnvel og þeir hafa ætíð gert áður, þannig að þessi fjársöfnun megi takast eins og vonir standa til. FÉLAGSVIST Skógrœktarfélag Tjarnar- gerðis og bílstjórafélögin, halda þriðja og síðasta SPILAKVÖLD sitt n.k. laug- ardagskvöld, 20. nóv., í AI. þýðuhúsinu kl. 20.30. Öllum heimill aðgangur meðan hús- rúm leyfir. Hljómsveit Pálma Stefáns- sonar leikur fyrir dansi. NEFNDIN. Jólahannyrða- vörur í miklu úrvali. Verzlun Ragnheiðar O. Björnsson Sími 1-13-64

x

Alþýðumaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.