Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 28.04.1976, Blaðsíða 2

Alþýðumaðurinn - 28.04.1976, Blaðsíða 2
 J.\ n ALI .M ÞÝÐ Otgefandi: Alþýðuflokksfélag Akureyrar. — Ritstjóri og ábm. — Hjörleifur Haligríms. UMAÐURINN . ! Afgreiðsla og auglýsingar Strandgötu 9, sími 1-13-99. Laxárskatturinn mikii í öliu því umtali, sem orðiö hefir um Kröfiuvirkjun, bæði hvað framkvæmdamistök snertir hve dýr hún virðist ætla að verða og hve hratt eigi að knýja virkjunina fram, hefir mörgum sést yfir, hver er undirrót þessa mikla máis, en hún er sú, að ríkisvaldiö meinaði Laxárvirkjunarstjórn að undiriagi nokkurra landeigenda við Laxá að fulfljúka virkjun í Laxá við Brúar, Laxárvirkjun III, sem nefnd hef- ur verið. Sú virkjun hefði getað framleitt um 26 mw af raforku, sem hefði nægt Norðurlandi fram til 1985 við gildandi orkuþörf. Tii þess að virkjuninni yrði fuliiokið, þurfti að byggja 18—20 m stiflu í Laxárgljúfrum og kaupa véiasamstæöu í viðbót Var þessi framkvæmd áætluð um 300—400 millj. kr., þegar hún var stöðvuð, en hefði vafa- laust orðið eitthvað dýrari. Stíflan hefði gert þær virkjanir, sem nú eru í Laxá mildu öruggari til framleiðslu, þar eð lón ofan hennar hefði komið í veg fjírir rennslistruflanir að mestu. Af ótta við heiftuga andstöðu örfárra land- eigenda, þorði ríkisvaldið eltki að setja viðhhtandi lög um Laxárvirkjun 111, og fékkst ekki að ljúka nema 1. áfanga hennar, sem aðeins framleiðir um 7 mw raforku. Því hörmulegra var þetta kjarklej/si ríkisvaldsins, að engin almenn andstaða var í héraði gegn Laxárvirkjun III, þótt upp risi gegn Gljúfurversvirkjun, sem var stórum stærri í sniðum, og landeigendurnir fáu höfðu engin lög fyrir andstöðu sinni, heldur ofríkið eitt, sem vesaldómur var að ansa. En af því að Laxárvirkjun III fékkst ekki fullgerð, hélst orkuskortur á Norðurlandi, og úr varð að bæta. Laxár- virkjunarstjórn taldi sig geta það með stækkun gufuvirkj- unar í Bjarnarflagi, í þrepum, en þar er fyrir 3 mw gufu- virkjun á vegum hennar. Fyrir þessu fékkst ekki leyfi rílds- stjórnar Ölafs Jóhannessonar, heldur var horfið að hvort- tveggja úrlausninni: byggðalínu norður og 55 mw gufu- virkjun við Kröflu. Út af fyrir sig fögnuðu Norðlendingar þessari ákvörðun á sínum tíma, það var efnahagsgóðæri þá stundina og menn hugðu þessa ákvörðun undanfara ann- arrar: að stóriðnaður ætti að rísa norðanlands til að nýta verulegan hluta Kröflurafmagns. En nú hafa tímar breyst: Það er efnahagskreppa í land- inu, það hefir ekkert verið gert til að finna stóriðnaði stað á Norðurlandi, virkjunin æðir upp að dýrleika og goshætta ógnar virkjuninni. Menn horfa fram á ógnarverð á Kröflu- rafmagni. Hver á að standa undir þessum ósköpum? spyr fólk. Á að velta þessu öllu á oldcur Norðlendinga? Þurfum við innan tíðar að fara að greiða 16—20 lcr. fyrir kílóvatt- stundina af rafmagni? Auðvitað verðum við Norðlendingar að krefjast jafn- aðarverðs úr hendi ríkisvaldsins á rafmagni, enda á það stóra sök, eins og hér hefir