Skutull - 12.05.1945, Qupperneq 3
S K U T U L L
85
Handan um liöf.
Stríðslok í Evrópu. — Himmler og varúlfarnir. — San
Francisco og smáþjóðirnar. — Kosningar í Bretlandi
í vor. — Stríðið i Austur-Asiu.
G A G N F R Æ Ð A S K Ö L A N U M v a r
Stríðinu i Evrópu er lokið.
Það hefir staðið i 5 ár og 8
mánuði, eða 2079 daga (8. maí).
Ríki Nazismans, sem Göbbels spáði
eitt sinn að stœði i 10 þúsund ár,
er hrunið til grunna. Mussolini og
margir aðrir fasista- og nazistafor-
ingjar eru dauðir. Hvort Hitler og
Göbbels hafa yfirgefið þennan
heim er allt vafasamara. Hitt er
víst, að sá maður, sem raunveru-
lega hefir stjórnað Þýzkalandi a.
m. k. síðustu mánuðina, Heinrich
Himmler er lifandi. Hann hefir
stjórnað öllum undirbúningi naz-
ista uridir ,,neðanjarðarstarfsemi“
þeirra í rústum Þýzkalands á kom-
andi árum, og enginn vafi er á því,
að hann ætlar sér að stjórna henni,
enda mun enginn maður vera fær-
ari til þess en hann. Grimmari og
kænni fantur er ekki til í öllu
mannvali nazista.
Himmler hefir skipulagt hina
svo kölluðu varúlfahópa, sem þeg-
ar eru byrjaðir að vinna skemmd-
arverk og fremja pólilísk morð í
herteknu héruðunum. Yfirmaður
kvenfélaga nazistaflokksins liefir
skorað á kvenfólk að gerast „úlf-
ynjur“ hálfu grimmari en „varúlf-
arnir“.
Þýzkalandi verður nú fyrst um
sinn stjórnað af hershöfðingjum
Bandamanna, með aðstoð sérfræð-
inga og að líkindum nokkurra
þýzkra manna, sem valdir verða til
þess. Nöfnum þeirra er enn haldið
leyndum. Því að nazistar munu
reyna að myrða hvern þýzkan
mann, sem lér aðstoð sína til að
stjórna landinu
Næsta verkefni Bandamanna, að
stjórna Þýzkalandi, er ekki auð-
veldara en að sigra það. Fyrsta skil-
yrðið til þess að það takist, er að
þeir komi sér saman um stefnu og
aðferðir. En horfurnar á því eru
allt annað en glæsilegar, eins og
sakir standa. Á San-Francisco-ráð-
stefnunni hefir ekkert samkomulag
náðst enn milli stórveldanna
þriggja um Póllandsmálin. Rússar
hafa varpað í fangelsi samninga-
mönnum, sem þeir buðu sjálfir til
Moskva. Stjórn í Austurríki hefir
verið viðurkennd af Rússum, en
ekki af Bretum og Bandaríkjunum.
Sinaríki á San Francisco-ráðstefn-
unni efna til samtaka undir for-
ustu samveldislanda Breta, Ástralíu
og Nýja Sjálands gegn yfirdrottn-
un stórveldanna í öryggismála-
stofnuninni, sem þar á að stofna.
Frakkar lögðu til að ráðstefnunni
yrði freslað, þangað lil stjórnir,
FLUGVÉLAR LOFTLEIÐA H. F.
flutlu í aprilmánuði samtals 442
farþega, þaraf til og frá ísafirði
170.
Mánuðina maí, júní, júlí og ágúst
hefir félagið hugsað sér að haga
ferðum þannig, eftir því sem veður
og farþegafjöldi leyfa:
Til Patreksfjarðar, þriðjudaga og
laugardaga.
* Til Bíldudals, miðvikudaga.
Til Þingeyrar miðvikudaga.
, Til ^flateyrar, fimmtudaga.
