Skutull

Årgang

Skutull - 13.02.1948, Side 8

Skutull - 13.02.1948, Side 8
8 / S K U T U L L Og Sigurður E. Breiðfjörð: > Frá Þingeyri. Váðgerðarsíöð íyrir talstöðvar útvarpstæki verði komið up; á Vestfjörðum. Hannibal Valdimarsson flytur þingsályktunartillögu um að tveim slíkum viðgerðarstöðvum verði komið upp fyrir næsta haust. önnur stöðin verði staðsett á Isafirði en hin á Austfjörðum. Á Vestfjörðum munu vera tal- stöðvar í 70 fiskibátum og skipum, auk nokkurra landstöðva. Viðtæki er á allflestum heimilum, og fer fjölgandi. Verkefni virðast því næg fyrir viðgerðarstöð hér á Isafirði. Það kemur iðulega fyrir, að bát- ar verða að vera lengri eða skemmri tíma með bilaðar talstöðv- ar, eða bíða þess, að talstöðvar þeirra komi úr viðgerð í Reykjavík. Er þess til dæmis skemmst að minnast, að vélbáturinn Björg hraktist með bilaða talstöð, sem ekki hafði fengizt gert við í hálfan mánuð, og gat áhöfnin því ekki náð sambandi við flugvélar og skip, sem leituðu bátsins. Hannibal Valdimarsson ræðir þetta mál í greinargerð með þings- ályktunartillögu, sem hann flytur á alþingi. Er tillagan þess efnis, að stjórnendum landssímans og ríkis- útvarpsins verði falið að koma upp fyrir næsta haust viðgerðastöðvum fyrir talstöðvar, útvarpstæki og símaáhöld á Isafirði fyrir Vestfirði og Neskaupstað fyrir Austurland. Slíkar viðgerðarstöðvar eru nú að- eins í Reykjavik og á Akureyri. Árið 1947 1 nýkominni skýrslu fiskimála- stjóra segir að s. 1. ár hafi aflast hér á landi 475 þús. smálestir fiskj- ar (miðað við fisk upp úr sjó). Aðeins árið 1944 hafi aflinn orðið meiri eða 511 þús. smálestir. Það eru vetrarsíldveiðarnar í ársbyrj- un og tvo síðustu mánuði ársins, sem hleypa fram heildaraflanum, en Faxaflóasíldin nam um 90 þús. smálestum. En þrátt fyrir þennan afla er hagur útgerðarinnar ekki að sama skapi góður, og ríkissjóður mun verða að greiða í uppbætur, vegna ábyrgðarverðsins, yfir 22 milj. króna. Á vetrarvertíðinni stunduðu um 380 bátar veiðar. Sé reiknað að 10 menn séu til jafnaðar á bát, þá hafa nær 4000 sjómenn stundað veiðar á vetrarvertíðinni. Bátafjöldinn skiptist þannig milli landshluta: Sunnanlands 240, vestan 62, norðan 52, austan 25. Sú breyting varð á hagnýtingu aflans, að aðeins 1300 smál. voru fluttar út af ísvörðum bátafiski, en var 34 þús. smál. árið 1946, en til söltunar fóru 54.400 smál. Þessi breytta hagnýting aflans olli út- vegsmönnum talsverðum erfiðleijc- um. Sala saltfiskjarins og útflutn- ingur tókst seint og varð að liggja hér í landi heitustu sumarmánuð- ina. Við það rýrnaði fiskurinn mjög til stórtjóns fyrir eigendurna. Er vitað að þeir útvegsmenn, er söltuðu afla báta sinna hafa tapað mikið á því. Ekki tókst að selja saltfiskinn fyrir ábyrgðarverð, og þarf ríkissjóður því að verðbæta 1 greinargerð sinni segir Hanni- bal meðal annars: „Á vélbátaflotanum á Vestfjörð- um og Austfjörðum er mikill fjöldi talstöðva. 