verið bent á. Það er líka sann- gjarnt, að finnagaldursmeistararnir reykvísku, sem tóku undir ofsasöng ofríkismannanna við Laxá, fái að finna eftirréttinn af vitleysu sinni, en því miður líða margir sak- lausir fyrir hana líka. Best hefði verið, ef Hermóður í Nesi oog Co. bæru einir Laxárskattinn mikla, það væri sanngjarnt, því að hans og þeirra er meginsökin eins ogo hér hefir verið bent á. Það hefði verið sitt hvað að hafa nú þegar rafmagn, sem hefði aðeins kostað 300—500 millj. kr. í framleiðslu, eða fá innan tíðar rafmagn, sem kostar um 9000 millj. kr. að koma í notin, og hafandi það þó ekki enn í hendi. — (IX). ÍÞRÓTTIR Sk> Skiðalandsmótið Gangan fór fram við Stórhæð. Gengið var í 650 metra hæð. Hæðarmismunur í braut var um 100 metrar. í flokki 20 ára og eldri var búist við mestri keppni milli Halldórs og Magnúsar Eiríks- sonar og varð það raunin á. Skráðir keppendur í flokki 20 ára og eldri voru 25 og keppni luku 19 í göngu 15 km. En í yngri flokknum voru keppend ur aðeins 8 og 6 luku keppni þar. Haukur Sigurðsson, Ólafs firði, reyndist sterkastur þar og hafði reyndar eins og Magnús talsverða yfirburði fram yfir næsta mann. Akureyringar áttu 4 kepp- endur og voru þeir allir frem- ur aftarlega að Halldóri frá- töldum sem náði 2. sæti í 15 km. göngunni og því 3. í 30 km. göngunni. Magnús Eiríks- son reyndist honum alger of- jarl í þessu harða móti og vann alla 3 titlana — 15 km., 30 km. og göngutvíkeppn- ina. Það er kannski ekki að undra að Halldór standi ekki undir þeim vonum er við hann voru bundnar, hann var við æfingar úti fyrir Ólympíuleik- ana og eins og fleiri stefndi að toppþjálfun þá. Og þannig má reikna með að hann hafi dregið af sér nú og sé komin þreyta í hann eftir strangt pró gramm í vetur. Nú hefur Hall- dór ákveðið að keppa ekki meir fyrir sinn heimabæ — hann sest að í Rvík og keppir fyrir þá í náinni framtíð þann ig að við missum einn okkar mesta afreksmann suður og er það mikið skarð þar sem fyrir sjáanlegt er að enginn komi til með að taka við af honum 1 göngunni. Hann gerir þetta af skiljanlegum ástæðum — þar eru sjálfsagt fleiri göngumenn og meiri keppni. Það væri vit- firringsskapur að vera að „dóla“ einn upp í fjöllum hér. En allt um það hér koma úr- slitin í 15 km. göngunni — fyrst 17—19 ára. mín. Haukur Sigurðsson Ó 41.02 Þorsteinn Þorvaldss. Ó 42.36 Jónas Gunnlaugsson í 44.57 Úrslit í göngu, 20 ára og eldri: Magnús Eiríksson S 53.54 Halldór Matthíasson A 56.20 Trausti Sveinsson F 57.31 Það skal tekið fram að' gengnir voru 15 km. hjá þeim eldri en 10 km. hjá strákun- um. í 15 km. göngu 17—19 ára vann Haukur Sigurðsson einn- ig og Þorsteinn Þorvaldsson varð 2. í 30 km. göngu 20 ára og eldri vann Magnús með mikl- um yfirburðum, en þar náði Fljótamaðurinn Reynir Sveins son 2 sæti og 3. varð eins og áður sagði Halldór Matthías- son, Akureyri. Þá er komið að stökkinu — enn reyndist gamla kempan frá Ólafsfirði, Björn Þór Ólafs son, erfiður og vann allt. Hér á eftir koma úrslitin í