Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - sept 1997, Qupperneq 2
SIGLFIRÐiNGAFÉLAGIÐ í REYKJAVÍKOG NÁGRENNI
œ FRÉTTABRJÉF
ÚTGEFANDI:
SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ í REYKJAVIKOG NÁGRENNI.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR
S. JÓNA H1LMARSDÓTTIR
Kæru Siglfirðingar!
Enn einu sinni dettur
inn um lúguna hjá ykk-
ur Fréttabréf SÍRON.
Meðal efnis að þessu
sinni er örnefnaskrá sem
ll Gunnlaugur Sigurðsson,
fyrrverandi bæjarfulltrúi á
Siglufirði (afi Gunnlaugs skólastjóra í Garðabæ),
tók saman fyrir nokkuð mörgum árum síðan og
barst mér í hendur seint í vor. Því miður of seint
fyrir vorblaðið en ég vona samt að hún verði
ykkur að gagni, þá bara næsta sumar ef ekki í ár.
Þessi skrá er skemmtileg lesning því samantekt
Gunnlaugs er mjög fróðleg. Opnumyndina af
fjallahring Siglufjarðar fékk ég hjá Erlu Þórðar-
dóttur, Siglfirðingi, búsettri í Hafnarfirði.
Kaffidagurinn í maí sl. tókst vel að sögn Krist-
rúnar Gunnlaugsdóttur. Var þar margt um mann-
inn og mikið spjallað. Þar mættu m.a. fyrrver-
andi símastúlkur og eru birtar myndir af þeim
hér á næstu síðu, teknar með 50 ára millibili.
Lóa Kristjánsdóttir, veislustjóri Síldarævin-
týrisins á Siglufirði sl. verslunarmannahelgi
sendi inn grein um ævintýrið í ár og var þar
greinilega mikið og margt skemmtilegt um að
vera. Fjöldi aðfluttra Siglfirðinga sótti bæinn
heim.
Félagið okkar er alltaf að eflast og er það vel.
Fjórar uppákomur eru fyrirhugaðar hjá félaginu
á næstunni. Fyrst er að nefna árshátíðina í næsta
mánuði á Hótel Sögu. Helga Ottósdóttir og Oli
Baldursson skemmtinefndarformenn sjá um
hátíðina að þessu sinni. Hvet ég alla, unga sem
aldna til að skella sér, sýna sig og sjá aðra!
Strax daginn eftir árshátíðina er fyrirhuguð
gönguferð á Esjuna, ef veður leyfir, á vegum
nýskipaðrar útivistarnefndar. Allar upplýsingar
um þessa ferð veitir formaður hennar, Helga
Ottósdóttir í síma 557 6110.
Aðalfundur félagsins verður haldinn 30. októ-
ber á Lækjarbrekku. Félagar eru hvattir til að
mæta. Orðið er laust!
Föst hefð er komin á jólaballið, að þessu sinni
28. desember. Sjá nánari auglýsingu á bls. 11.
Að lokum má geta þess að ritstjóri Fréttabréfs
SIRON er flutt norður til Akureyrar! Hvað lengi
veit nú enginn, vandi er um slíkt að spá ...
Fréttabréfið kemur vonandi út áfram og tel ég
lítið mál að stýra því að norðan. Hver veit nema
stofnuð verði Akureyrardeild Siglfirðinga hér
norðan heiða?
Forsíðumyndina prýða gömlu góðu Gautarnir.
Júlíus Júlíusson sendi mér þessa mynd ásamt
öðrum sem ég hef birt hér í blaðinu af og til og
kann ég honum bestu þakkir fyrir.
Auglýsi ég hér með enn og aftur eftir gömlum
og/eða nýjum myndum, greinum eða skemmti-
legum sögum. Hjálpumst að og eflum blaðið.
Hcimilisfang: Smárahlíð 22f,
603 Akurcyri, sími 462 6336
Gleðilega árshátíð!
S. Jóna Hilmarsdóttir
2