1 þessum landshlutum eru einnig komnar allmargar talstöðv- ar á afskekkta sveitabæi. Lands- síminn er eigandi talstöðvanna og tekur fyrir þær árlega leigu. Hann einn hefur því rétt og skyldu til að sjá um viðgerðir og viðhald þessara tækja. Viðgerðarverkstæði eru nú aðeins í Reykjavík og á Akureyri, og er það því mjög miklum erfið- leikum bundið austan lands og vest- an að fá gert við talstöðvar og önn- ur slík tæki, fyrr en seint og síðar meir. Talstöðvarnar eru af sjómönnum taldar beztu öryggistækin, sem enn þá hafa verið tekin í notkun hér á landi. Þýðing þeirra fyrir af- skekktar byggðir er og ómetanleg, og útvarp og sími eru orðin svo þýðingarmikill þáttur í daglegu lífi fólksins, að við það verður ekki unað, ef ekki er allt sem unnt er til þess gert að auðvelda öruggt við- hald þessara dýrmætu tækja“. var aflaár. hann. Þunglega horfði fram eftir ári með sölu freðfislcjar, en tókst þó hetur en á horfðist, svo að nær all- ar freðfiskbirgðir voru farnar úr landi og seldar um áramót. 1 byrjun síðasta árs kom óvænt síldveiði í Faxaflóa. Fyrstu tvo mánuði ársins veiddust 12000 smál. síldar eða um 88 þús. síldarmál. Sumarsíldveiðarnar við Norður- land brugðust gjörsamlega, þriðja árið í röð. 1 þeim tóku þátt 264 skip með 254 nætur, og var það meiri þátttaka en áður hafði verið. Heildarafli sumarsíldarinnar var 831 þús. mál í bræðslu, 63 þús. tunnur í salt og 14 þús. tunnur voru frystar til beitu. Meðal afli á bát var 3450 mál og tunnur. Afkoma þeirra útgerða, sem byggðu aðal- lega á síldveiðum var eftir þessum aflabrögðum, hörmulega léleg. Um miðjan október varð síldar vart í ísafjarðardjúpi og í nóvem- ber byrjuðu síldveiðarnar í Hval- firði. Hefir verið mikill landburður af síld en hagnaður ekki að sama skapi. Veiðarnar hafa reynzt ákaf- lega dýrar, einkum í veiðarfærum. Höfðu útvegsmenn ekki hentug veiðarfæri til þessara veiða og hef- ir verið reynt að notast við gaml- ar nætur, og alskonar samtíning. Mikið hefir rifnað af veiðarfærum, bæði vegna rusls, sem skilið hefir verið eftir í Hvalfirði og vegna þess, að síldartorfurnar hafa verið svo stórar, að næturnar hafa sprunguð Allur síldaraflinn á síðast liðnu ári nam um 216 þús. smálestum. Hið minna vélstjóranámskeið Fiskifélags Islands var haldið á Þingeyri frá 15. okt. til 30. jan. s. 1. Námskeiðið sóttu 21 nemandi, víðsvegar að af landinu. Prófið stóðust allir. Ágætiseink- unn hlutu sex nemendur. Hæstu einkunn hlaut Davíð Hall- dór Kristjánsson, Neðri Hjarðardal, Dýrafirði. Fara hér á eftir nöfn hinna nýút- skrifuðu vélstjóra: Davíð Halldór Kristjánsson, Dýrafirði, 46 stig (7,67). Ásmundur Guðmundsson, Flat- eyri 45% (7,61). Andrés Gunnar Jónasson, Arnar- firði 44% stig (7,44). Þorsteinn Björgvin Júlíusson, Hrísey 44 stig (7,33). Halldór Svanmundur Þorbergs- son, Súðavík 43 stig (7,17). Einar Guðnason, Súgandafirði, 42% stig (7,11). Jón Jóhannsson, Keflav. 41% st. Robert Valdimarsson, Stykkis- liólmi, 41% stig. Guðmundur Eggertsson, Dýra- firði, 41% stig. Gunnar Friðfinnsson, Dýrafirði, 41 stig. Sigurður Magnús Magnússon, Akranesi 41 stig. Guðmundur Árni Markússon, Súðavík, 40% stig. Hermann Bjarnason, Þingeyri, 38% stig. Jón Haukdal Þorgeirsson, Skaga- strönd, 37 stig. Jóhann Baldur Árnason, Hólma- vík 38 stig. Kristján Á. B. Finnbogason, Dýra- firði, 36%. stig. Andrés Magnús Eggertsson, Dýra- firði, 35% stig. Sturla Pétursson, Stykkishólmi, 35% stig. Sigurgeir Guðfinnsson, Keflavík, 33% stig. Guðjón Gugmundsson Karlsson, Keflavík, 27%. Anders Guðmundsson, Stein- grímsfirði 26% stig. Með þessu námskeiði hafa 1013 nemar lokið minna vélstjóraprófi Fiskifélags Islands, síðan gegnum, gangandi skírteinisnúmer voru upptekin um 1936. Aðalkennari var Helgi Kristjáns- son vélstjóri frá Siglufirði, er hann okkur liér áður að góðu kunnur, þar sem hann hefir fyr verið aðal- kennari á vélstjóranámskeiði á Þingeyri. Með þessu prófi hefir Helgi út- skrifað 166 yélstjóra. Aðrir kennarar voru: 1 íslenzku Sig Fr. Einarsson, kennari. í reinkingi Kolbeinn Iíristófersson, héraðslæknir. 