Til Isafjarðar, inánudaga, fimmtu-
daga og laugardaga
Ef veður eða aðrár áslæður
hamla flugi, þessa ákveðnu daga,
verður reynt að ná áætlun næsta
flugfæran dag.
Ennfremur er ætlunin að fljúga
á Siglufjörð föstudaga, og aukaferð-
ir eftir því, sem mögulegt er.
kosnar frjálsum kosningum, liefðu
komist á í löndum Evrópu. Líkleg-
ast er að það verði ofan á, þótl
svo verði látið líta út, sem ráð-
stefnan halcli áfram st.rfum að
nafninu til.
- Kosningar í Bretlandi fara að lílc-
indum fram i júní eða júlí. Kosn-
ingabaráttan er þegar í fullum
gangi. Sennilegt er, að hún verði
ejnhver liin harðasla, sem háð hef-
ir verið í Bretlandi. Nái Verka-
mannaflokkurinn ekki hreinum
meirihluta í kosningunum, er talið
víst, að Churchill bjóði honum
sæti í samsteypustjórn áfram til
þess að reyna að kljúfa hann, því
að vist er, að mikill meirihluti
flokksins er andvígur því að vinna
lengur með ihaldinu.
Stríðið í Austur-Asíu heldur á-
fram. Vilji Bandarikin og Bvetar
láta kröfuna um „skilyrðislausa
uppgjöf" gilda við Japan, er það
eitt víst, að því stríði verður ekki
lokið á þessu ári. Því þó að Japan-
ir geri sér áreiðanlega ljóst, að
stríðið er lapað einnig fyrir þá, er
iangt frá því að þeir séu að þrotum
komnir. Þeir ráða enn yfir hrá-
efnaauðugustu löndum jarðarinnar
og hafa nóg af flestu, sem þarf til
styrjaldarreksturs. Floti þeirra og
flugher er ósigraður, og þeir hafa
enn beðið lítið manntjón. En þrátt
fyrir það er mjög líklegt, að þess
verði ekki langt að bíða, að þeir
leiti fyrir sér um friðarsamninga.
1 Skotlandi hefir lengi verið til
lítill en hávaðasamur flokkur, sem
krafist hefir fulls skilnaðar frá
Englandi. Flokkurinn héfir klofn-
að hvað eftir annað, og aldrei tek-
ist að fá mann kosinn inn í brezka
þingið fyrr en nú um daginn. Vakti
kosning hans mikla athygli og ekki
síður hitt, að hann neitaði að fara
eftir þingsköpum frá l(i. öld, og vís-
aði forseti honum þá frá þingsetu.
Hinsvegar hafa margir Skotar
náð kosningu utan l'lókka og er
vaxandi hreyfing í landinu fyrir
því að fá heimastjórn í skotskum
sérmálum, en nú fer sérstakur ráð-
herra í brezku stjórninni með
skotsk mál.
Á stefnuskrá þessarar skotsku
þjóðernishreyfingar, er eilt atriði,
sem lslendingar mættu veita at-
hygli, það er að fá skotska land-
lielgi rýinkaða allt upp,í 13 mílur
(í Morayfirð( og að banna enskum
togurum veiðar þar. Gætu Skotar
orðið Islendingum og Norðmönnum
góðir liðsmenn í baráttunni fyrir
verndun fiskimiðanna.
KARLAKÓR ISAFJARÐAR liélt
samsöng í Alþýðuhúsinu á upp-
stigningardag. Þólti körnum að
mörgu leyti vcl takast og várð hann
að endurtaka allmörg lögin. Ein-
söngvarar voru Kjartan Ólafsson
kaupmaður og Sigurður Jónsson
prentari. Stjórnandi kórsins er
Högni Gunnarsson.
