Skutull - 19.09.1945, Síða 1
XXIII. ár. Isafirði, 19. sept. 1945.
42.-43. tbl.
Gerist nú fastir áskrif-
endur að Skutli.
Snúið yður til ritstjór-
ans eða Jónasar Tómas-
sonar bóksala. Símar 160
eða 123.
Prentstoían Isrún h. f.
Eru möguleikar til hitaveitu
á ísafirði?
Volgar lindir í nágrenni bæjarins hafa verið kannaðar
af vísindamanni.
Því miður ekki sterkar líkur til, að 500—800 metra djúp
borhola gæfi mikið sjálfrennandi vatn.
Ríki og bær eiga að sameinast um eina djúpa borholu,
þar eð slík borun hefði mikla vísindalega þýðingu, en
bærinn tryggði sér með þátttöku sinni, að borunin færi
fram á æskilegum stað fyrir hann með tilliti til hitaveitu,
ef hagnýtur árangur yrði af boruninni.
Hingað til hefir aðeins verið borað á laugasvæðinu eftir
heitu vatni, en ríkið þarf fyr eða síðar að rannsaka hit-
ann í jarðlögunum utan hverasvæðanna.
Ráðlegast væri, að borunin færi fram í útjaðri bæjarins
í hlíðinni ofan við Skutulsfjarðareyri, segir doktor
Trausti Einarsson.
Dómur fallinn
í ofbeldismáli kommúnista
í Kaupfélagi Siglfirðinga.
Kommar dæmdir frá völd-
um í félaginu og greiði auk
þess 5000 krónur í máls-
kostnað.
Ekkert mál vakti aðra eins at-
hygli um land allt framan af
sumrinuj eins og ofbeldisinál
kommúnista í Kaupfélagi ISigl-
firðinga, þegar minnihlutinn
rak meirihlutann úr félaginu,
svipti kaupfélagsstjórann starfi
og réði nýjan kaupfélagsstjóra í
hans stað — ásamt fleiri að-
gerðum af svipuðu tæi.
Síðan hefir verið fremur liljótt
um þetta einstæða mál, en þð
hélt það áína leið fyrir dóm-
stólunum.
Skipaði dómsmálaráðherra
Gunnar Pálsson lögfræðing setu-
fógeta i málið og hafa réttar-
höld og yfirheyrslur haldið á-
fram þar norðurfrá meginhluta
sumars. Háfa báðir aðilar haft
síria lögfræðilega ráðunauta á
staðnum. Kommúnistar Ragnar
Ólafsson lögfræðing en meiri-
hlutinn Ólaf Jóhannesson lög-
fræðing Sambands Islenzkra
Samvinnufélaga.
Menn hafa beðið þess með
eftirvæntingu, hver yrði endir
máls þessa, og nú er þá lika séð
fyrir endann á því. \
Rétt um það leyti sem Skutull
kom út seinast, barst fréttin um
það, að fógetaréttur hefði'hrynt
ofbeldisstjórn kommúnista í
Kaupfélagi Siglfirðinga með
dómi, uppkveðnum 6. sept. s. 1.
Er aðalniðurstaða dóinsins sú,
að stjórn sú, sem kosin var á
aðalfundi, hinn 21. júni i sum-
ar af löglegum meirihluta rétt-
kjörinna aðalfundarfulltrúa,
skuli fá sig setta inn á ábyrgð
gjörðarbeiðanda, gegn þeirri
tryggingu, er fógeti kunni að
krefjast.
Þá úrskurðar setudómarinn
einnig, að ofbeldisstjórn komm-
únista, sem setið hefir að yöld-
um í Kaupfélagi Siglufjarðar síð-
an í sumar í fullri óþökk meiri-
hluta aðalfundar og félags-
manna, skuli greiða fimm þús-
und krónur upp í kostnað máls-
ins
Má það vera alþjóð fagnaðar-
efni, að ofbeldinu hefir þarna
verið hnekkt með dómsúrskurði
að réttum lögum.
öllum er það ljóst fyíir löngu
síðan, hvílíkt linoss það er fyrir
kaupstaði landsins, ef hægt er að
beizla heitt vatn í þjónustu þeirra
til húsahitunar og annara nota.
