Dvöl - 01.12.1935, Síða 14

Dvöl - 01.12.1935, Síða 14
14 D V O L 1. desember 1935 aðeins 25 ára gamall. Árið 1919 gekk hann í Kommúnistaflokkinn og hefir síðan gegnt margskonar vandasömum trúnaðarstörfum fyr- ir ráðstjórnina. Meðal annars var hann um eitt skeið forstöðumaður bókaforlags ríkisins. Síðan 1928 hefir hann eingöngu gefið sig að íshafsraniisóknum. Eftir myndum að dæma, er Smidt óvenjulega fríður maður sýnum og höfðinglegur. Árið 1929 var Smidt gerður að forstöðumanni á íshafs-rannsókna- stofnun Sovétbandaríkjanna og stjómar síðan vísindalegum og hagnýtum framkvæmdum þeirra í Norðurvegi. Takmark þessara rannsókna er fyrst og fremst, að finna færustu siglingaleiðina frá Hvítahafinu til Beringssunds, skipuleggja sam- göngur á þeirri leið og gera þær svo öruggar og hættulitlar, sem unnt er. Að þessu virðist Smidt hafa unnið bæði af kappi og forsjá. Fyrst stofnar hann veðurskeyta- stöðvar meðfram leiðinni, kannar og kortleggur lítt þekktar íshafs- eyjar og kemur upp kola- og mat- væla forðabúrum. ísbrjóturinn Sibirjakow lagði af stað frá Arch- angelsk við Hvítahafið 28. júlí 1932. Gekk allt vel fyrst í stað og sóttist ferðin greiðlega austur með Sibiríuströndum. Þegar nálg- aðist Beringssundið, lenti skipið í miklum ís og brotnaði skrúfan. Til þess að koma nýrri skrúfu á, varð að færa allan vaming, þar á meðal 400 smál. af kolum, fram á skipið og þyngja stefnið niður, svo skuturinn kæmi upp úr sjó. En rétt á eftir brotnaði skrúfuásinn og varð þá ekki við gert. Var skipið ósjálfbjarga og barst með ísnum í nokkra daga, en loks tókst skipshöfninni með miklu harðfylgi að höggva og sprengja því leið út úr versta ísnum og koma upp seglabúnaði. 1. okt. sigldi loks ísbrjóturinn fyrir austurodda Sibiriu og hafði þar með lokið ferð sinni um NA- leiðina á tveimur mánuðum. Telja Rússar þessa ferð að vissu leyti árangurinn af undirbúningsstarfi vísindamanna sinna á undangengn- um 15 árum. Sumarið 1933 hefja Russar sigl- ingar í Norðurveg í stærri stíl en nokkru sinni fyrr. Til Karahafsins austan NoVja-Semlja sigla 35 skip í fylgd með ísbrjótum. Ann- ar floti siglir í kjölfar ísbrjóts- ins Krassin austur um Tsjeljuskin höfða til Lenuósa. • Þessir leiðangrar eru taldir fyllilega undirbúnir og öruggt um afkomu þeirra. Meiri óvissa er um nýbyggða skipið Tsjeljuskin, sem á að freista þess að fara í spor Sibirja- kow og sigla NA-leiðina alla á einu sumri, undir forustu Ottó Smidt. En Tsjeljuskin er ekki byggður sem ísbrjótur. Hann er aðeins sterkbyggt flutningaskip, sem á að gera fyrstu tilraun til hagnýtra

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.