EINAR ODDUR KRISTJÁNSSON
hefir nú afgirt varpland sitl á Skip-
eyri, og verður að vænta þess, að
fólk verði samtaka um að valda
þar ekki truflun með umferð eða
óþarfa hávaða. — pá hefir Einar
beðið blaðið að gela þess, að nú
er verið að eitra fyrir svartbak á
Skipeyri, og eru til þess notuð æð-
aregg, svo sem fyrir er mælt í lög-
um. Er fólk alvarlega beðið að taka
sér vara á þessu.
sagt upp laugardaginn 5. maí að
viðstöddu miklu fjölmenni. Þrjátíu
nemendur luku gagnfræðaiirófi að
þessu sinni, og voru þeir þessir:
Ásgerður Bjarnadóttir.
Ásthildur Sigurðardóttir.
Björg Kristjánsdóttir.
Elín Nordquist.
Elísabet Guðmundsdóttir.
Elísabet Kristjánsdóttir.
Guðbjartur Finnbjörnsson.
Guðbjörg Ólafsdóttir.
Guðrún Ágústsdóttir.
Guðrún Karlsdóttir.
Gunnar Gestsson.
Hákon Bjarnason.
Helga R. Magnúsdóttir.
Helgi G. Þórðarson.
Ingibjörg Þórólfsdóttir.
Isak Sigurðsson.
Jón Páll Halldórsson.
Karl Salómonsson.
Katrín Þ. Jensdóttir.
Kristín Á. Jónsdóttir.
Kristín Lára Valdimarsdóttir.
Lilian Simson.
Margrét Guðmundsdóttii'.
Oddur össurarson.
Sigríður Guðmundsdóttir.
Sigríður Þ. Kristjánsdóttir.
Sigrún Magnúsdóttir.
Sólveig Kristjánsdóttir.
Stella Edwald.
Þorgerður Sigurgeirsdóttir.
Hæstu einkunnir lilutu Stella
Edwald, Sigríður Þ. Kristjánsdóttir
og Elín Nordquist.
Hæstu einkunn í skólanum hlaut
Þuríður Skeggjadóttir, en annars
bekkjar prófi luku 44 nemendur.
Upp úr I. bekk luku prófi 53 nem-
endur, og var þar hæst Borgliild
Edwald.
Einn nemandi III.' bekkjar, 5
nemendur annars bekkjar og þrír
nemendur fyrsta bekkjar náðu ekki
5 í meðaleinkunn og stóðust því
ekki prófið.
Við skólaslit hélt skólastjóri ræðu
og minntist frelsis Danmerkur,
sem einmitt var kunngjört þennan
dag. Sungið var: Eg vil elska mitt
Iand, Der er et yndigt land', Faðir
andanna og Ja, vi elsker dette
Landel.
Ræður liéldu einnig Þóroddur/
Guðmundsson skólastjóri í Reykja-
nesi fyrir hönd stjórnskipaðra
prófdómenda og Guðmundur Haga-
lín formaður skólanefndar.
Að kvöldi þess 5. maí héldu nem-
endur lokahóf silt að Uppsölum.
SÝNING Á IIANDA VINNU OG
TEIIÍNINGUM nemenda í Gagn-
fræðaskólanum var opln fyrir al-
menning á sunnudag og mánudag,
og sóttu hana á sjötta hun^Irað
manns. Þóttu nemendur hafa unn-
ið með fádæmum mikið, og var
þar þó einnig margt mjög vel
gerðra niuna. Þá voru einnig á
sýningunni margar teikningar,
sem mikla athygli vöktu; — Báru
þar langl af teikningum annara
myndir eftir Guðrúnu Ágústsdótt-
ur og Þuríði Skeggjadóttur.
SKURÐGRAFA bæjarins tók til
starfa 5. maí. Var þá byrjað að
grafa fyrir grunni hins væntanlega
húsmæðraskóla. Reyndist grafan
ágætlega og er hún um 3 mínúlur að
moka á bílinn. Varð mönnum slar-
sýnl á verkfæri þelta, enda var
jalnan lalsverður mannfjölcli kring
um hann næslu daga, er hún var í
gangi.
BYRJAÐ var að grafá fyrir
grunni viðbyggingar Gagnfræða-
skólans strax á mánudaginn, þó að
sýningunni í skólanum væri ekki
lokið fyr en þá um kvöldið. Er
ætlunin að hraða svo byggingunni
að t. d. önnur hæðin verði fullbú-
in í haust, þegar skóli tekur til
starfa.
