Dvöl - 01.12.1935, Side 11

Dvöl - 01.12.1935, Side 11
1. desember 1935 D V Ö I. 11 Leiðangur Tsjeijuskin Eftir Jón Eyþórsson Á 16. öldinni, þegar Spánverj- ar voru að brjóta undir sig Suð- ur-Ameríku og Portúgalsmenn höfðu fundið sjóleiðina um Góðrarvonarhöfða til Indlands, streymdu auðæfi til þessara þjóða frá nýlendunum, svo þær gerðust voldugar og gátu setið yfir hlut annarra þjóða hér í álfu og lokað þær að miklu leyti úti frá sigling- um til þessara Gósenlanda. Af þessu leiddi að Englending- ar og Iíollendingar fóru að gera tilraunir til að komast Ishafs- leiðina til Austurlanda, annað- hvort austur um Asíu eða vestur um Ameríku. Landfræðingar héldu því fram um þessar mund- ir, að hægt myndi að sigla þá leið tálmunarlítið á 6 vikum. Um 1550 gerðu Englendingar út þrjú skip til þess að sigla NA- 15. Meðal annars fást á slíkum stöðum böð, sem eiga að vera jafngóð böðunum í Manheim í Þýzkalandi, leðjuböð, eins og þau sem fræg eru víða í Tékkoslovakíu og meðal annars tréböð, en það er sæti, sem gert er úr tréefni, sem soðið hefir verið lengi. Er það einn af mörgum læknisdóm- um við gigtveiki. I næsta kafla verður sagt frá daglegu lífi á Miðheiði. J. J. leiðina. Eitt þeirra komst til Hvítahafsins, en hin tvö strönd- uðu á Kólaskaganum og fórst öll áhöfn þeirra. Ferð þess skipsins, sem komst af, varð upphaf að verzlunarviðskiptum Englendinga við Rússland. Um 1600 gerðu Hollendingar út leiðangur í norðurhöf undir for- ustu Barentz. Höfðu þeir vetrar- setu á Nova-Semlja, en voru illa haldnir af skyrbjúg og kulda. Á heimleiðinni andaðist Barentz, en við hann er síðan kennt hafið milli Svalbarða og Nova Semlja, Barentzhafið. Af sama toga voru spunnar ýmsar ferðir til íshafsins vestan Grænlands og norðan Ameríku. Má þar aðeins nefna John Davis, sem Davissund er kennt við. Eitt skip hans kom við hér á landi 1586. Henry Hudson er fann Iludsonflóa kom einnig hingað til lands 1610 og þannig mætti lengi telja, en frá því verður nú horfið. Veldi Spánverja og Portugals- manna tók brátt að hnigna, svo aðrar Evrópuþjóðir náðu einnig fótfestu í hinum nýja heimi og eignuðust þar nýlendur. Við það þvarr áhugi þeirra fyrir sigling- um til norðlægra hafa, enda leið langur tími, sem lítið var gert að þeim. I byrjun 18. aldar gerði

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.