Þótt víða verði vart jarðhita á
Vestfjörðum, eru samt engar laug-
ar eða hverir í næsta nágrenni
Isafjarðarbæjar. Til þessa hafa
jarðboranir einungis verið fram-
kvæmdar á „heitum stöðum“, þ. e.
þar sem heitt vatn hefir streymt
fram á yfirborði, og hefir tilgang-
ur borananna því jafnan verið sá,
að freista þess, hvort ekki fengist
við borun meira vatn og heitara.
Alllangt er síðan bæjarstjórn
lsafjarðar lét í ljós þá skoðun, að
það væri tilraunar vert að fram-
kvæma jarðborun^ einhversstaðar á
„köldum“ stað í námunda við kauþ-
stað, til þess að fá úr því skorið,
hvort ekki sé unnt að ná til jarð-
hitans einnig jiar, sem hans verður
ekki vart á yfirborði. Hefir þetta
verið borið ftndir sérfræðinga og
ekki verið talin nein fjarstæða.
Með þetta í liuga samþykkti bæj-
arstjórn Isafjarðar í fyrra áskorun
á ríkisstjórnina um að festa kaup
á jarðbor og leigja liann síðan Isa-
fjarðarbæ til jarðborana í nágrenni
kaupstaðarins. Seinasti sýslufundur
Norður-lsafjarðarsýslu tók og und-
ir þetta með samskonar áskorun
fyrir si'tt leyti.
Kunnugir menn hér um slóðir
liöfðu orðið varir linda inn og upp
af Seljalandi í Skutulsfirði, og
reyndust þær oft að vetri til að
vera 7—8 stiga heitar.
Núverandi bæjarstjóri, Jón Guð-
jónssón fékk strax mikinn áhuga
á þéssu jarðhitamáli kaupstaðar-
ins, og sendi hann suður til rann-
sóknar vatn úr lindum þessum og
berg, sem að þeim tiggur. Einnig
setti liann sig í samband við for-
mann rannsóknarráðs ríkisins og
itrekaði inargsinnis óskir um, að
hingað kæmi sérfræðingur til að
kynna sér staðhætti hér um slóðir
með tilliti til jarðhítamöguleika og
þá ineðal annars til að kanna um-
ræddar lindir hjá Seljalandi en
sérstaklega til að benda á, ef nokkr-
ir sérstakir staðir í nágrenni bæj-
arins gætu talizt öðrum líklegri til
árangurs um heitt vatn, ef til jarð-
borana kæmi.
Nú leið og beið, en í júlí í sum-
ar kom hingað doktor Trausti Ein-
arsson í þessum erindum, Hinn 20.
ágúst ritaði liann bæjarstjóra ítar-
legt bréf um athuganir sínar, og
fer það orðrétt hér á eftir:
„Eftir ósk yðar lir. bæjarstjóri,
liefi ég athugað uppsprettur nokkr-
ar i nágrenni Isafjarðarbæjar með
tilliti til þess, að þær kynnu að
benda til jarðhita, er að notum
mætti verða.
Uppsprettur þær á Tungudal,
sem um er að ræða, hafa eftir mæl-
ingum, er fyrir liggja, sýnt 6—9
stiga hita á Celsíus, þótt lofthiti
hafi verið mun lægri, og hafa sum-
ir viljað álíta, að það kynni að
bera vott um jarðhita.
Mér var bent á tvær uppsprettur
og mældi ég 9 stiga hita í hinni
vestari, við 13° lofthita, en 7° í
hinni, sem er aðaluppsprettan. —
Vatnsinagn í þeirri uppsprettu er
á að gizka 1—2 sekúndulitrar, en
mælingu varð ekki við komið.