FRIDI FAGNAÐ. Á laugardaginn,
mánudaginn og þriðjudaginn var
bærinn fánum skreyttur vegna
frelsunar Danmerkur og Noregs og
fregnanna, sem þá voru að berast
um frið í Evrópu.
Á þriðjudaginn var allri vinnu
hætt hér í bænum á hádegi, og kl.
5 gekkst ísafjarðardeild Norræna-
félagsins fyrir útisamkomu á
sjúkrahússtúninu. Skátar gengu í
skrúðgöngu undir fánum neðanfrá
bátahöfn. Ræður fluttu Kristján
Jónsson frá Garðsstöðum, Jón Auð-
unn Jónsson, Björn H. Jónsson,
Birgir Finnsson og Guðmundur
Sveinsson. Sunnukórinn og Karla-
kórinn sungu og hornaflokkur lék.
— Á undan ræðunum flutti sóknar-
presturinn, Sigurður Kristjánsson,
bæn.
FERMINGARBÖRN 13. MAl 1945:
Ebeneser Þórarinsson, Tungu.
Finnur Þorvaldsson, Hnífsdal.
Guðmundur Jónasson, Hnífsdal.
Grétar Sívertsen, Brautarholti.
Isak Elías Jónsson, Isafirði.
Kristján Hilmar Hansson, Isafirði.
Margeir Ásgeirsson, Hnífsdal.
Oddur Pétursson, Isafirði.
Ölafur Jóhannesson, Arnardal.
Óskar Halldórsson, Isafirði.
Ólafur Jón Hansson, Hnífsdal.
Sigurður Arngrímsson, Isafirði.
Sigurlaugur Jóhann Sigurlaugsson,
Isafirði.
Sigurður Þorbjörn Guðmundsson,
Isafirði.
Sverrir Hjartarson, Fagrahvammi.
Skarphéðinn Krisfínsson, Hnífsdal.
Þorvarður Alfonsson, Hnífsdal.
Þórhallur Gunnlaugur Ólafsson,
Kirkjubóli.
Þorleifur Magnús Þorleifsson, Arn-
ardal.
Tryggvi Kristjánsson, Kirkjubæ.
Valdeinar Sveinbjörnsson, ísafii;ði.
Garðar Eymundsson, Isafirði.
Garðar Jónsson, Isafirði.
Cecelía Þórðardóttir, ísafirði.
Erla Guðmundsdóttir, Hnífsdal.
Guðfinna Sigmundsdóttir, Látravík.
Guðmuiida Soffía Ingimarsdóttir,
Isafirði.
Guðrún Hannesdóttir, Isafirði.
Guðríður Magnúsdóttir, ísafirði.
Greia Lind Krilsjánsdótlir, ísafirði.
Heiðrún Heígadóttir, Isafirði.
Herdís Ingibjartsdóttir, Isafirði.
Hrefna Ingimarsdóttir, Hnifsdal.
Ingibjörg Jónsdóttir, Hnífsdal.
Kristín Pélursdóttir, Engidal.
Lovísa Bjarnadóttir, Isafirði.
Margrét Halldórsdóttir, Isafirði.
Margrét Bæringsdóttir, Isafirði.
Magnúsína Ólafsdóttir,. Isafirði.
Ólöf Andrea Jónsdóttir, ísafirði.
Una Halldórsdóttir, Isafirði.
Þórunn Sveinbjörg Álfhildur Guð-
mundsdóttir, ísafirði.
Þóra Benediktsdóttir, Hnífsdal.
KRISTJÁN JÖNSSON skólastjóri
i Hnifsdal átti 25 ára skólastjóra-
afinæli á þessu vori. Voru lionum
færðar veglegar gjafir frá gömlum
nemendum, og samsæti var lionum
haldið af skólanefnd í tilefni þess-
ara merku tímamóta.