Dvöl - 01.12.1935, Síða 9

Dvöl - 01.12.1935, Síða 9
1. desember 1935 D V Ö L 9 Hressingar- og skemmtistaðir í Sviþjðð n. Suður í löndum hefir fólk lengi lagt trúnað á, að vissar upp- sprettur væru læknisdómur. Við þessar uppsprettur hafa risið bæir o g borgir. 1 Rínardalnum, í Frakklandi, Bæheimi og Ung- verjalandi eru margir þesskonar heilsubrunnar. Auðugt og heilsu- veikt fólk safnast á þessa staði, einkum á sumrin, drekkur hið heilnæma vatn, og hlýðir jafn- framt læknisráði um allar lífs- venjur. Margir þessir iækninga- staðir eru lokaðir að vetrinum, en aðrir starfa allt árið. Elzti Gvendarbrunnur í Svíþjóð heitir Miðheiði, og er við Vettern- vatnið austanvert. í fornöld var mikill átrúnaður á læknisdómi þessarar uppsprettu, og helzt sú trú gegnum allar miðaldimar. Einkum þótti heilsusamlegt að drekka lindarvatnið á Jónsmessu- var eins óviss og skoðanalaus eins og fósturfaðirinn. Hann leit á föðurinn hyggju- þrungnum rannsóknaraugum. Síð- ustu klukkustundirnar hafði allt skipt um útlit í heiminum, nema hann. Og þó var hann engin hetja, enginn konungur né leiðtogi, — ekkert nema mannvinur. Earl Strand þýddi. nótt og á þeim tíma kom fólk þangað; en þá var skógur einn kringum lindina og ekki neitt gert til að taka móti gestum. En fyr- ir meir en tveim öldum var dönsk prinsessa drottning í Svíþjóð. Hún varð síðar móðir Karls 12. Drottn- ing hafði ágætan lækni við hirð- ina, sem hafði mikla trú á heilsu- brunnunum. Hann vissi að margir Svíar fóru sér til lækninga að suðrænum heilsubrunnum. Honum þótti bæði fjár og metnaðarmál, að Svíar gætu notið þessara gæða í sínu eigin landi. Læknir þessi rannsakaði nú þá lindina, sem frægust var á Miðheiði, og komst að þeirri niðurstöðu, að vatnið þar hefði engu minni lælcnismátt en uppsprettur þær í Achen, sem mjög eru rómaðar og fjölsóttar af gestum. Læknir þessi fékk nú drottn- ingu til að byrja á byggingum á Miðheiði. Nógur var skógurinn til að fá byggingarefni, og timbrið gott. Ennþá standa á Miðheiði mörg timburhús, sem byggð voru fyrir meir en tvö hundruð árum, og þau fyllast enn af gestum hvert sumar. Miðheiði er dálítið þorp 2 km. frá vatninu. Húsin eru nálega öll úr timbri. í miðjum bænum er kirkja, tveir stórir borðsalir, sam-

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.