Skutull - 13.02.1948, Qupperneq 3
SKUTULL
3
VERK ALÝÐSMÁL. I
Sjómaiuiafélag Reykjavíkur
hélt aðalfund sinn 30. f. m. og var
Sigurjón Á. Ólafsson endurkosinn
formaður félagsins í 30. sinn.
Stjórn félagsins skipa: Sigurjón Á.
Ólafsson formaður, Ólafur Frið-
riksson varaformaður, ritari Garð-
ar Jónsson, gjaldkeri Sæmundur
Ólafsson og varagjaldkeri Ólafur
Árnason var kjörinn í stað Karls
Karlssonar, er .baðst undan endur-
kjöri.
Allir lilutu þessir frambjóðendur
mikinn fjölda atkvæða fram yfir
sprengiframbjóðendur kommúnista,
er hlutu hina verstu útreið í kosn-
ingum þessum.
Stjórnarkjör í verkamannafélaginu
Dagsbrún
fór fram í s. 1. mánuði og hlaut
listi verkamanna 512 atkv. en
listi kommúnista 1174 atkv. og var
fyrverandi stjórn því endurkjörin.
Kosningaúrslit þessi í Dagsbrún
sýna glögglega þverrandi fylgi
kommúnista í félaginu, er beittu
mótframbjóðendur sína fádæma
bolabrögðum m. a. á þann hátt að
hin kommúnistiska stjórn félagsins
neitaði þeim um afnot af kjörskrá
félagsins, en það er talandi vottur
þess til liverra meðala þessir kump-
ánar grípa, er þeir gerast óttaslegn-
ir um völd sín í verkalýðsfélögun-
um.
Hvað lialda inenn, að hann Gjög-
ur-Dóri hefði sagt í blaðsnepli sín-
um, ef fram hefði farið stjórnar-
kjör, eða allsherjaratkvæðagreiðsla
í Baldri, og stjórn Baldurs hefði
neitað kommunum um kjörskrá fé-
lagsins, en þeir haft menn í kjöri?
Skutull er viss um, að Dóri hefði
$kki náð upp í nefið á sér, þótt
viljað liefði hann fjarlægja þaðan
nokkra tóbaksdröpa, af eintómri
vandlælingu yfir gjörræði hinna
vondu manna í stjórn Baldurs.
En í Dagshrún eru það komm-
únistar, sem ódæðið fremja, og þá
heitir það í munni Dóra og sálu-
félaga hans réttlæti.
Kosningaúrslitin sýna, að komm-
únistarnir eru í hreinum minni-
hluta í Dagsbrún, og að þeiih fer
fjölgandi í félaginu, er vilja hrinda
ógnarstjórn þeirra af höndum sér,
því að nú hlaut listi verkamann-
anna hátt á annað hundrað at-
kvæðum fleira eu við stjórnarkjör
í fyrra.
Þá var það og atliyglisvert,
hversu margt manna sátu heima
við stjórnarkjörið, eða um helm-
ingur félagsmanna. 1 hópi þeim
munu flestir verkamenn, er tilheyra
Sjálfstæðisflokknum hafa verið,
enda mun forusta Sjálfstæðis-
flokksins sízt hafa hvatt sína menn
til þess að ganga gegn kommunum,
og ekki sá Morgunblaðið, aðahnál-
gagn Sjálfstæðisflokksins ástæðu
til þess að stugga hið minnsta við
kommúnistastjórninni í Dagsbrún
um kosningarnar, enda munu hin-
ir mestu kærleikar á milli forustu-
manna beggja flokkanna.
Vörubilstjórafélagiö Þróttuf
í Regkjavík
ætlaði að lialda aðalfund sinn
fyrir nokkru, en fundinum varð
ekki lokið vegna drykkjuláta og
slagsmála, er áttu sér stað á hon-
um. Eu ástæðau fyrir þeim er tal-
in sú syðra að kommúnistar, er
mjög óttuðust um hag sinn þarna,
veittu stríðsöl all sterkt, áður en til
orustu var gengið, en er það tók að
svífa á menn, gerðust þeir aðgangs-
frekir. Tóku þeir m. a. hatt þann,
sem atkvæðuin var safnað í, óðu
með hann utn fundarsalinn, og
dreifðu atkv. yfir fundarmenn eða
rifu þau í sundur.
Tókst af þessuin sökum aldrei að
kjósa fimmta manninn í stjórnina,
því að kalla varð á lögregluna til
að ryðja fundarsalinn og forða
mönnum frá meiðingum.