stökki: stig Björn Þ. Ólafsson Ó 243.0 Marteinn Kristjánsson S 214.3 Viðar Konráðsson Ó 193.5 Stökk 17—19 ára: Þorsteinn Þorvaldsson Ó 204.3 Jóhann Sigurðsson Ó 155.1 Hallgr. Sverrisson S 118.6 Eins og glögglega má sjá fengu Ólafsfirðingar 4 af 6 verðlaunapeningum hér og áttu eftir að „hala“ þá inn hvern af öðrum. Norræna tvíkeppnin varð geysilega spennandi í eldri flokknum og reyndist Björn Þór enn sem' fyrr erfiður. Stökkið var mjög spennandi og munurinn á Birni og Rögn- valdi Gottskálkssyni voru að- eins 3% stig. En langt á eftir þeim kom Örn Jónsson með 205.4 stig — Björn fékk 290.2 stig og Rögnvaldur 286.7. En í göngunni gekk Björn eins og hann hefði ekki gert neitt ann Tveir leikir fóru fram í Al- bertsmótinu. svonefnda um sl. helgi. Þór og Völsungur skyldu jöfn, 1:1, í mjög slök- um leik fyrir austan. KA vann Reyni, Árskógs- strönd, 3:0. Staðan í leikhléi var 1:0 og gerði Gunnar Blön dal markið úr þvögu. í seinni hálfleik skoraði Jóhann Jakobsson, hinn lipri fram- línuspilari KA, 2 góð mörk. KA átti mun meira í þessum fremur slaka leik og voru mun nær því að auka foryst- una en Reynismenn að skora sitt fyrsta. Þannig fær KA 3 stig út úr sínum leik eftir nýj- um reglum sem gilda einnig í Reykjavíkurmótinu. Fá 3 stig fyrir 3 mörk og meira — Þór hefur 1 og Völsungur að á meðan Rögnvaldur komst vart áfram. Örn nýtti það og skaust upp í 2. sætið, en Rögn- valdur féll í 6. sæti. Norræn tvíkeppni 17—19 ára: stig Þorsteinn Þorvaldss. Ó 284.27 Haukur Sigurðsson Ó Norræn tvíkeppni, 20 ára og eldri: stig Björn Þ. Ólafsson Ó 541.53 Örn Jónsson Ó 453.74 Baldvin Stefánsson A Sigurjón Erlendsson S 386.74 Þá eru það úrslitin í 3x10 km. boðgöngunni sem varð geysilega spennandi, svo spenn andi að munurinn á 2 fyrstu sveitunum varð um 40/100 úr sek. 1. Sveit Ólafsfjarðar: Jón Konráðsson 38.15 Haukur Sigurðsson 38.25 Björn Þór Ólafsson 37.34 114.14 2. Sveit Siglufjarðar: 114.57 3. Sveit Fljótamanna: 115.20 4. Sveit ísafjarðar: 115.27 5. Sveit Akureyrar: 120.35 Sveit Akureyrar: Halldór M., Stefán Jónasson og Bald- vin Stefánsson. Eins og sjá má er munurinn á 4 fyrstu alveg gífurlega lítill. Besta tímann átti Magnús í sveit Siglufj. 3333 og Halldór M. þann næsta 34.49. Þá eru öll úrslitin á hinu glæsilega Landsmóti íslands á skíðum 1976 komin þó síðbú- in séu. einnig en lestina rekur Reyn- ir með ekkert stig — öll eftír 1 leik. Leikur KA og Reynis fór fram við góð skilyrði á Þórsvellinum að viðstöddu talsverðu fjölmenni. Eftir þessum leik að dæma virðist KA-liðið þó nokkuð frískt og nokkuð vel spilandi á köflum, en hjá Reyni er meira lagt upp úr baráttu og stundum fer hún fram úr hófi. Þórsar- ar verða sjálfsagt mjög skæð- ir í sumar með nýja þjálfar- ann og koma til með að vera í toppbaráttu og KA jafnvel líka í 2. deildinni í sumar. ÍBV er örugglega mjög sterkt — vann Breiðablik í bæja- keppninni milli þeirra 4:1 nú um helgina. MÞ - SA. Albertsmótið 2 — ALÞÝÐUMAÐUBINN

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.