Alþýðumaðurinn - 28.04.1976, Page 1
ALÞYÐUMAÐURINN
Fjárhagsáætlun bæjar-
stjórnar Húsavékur 1976
46. árgangur - Akureyri, miðvikudaginn 28. apríl 1976 - 15. tbl.
Bæjarstjórn Húsavíkur sam-
þykkti á fundi sínum þann 13.
apríl fjárhagsáætlun bæjar-
sjóðs og bæjarfyrirtækj'a fyr-
ir árið 1976.
Rekstrartekjur nema um
392 mkr. en rekgtrargjöld 247
mkr. Útsvör eru áætluð um
109 mkr.
Helstu gjaldaliðir bæjar-
sjóðs eru:
Yfirstjórn kaupstaðarins
um 21.5 mkr.
Almennar tryggingar og fé-
lagshjálp 18.0 mkr.'
Fræðslumál 16.4 mkr.
Vextir 11.6 mkr.
Hreinlætismál 9.6 mkr.
s
Æskulýðs- og íþróttamál
7.5 mkr.
Til eignabreytinga frá
rekstri eru samtals um 145
mkr., en þar við bætast lán-
tökur og framlög svo samtals
eru um 214 mkr. til eigna-
breytinga nettó.
Helstu framkvæmdir eru
sem hér segir:
Gatnagerð um 51.0 mkr.
Bygging leiguíbúða um 50.6
Þorskstofninn í gífurlegri hættu
Fiskiskipaflotann á aðrar veiðar hið bráðasta
„VERÐUM AÐ HEFJAST
HANDA“ heitir grein í nýj-
asta Ægi, blaði Fiskifélags ís-
lands, þar sem segir að milli-
þinganefnd Fiskifélagsins hafi
lagt fram tillögur um það,
hvernig skuli að málum stað-
ið í stórum dráttum til að
minnka sóknina í þorskinn og
beina henni á aðrar veiðar.
5—6 skip fari á loðnuveiðar
fyrir Norðurlandi strax í byrj
un júlí segir nefndin og bygg-
ir þá framkvæmd á því, að í
fyrra hafi 2—3ja ára loðna
verið búin að ná 8—10% fitu
á þeim tíma þrátt fyrir átulít-
inn sjó og sjávarkulda. 3—4
skip verði látin reyna rækju-
veiðar á djúpmiðum á þessu
ári og verði rækjan soðin og
fryst um borð í þeim skipum.
Þá leggur nefndin til að skel
fiskveiðar verði auknar og
þær rannsóknir, sem þar að
lúta. Einnig vill nefndin að
leitað verði eftir leyfum til
veiða á makríl og brislingi í
Norðursjó, sem landað yrði í
bræðslu í Danmörku. Loks
leggur nefndin til að 3—4 skip
verði látin reyna kolmunna-
veiðar. Norðmenn eru sagðir
mjög áhugasamir um að auka
sókn í þennan fiskistofn, og
ÞEIR hafa ekki látið sitja við
orðin tóm. Það, sem gildir í
þessu efni fyrir okkur, er að
komast sem fyrst að raun um
það, hvort við getum ekki náð
að veiða kolmunna á hrygn-
ingartímanum, en þá er hann
veiðanlegastur. Það getur ver
ið að við verðum að fara nið-
ur undir Færeyjar í mars/
apríl, en von manna er að eitt-
hvað af kolmunna hrygni nær
landinu.
Þá má bæta því við framan
sagða grein úr Ægi, að fleira
kemur þarna til greina svo
sem grálúðuveiðar fyrir Norð-
urlandi og einnig er talið að
eitthvað verði leyft að veiða
af Suðurlandssíld í haust, og
nokkur skip geta stundað
veiðar á fjarlægum miðum. Ef
röggsemi væri í aðgerðum til
verndar þorskstofninum væri
hægt að skipuleggja veiðar
fyrir mikinn hluta fiskiskipa-
flotans á aðrar veiðar út allt
þetta ár og þar með að fara
ekki fram úr því marki, sem
fiskifræðingar okkar hafa sett
gagnvart þorskinum. En
dæmalaus aumingjaskapur
sjávarútvegsráðherra og ríkis
stjórnarinnar hefur komið í
veg fyrir, að ekki hefur enn
verið hafist handa um einar
eða neinar rannsóknir um-
fram það, sem við öll þéklcj-
um.
.................. S
ökuferð
Lán að ekki
fór verr
Um kvöldmatarleytið síðast-
liðið mánudagskvöld varð bif
reiðaárekstur á mótum Hrafna
gilsstrætis og Eyrarlandsveg-
ar. Rákust þar saman Ford-
fólksbíll (leigubíll af BSO) og
jeppabifreið. Skipti það eng-
um togum, að jeppinn kastað-
ist fram af brúninni, sem
þarna er austur af, og rúllaði
á hjólunum niður allt gilið og
hafnaði síðan á hliðinni á þaki
viðbyggingarinnar við húsið
Sjónarhæð. Einn maður var í
jeppanum og sakaði hann
ekki, en það má furðulegt telj
ast að þarna varð ekki stór-
slys, því leiðin, sem jeppinn
fór er líklega um 150—200
metrar niður snarbratt gilið.
Tveir menn voru í fólksbíln-
um og hlutu þeir minni háttar
meiðsli við að kastast í fram-
rúðuna.
Verið að hífa jeppann af slysstað.
mkr.
Bygging barnadagheimilis
17.2 mkr.
Bygging dvalarheimilis aldr
aðra 9.0 mkr.
Bygging gagnfræðaskóla 7.5
mkr.
íþróttamannvirki 7.0 mkr.
Bygging steypustöðvar 5.6
mkr.
Framlag til atvinnuaukn-
ingar 5.0 mkr.
Helstu framkvæmdir við
Húsavíkurhöfn eru þessar:
Frágangur á Þvergarði 12.0
mkr.
Hlutafé til byggingar ver-
búða 2.5 mkr.
Hitaveita Húsavíkur fyrir-
hugar að leggja stofnæð upp
Þverholt og er kostnaður við
það verk í ár áætlaður 3.7
mkr.
Rafveita Húsavíkur áætlar
að verja um 3.4 mkr. til undir
búnings að flutningi aðveitu-
stöðvar og byggja auk þess
spennistöðvar fyrir um 4.3
mkr.
Iðnnemar í
Slippnum
leggja niður
vinnu
Undanfarinri hálfan annan
mánuð höfum við iðnnemar í
Slippstöðinni h.f. staðið í
málaþófi út af kjörum okkar.
Ástæðan er sú að samningar
I.N.S.Í. frá 1. mars sl. tákna
stórfellda kjaraskerðingu (tvö
fyrstu árin beina krónulækk-
un!). Þessum samningi var
samhljóða hafnað á almenn-
um fundi iðnnema, enda hafði
I.N.S.Í. ekki aflað sér neins
samningsumboðs iðnnemafé-
lagsins hér.
Slippstöðin bauð þá kjör
Framhald á bls. 3.
Ertu að byggja? Alltaf eitthvað nýtt. FASTEIGNASALA - LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA
Þarftu að bæta? Viltu breyta? Terelin-buxur — Faco snið.
IbCðin KT FOPATRA Steindór Gunnarsson, lögfræðingur.
TRYGGVABRAUT 22. - SÍMI: 2-24-74. Strandgötu 23. — Sími: 2-14-09. Ráðhústorgi 1. — Sími: 2-22-60.