Mun þetta vera í fyrsta skipti,
sem kommúnistar efna þannig til
drykkjuskapar til að hleypa upp
fundum verkalýðsfélaga hér á
landi, en þekktir munu þeir að
slíku í erlendum liafnarborgum. Er
þetta hinn inesti smánarblettur á
verkalýðshreyfingunni, en hvorki
sá fyrsti, né heldur sennilega sá
siðasti, er kommúnistar setja á
lianá.
VerkalýÓsfélagi'ö Skjöldur, Flateyri,
hélt aðalfund sinn 18. f. m. og
voru þessir kjörnir í stjórn fé-
lagsins: form. Friðrik Hafberg, rit-
ari Kolbeinn Guðmundsson, gjald-
keri Daníel Benediktsson, með-
stjórnendur: Kristján Sigurðsson og
Jón Hjartar. Félagið hefir sagt upp
kaupgjaldssamningum sínum og
liyggur á samræmingu kaupgjalds
við lsafjörð. Er ástæðulaust að ætla
annað en að félaginu takist að ná
því marki, án þess að til stórra á-
taka komi við atvinnurekendur, og
verður þess þá skammt að bíða, að
hið þráða takmark vestfirzkra
verkalýðsfélaga um samræmingu
kaupgjalds á Vestfjörðum náist, og
er það vel farið.
Verkalýösfélag Hnífsdælinga
hélt nýlega aðalfund sinn. Stjórn
félagsins er jiannig skipuð: Helgi
Björnsson, form., Jóhannes B. Jó-
hannesson, varaform., Ólafur Guð-
jónsson, ritari, Ingólfur Jónsson
gjaldkeri, og Ingimar Bjarnason
meðstjórnan di.
Fundurinn samþykkti að hækka
árstillag félagsfólks þannig að nú er
árgjald karla kr. 40,00 og kvenna
kr. 25,00
Þá ræddi funduriun atvinnuá-
stand kauptúnsins og gerði sam-
þykkt í því máli, er félagið svo
sendi hreppsnefndinni.
Verkalýösfélagiö Súgandi á
Suöureyri
hélt aðalfund sinn fyrir nokkru
og er stjórn félagsins þanpig skip:
uð: form.: Guðni Ólafsson, ritari:
Guðhjörn Björnsson, gjaldk.: Ing-
ólfur Jónsson. Félagið hefir sagt
upp samningum, en þeir eru út-
runnir 7. næsta mán., eins og samn-
ingar Skjaldar á Flateyri. Félögin
munu fylgjast að um það, að fá
samninga sína samræmda kaup-
gjaldssamningum Baldurs, og munu
þau til þess njóta fyllsta stuðnings
Álþýðusambands Vestfjarða, en það
hefir æði oft verið nauðsynlegur
baklijarl verkalýðsfélaganna á
Vestfjörðum í átökum þeirra við at-
vinnurekendur.
Verkalýösfélag Bolungavíkur
hélt aðalfund sinn 25. f. m. og er
stjói’n ielagsins þannig skipuð: Jón
Iívenfélag Alþýöuflokksins
hélt aðalfund sinn fimmtudaginn
5. þ. m. 1 stjórn félagsins voru
kjörnar: Frú Kristin Kristjánsdótt-
ir, fonn., frú Svanfríður Alberts-
dóttir varaform., frk. Anna Helga-
dóttir ritari, frú Hólmfriður Magn-
úsdóttir gjaldkeri og frú Unnur
Guðmundsdóttir meðstjórnandi.
1 vetur hefir félagað haldið uppi
reglubundnum skemmtunum ásamt
Alþýðuflokksfélaginu, er hafa haft
mikla þýðingu fyrir flokksstarfið.
Skemmlikvöld Alþýöuflolcks-
félaganna.
Alþýðuflokksfélögin í bænum
hafa í vetur haldið uppi reglu-
bundnum skemmtunum fyrir fé-
lagsfólk og gesti þeirra. S. I. laug-
ardagskvöld var ein þessara
skemmtana í Alþýðuhúsinu. Hófst
liún kl. 9 með setningarræðu Finns
Finnssonar, Björgvin Siglivatsson
flutti fróðlegt erindi um Krapotkin,
sýndur var smáþáttur: Negra-
strákarnir, frú Sigríður Hjartar
las upp, þá var leiksýning: Hættu-
legur leikur. Leikendur voru þau:
Karólína Guðmundsdóttir, Eggert
Samúelsson og Gunnlaugur Guð-
mundsson. Að lokum var dans stig-
inn lil kl. 2 um nóttina.
Yfirlögregluþjónn ráöinn.
