Sumargjöfin - 23.04.1925, Blaðsíða 4
4
SUMARajOFIN
Jcg á mömmu íninni næst Guði að þakka fyvir
heilbvigða sál i hraustum líkama.
10 boðorð mæðra.
Boöorðin eru gömul, en sígild.
1. Sjáið barninu fyrir ró og næði. Líðið
engum að hampa því, rugga, róa með það
og sussa við það. Ungbarni er lífsnauðsyn á
kyrð. Gráti það, þá reynið að finna ástæð-
una og bæta úr henni. Munið, að barnið er
ekki leikfang, heldur guðleg vera, sem yður
er trúað fyrir.
2. Kennið barninu snemma að hlýða.
Hlýðnin er undirstaða uppeldisins. Byrjið
kenslu í hlýðni, þegar barnið fer að rjetta
hendur eftir hlutum, þá er það oft n.I. 10
mánaða gamalt. Byrjið um fram alt að banna
barninu, áður en það er um seinan. Allar
skipanir verða að vera hóværar og mildar,
en þó ákveðnar. Reynið um fram alt að fá
barnið með góðu til að hlýða hverri skipun.
Gleðjið barnið á einhvern hátt, hvenær sem
það sýnir hlýöni.
3. Verið vandar að fóstru barnsins og fje-
lögum. Hver maður, sem umgengst barnið,
er kennari þess. Alt, sem það sjer og heyrir,
mótar sálarlíf þess. Vakið yfir því, að þar
sje ekki sáð til illgresis, heldur fræjum
dygða og dáða.
4. Kennið barninu reglusemi. Byrjið þá
kenslu á því, að næra barnið og hagræða
því í vöggunni á vissum tímum. Þegar það
kemst á legg, þá látið það jafnan hátta á
sama tíma og svo snemma, að það fái næg-
an svefn, á því er börnum meiri lífsnauðsyn,
en margan grunar. Ætlið námi, máltíðum og
leik vissan tíma, og leyfið sem fæstar und-
anþágur. Að venja barnið snemma á reglu-
semi er undirstaða að hamingjusömu lífi
barnsins, og sparar móðurinni mikið angur
og mörg áhrifalaus orð síðar.
5. Kennið barninu snemma að hjálpa sjer
sjálft. Gerið ekki barnið að ósjálfstæðu
ómenni með því að láta það bíða eftir hjálp
annara með hvert smávik. Heill sje þeirri
móður, sem vakir yfir barninu eins og al-
valds auga, er athvarf þess og trúnaðar-
vinur, en varast þó kúgun, óþarfa afskifta-
semi og mest af öllu nauð og nöldur, sem
drepur bæði virðingu barnsins og lífsgleði.
6. Kennið barninu að láta á móti sjer og
hjálpa öðrum. Látið börnin snemma fá tæki-
færi til að njóta gleðinnar af að gefa, ekki
síður en af að þiggja. Það eru siðferðileg
banaráð að venja barnið á nautnasýki með
sífeldum skemtunum og nýjum og nýjum
leikföngum.
7. Talið við börnin og bendið þeim á það
sem fagurt er í sögum og Ijóðum og í nátt-
úrunni. Fagrar hugsanir skapa fagra sál.
Móðir má aldrei eiga svo annríkt, að hún
gefi sjer ekki tíma til að svara spurningum
barnsins síns og líta á það sem það vill
sýna. Enginn getur uppalið barn nema með
því móti að verða að barni sjálfur.
8. Hrein sál í hreinum likama. Verið
vandar að því að venja barnið á andlegan