Ég sé engin merki þess, að hér
sé um eiginlegt laugavatn að ræða,
er komið væri djúpt úr jörð. Þvert
á móti tel ég greinilegt, að lind-
irnar stafi frá yfirborðsgrunnvatni
því, er safnast í og sígur í gegn
um lausaruðning þann, sem ofar
liggur í fjaltshlíðinni, og gefa þær
engar bendingar um jarðhita í
venjulegri merkingu orðsins. Ef
boranir eftir heitu vatni ættu að
framkvæmast, væri því engin á-
stæða til að tengja þær fremur við
þessar lindir en einhvern annan
stað, og væri þá auðvitað hentugast
að bora í útjaðri bæjarins, ofan vitS
eyrina. —
Um gildi slíkra borana er á hinn
bóginn erfitt að láta nokkrar skoð-
anir í ljós. Hingað til hefir ein-
göngu verið borað á laugasvæðum
eftir heitu vatni. Hefir þá í raun-
inni verið um það að ræða að áuka
það vatn, sem fyrir var, en hér
(Framh. á bls. 168.)
Smátt og stórt
Vidkun Quisling var dæmdur til
dauða í byrjun vikunnar.
Málshöfðun og áframhaldandi
rannsókn hefir verið fyrirskipuð
af dómsmálaráðherra gegn þessum
mönnum:
Ernst Freseníusi, Sigurði Norð-
mann Júlíussyni, Hjalta Björnssyni,
Magnúsi Guðbjörnssyni, Sverri
Matthíassyni, Einari Birni Sig-
valdasyni, Lárusi Sigurvin Þor-
steinssyni, Guðbrandi Einarí Hlíð-
ar og Jens Björgvin Pálssyni fyrir
brot gegn 10. kafla hegningarlag-
anna.
Allir þessir menn voru hand-
teknir af hernaðaryfirvöldunum,
en afhentir síðar íslenzkum yfir-
völdum til rannsóknar.
Afvopnun japanska hersins mun
ekki verða lokið fyr en undir miðj-
an október. Er talið, að hernáms-
lið bandamanna í Japan muni
verða um 400 þúsundir manna, að
langmestu leyti Bandaríkjaher-
menn.
Séra Friörik Hallgrimsson dóm-
prófastur fékk lausn frá embætti 5.
þessa mánaðar frá 1. desember
næstkomandi að telja. Biskup hef-
ir auglýst embættið, og hefir þeg-
ar heyrzt um einn umsækjanda,
séra Jón Auðuns í Hafnarfirði.
Þriöji hver maöur á þingi
norska Alþýðúflokksins — en því
þingi er nýlokið — hafði verið
lengri eða skemmri tíma í haldi í
fangabúðum nazista.
Á þinginu komu í ljós sár von-
brigði jafnaðarmanna yfir þeim
herbrögðum komriiúnista, sem til
þess urðu að síðustu að útiloka
sameiningu norsku verkalýðs-
flokkanna og verkalýðssamtakanna.
Þorsteinn H. Hannesson söngvari
er hér heima um þessar mundir og
hefir haft söngskemmtanir bæði á
Akureyri, Siglufirði og í Reykjavík
við mikla aðsókn og ágæta dóma.
Þjóöverjinn Höjer, sem lengi bjó
í Hveradölum, var nýlega leiddur
fyrir rétt i Danmörku, sakaður um
þjóðhættulegt starf á stríðsárunum.
Hann mun hafa öðtast islenzkan
ríkisborgararétt, meðan hann
dvaldist hér.
Tojo, fyrrverandi forsætisráð-
lierra Japana gerði tilraun til sjálfs-
morðs s. 1. þriðjudag, þegar sendi-
menn Mac Arthurs nátguðust hús
hans til að taka hann fastan sem
stríðsglæpamann.
Heildsöluverzlanir i Reykjavík
voru um seinustu áramót 157 að
tölu, en auk þess eru í höfuðborg-
inni 607 smásöluverzlanir. Alls eru
því verzlanir í Reykjavik 764.
Fjölgunin á árinu var 76 verzlanir.
Gísli Jónasson yfirkennari hefir
verið settur skólastjóri Austurbæj-
arskólans í Reykjavík.
Hagtiöindin síðustu skýra frá
því að í árslok 1940 voru 6 karl-
menn og 3 konur hér á landi gyð-
ingatrúar, en um 2000 manns telur
sig standa utan allra trúfélaga.