1 eðl- isfræði Ólafur Ólafsson, skólastjóri Þingeyrarbarnaskóla. Mun almennt álitið, að óviða út á landi sé völ jafnhæfra kennara, hvers í sinni grein. Um kvöldið hinn 30 janúar, héldu hinir nýju prófsveinar boð inni fyrir alla kennara, báða próf- dómarana þá Matthías Guðmunds- son vélfræðing, og Halldór Jónsson vélsmið, og Inga S. Jónsson fyrir hönd Fiskideildarinnar. Kaffi var drukkið og ræður fluttar, en Davíð Halldór Kristjánsson liafði orð fyr- ir prófsveinum. Að hófinu loknu var dansað fram á nótt. Prófsveinar gáfu Ilelga Kristjáns- syni kennara allt ritsafn Guðmund- ar Magnússonar (Jón Trausti), og Fiskifélagsdeild Dýrafjarðar gaf honum bók Guðmundar Kambans „Vítt sé ég land og fagurt“. Við, sem þekkjum Helga Krist- jánsson, biðjum og vonum, að hon- um fylgi farsæld fram í tímann fyr- ir komur sínar til Dýrafjarðar, og að þau fórnfúsu störf, sem hann liefir innt af höndum til öryggis- aukningar íslenzkri sjómannastétt, megi bera ríkan ávöxt, í fullvissu þess, að hvert það verk, sem unnið er af alhug, er unnið til blessunar. Þingeyri, 1. febr. 1948. Sig. E. Brei'öfjörS. --------O--------- Svar við „svari“ Framhald af 2. síðu. En það er nokkuð hátt sjálfsmatið lijá formanni, að meta sig hærra en alla aðra lesendur Vesturlands, þótt hanii sé nú æðsti „valdhafi“ rafveitustjórnar. Ég fyrir mitt leyti geri ekki ráð fyrir, að ég geli met- ið neinn einn Iesanda blaðsins meira en ajla aðra samanlagt, og þess vegna gat ég ekki íátið mér nægja að lauma aðeins leiðréttingu ininni í vasa formanns. Ég sleppi ekki við að drepa á til- gátu form. um hvatir mínar, svo rökvís og göfugmannleg, sem hún er. Út af því, að form. þykist ekki liafa fengið réttar upplýsingar hjá mér, telur hann, að ég „eflir lestur Vesturlandsgreinar“ sinnar, hafi séð mér færi á að rétta Hannibal mína styrku hönd til hjálpar. Tak- ið eftir: Ég á að hafa gefið rangar upplýsingar 18. nóv. s. 1., þá vai skeytið sent, til þess að ginna form, í gapastokkinn, Hannibal til bjarg- ar, en samt dettur mér það ekki í , hug, fyrr en ég hafði lesið Vestur landsgrein hans 31. jan. s. 1. „Þetta er nú bara tilgáta min“, segir form. og bætir svo við: „en það getur nú samt verið tilfellið“! — Svo finnst honum þetta fallega gert af mér „því það er ávalt fallegt að hjálpa . ..“ — Á þessu, þótt am- bögulegt sé, er augljóst, að form. telur að tilgangurinn helgi meðal- ið. Ég hefi nú gagnrýnt nokkuð „Svar“ form. Það er þó fjarri mér, að vilja ekki sýna honum fulla sanngirni, og er þá skylt að geta þess einnig, sem þar er vel sagt og velNmeint. Hann kveðst hafa skrifað Vestur- landsgrein sína til þess að „gefa bæjarbúum sem gleggst, og um fram allt réttast yfirlit um þessi mál“. En þar sem ég tel, að form. liafi ekki tekist að ná þessu göf- uga marki í þetta skiptið, væri vom andi, að lionum tækist það betur næst, þegar hann réttir „sína styrku bönd“ út yfir hið sollna blakhaf. Gu'öm. G. Krisljánsson. MUNIÐ Björgunarskútusjóð Vest- l'jarða. öllum fjárstuðningi veitt móttaka hjá Kristjáni Krist iánssnni, Sólgötu 2. lsafirði.

x

Skutull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.