Á s. 1. hausti sagði Jón A. Jó-
hannesson upp starfi sínu sem yf-
irlögregluþjónn, og var starfið þá
auglýst til umsóknar. Bæjarfógeli
leit svo á, að þeir, er um stöðuna
sóttu, væru ekki færir um að taka
starfið að sér, og leitaði hann þá
lil Jóns um að taka á ný við yfir-
lögregluþjónsstarfinu, og varð hann
við því. Og er hann ráðinn yfirlög-
regluþjónn frá 15. þ. m. að telja.
Trúlofun.
Opinberað hafa trúlofun sína
ungfrú Briet Theodórsdóttir, síina-,
mær, Hrannargötu 3 og Þorsteinn
Jóakimsson bílstjóri á Stakkanesi.
F járhagsáætlun.
Frumvarp að fjárhagsáætlun Bæj-
arsjóðs Isafjarðar fyrir árið 1948
hefur enn ekki verið lagt frarn. Ba'j-
arstjórn hefir fengið frest til 1.
inarz til að ljúka afgreiðslu fjár-
Tímótheusson, form., Jóhannes
Guðjónsson, ritari, Haraldur Ste-
fánsson. gjaldkeri, Ágúst Vigfússon,
varaform. og Eggert Lárusson með-
stjórnandi. Á s. 1. hausti sagði fé-
lagið upp samningum sínum við at-
vinnurekendur, og hófust saran-
ingaumleitanir upp úr áramótum.
Er samningum að verða lokið á
þeim grundvelli, að verka-
inenn í Bolungavík þurfi ekki
lengur að búa við lakari kjör en
stéttabræður þeiri-a í Ilnífsdal og
Súðavík, en á báðum þessum stöð-
um hafa kaupgjaldssamningar ver-
ið samræmdir kaupgjaldssamning-
um Baldurs.
hagsáætlunarinnar. Mun mega
vænta fyrri umræðu um fjárhagsá-
ætlunina í næstu viku.
Síldveiöin.
I skýrslu Fiskifélagsins um síld-
veiðar í Hvalfirði var afli vest-
firzku skipanna svo sem hér segir
31. jan. s. 1.
Hafdís 6919 —
Ásbjörn 3215 mál
Ásúlfur 3623 —
Ernir 1204 —
Freydís 5755 —
Grótta 463 —
Gunnbjörn 1408 —
Huginn I. 4486 —
Huginn II. 7620 —
lluginn III. 3661 —
Hugrún 9910 —
Isbjörn 2059 —
Jón Valgeir 8173 —
Richard 5893 —
Víkingur 3499 —
Samtals 67.888 mál
Síldveiðin liér í Djúpinu er ekki
með talin. Vélskipin Isbjörn og
Ernir hafa ekki stundað síldveiðar
það sem af er þessu ári. Enn er
inikill síldarafli syðra þegar veður
hamla e^ki veiðum.
10 læknishéruö
hafa verið auglýst laus til um-
sóknar. Hér vestanlands eru þessi
6 héruð auglýst laus: ögur, Hest-
eyrar, Árnes, Hólmavíkur, Reyk-
hóla og Flateyrarhérað. Fjögur
þessara héraða eru nú læknislaus.
Skipstjórnarpróf.
Nýlokið er við Stýrimannaskól-
ann í Reykjavík náinskeiði fyrir
skipstjóra. Kennsla þessi var ætl-
uð fyrir þá menn er áður höfðu
lokið skipstjórnarprófi, en vildu
auka réttindi sín. Nám þetta stund-
uðu 15 menn, meðal þeirra voru
þessir Vestfirðingar: Einar Kjart-
ansson, Isafirði, Guðmundur Kr.
Guðmundsson, Isafirði, Guðjón
Halldórsson, Isafirði, og Magnús
Grímsson frá Súðavík. Að náini
loknu var mönnum þessum strax
veitt full skipstjóraréttindi á fiski-
skipum af öllum stærðum. Guðm.
Kr. Guðmundsson skipstjóri á
Gunnbirni var elzti nemandinn, er
í skólann hefir komið, en hann er
nú fullra 50 ára. Guðmundur mun
aldrei áður hafa verið í skóla og
hefir nú sýnt þann fágæta dugnað
að setjast á skólabekk á fullorðins
áruni.
Andlát.
Nýlátinn er hér á sjúkrahúsinu
Jón Guðmundsson úr Súðavík. Jón
var fæddur 6 okt. 1874 og var því
fullra 73 ára, er hann lézt.
Sjósókn.
Átta bátar stunda nú þorskveið-
ar héðan frá Isafirði. Gæftir hafa
verið mjög stopular en aflabrögð
nokkuð misjöfn, en þó yfirleitt rýr.
Það sem af er þessari vertíð hafa
bátar héðan farið mest 11 róðra.