Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 1991, Qupperneq 2
2
SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ í REYKJAVÍK OG NÁGRENNI
SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ í REYKJAVIK OG NÁGRENNI
FRÉTm * BRÉF
Útgefandi:
Siglfirðingafélagið i Reykjavík og nágrenni
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Gunnar Trausti Guðbjörnsson.
Félagsgjaldið
Frh. af bls 1.
r
A aðalfundi SÍRON
sl. haust var sam-
þykkt svohljóðandi
tillaga:
Félagsgjald í
SÍRON skal inn-
heimta árlega og
skal aðalfundur
ákveða upphæð
þess. Félagsmenn
67 ára og eldri
greiða ekki félags-
gjald.
Niðurstaða meiri-
hluta fundarins var
sú að þar sem
starfsemi Siglfirð-
ingafélagsins hafi
aukist hin síðari ár,
ekki hvað síst með
útkornu Fréttabréfs-
ins, þótti rétt að
treysta fjárhag
félagsins með
innheimtu félags-
gjalda sem gerir því
auðveldara að
vinna að markmið-
um félagsins sem
erum.a. að vinna að
menningarmálum í
Siglufirði og efla
tengsl félaganna
við Siglufjörð.
Auðvitað eru
skiptar skoðanir um
hvort félag eins og
SÍRON eigi að
innheimta félags-
gjöld. En flest
getum við verið
sammála um að 500
kr. á ári breyta ekki
afkomu hvers og
eins. Þeim félags-
mönnum sem orðnir
eru 67 ára og eldri er
í sjálfsvald sett
hvort þeir greiða
eða ekki. Og menn
verða ekki strikaðir
út af skrám þó að
félagsgjald dragist.
Með von um skjót
viðbrögð og góð
sendir stjórn SÍRON
öllum Siglfirðingum
nær og fjær sumar-
kveðjur.
Á góðri stundu: Sólveig Ólafs, HeiðarÁstvalds, Ásta Einars,
Steinunn Friðriks ogHalli Óskars.
Fjölsky ldudagurinn:
Hliðarsal bætt við
- og nú komast allir fyrir
Eins og gat um í
síðasta Fréttabréfi
verður eitthvað að láta
undan þar sem 200
Siglfirðingar koma
saman. Nú er unnið að
því að bæta við í
Kirkjuhvoli í Garðabæ
hliðarsal þar sem
sjónvarpa má úr
aðalsal til að gera
öllum kleift að fylgjast
með skemmtiatriðum
á sviði og til að allir
geti fengið sæti á
þessum hátíðisdegi
Siglfirðinga. Fjöl-
skyldudaginn ber að
þessu sinni upp á 12.
maí n.k. og mun
kvennahersingin
undir forystu Ástu
Einars bera fram kaffi
og siglfirskt meðlæti af
sinni alkunnu snilld.
Þarna hittast ungir og
aldnir Siglfirðingar og
þarna myndast ný
tengsl sem hafa rofnað
í amstri daganna.
Fréttabréfið vill sér-
staklega hvetja þá
sem aldrei hafa látið
þann munað eftir sér
að hringja nú í Siggu
vinkonu eða Palla
frænda og fá að fljóta
með og upplifa
ógleymanlega stemn-
ingu. Þarna er ýmis-
legt til skemmtunar
fyrir börn s.s. krakka-
happdrætti og vídeó-
horn.Semsagtl2.mai
er frátekinn fyrir
fjölskyldudaginn.