Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - sep. 1997, Blaðsíða 11
rk • 1
Jiálaball 1997
Tíminn þýtur áfram og senn líður að hausti, þó að ekki sé ennþá farið að
snjóa að minnsta kosti ekki sunnanlands, viljum við nota tækifærið og
minna á okkar árlega jólaball sem haldið verður sunnudaginn
28. desember nk. kl. 16.30 í sal F.Í.H. við Sogaveg.
Eins og á síðustu skemmtun mun Edda Borg ásamt hljómsveit sinni sjá um
að allir skemmti sér vel og að sjálfsögðu mun jólasveinn koma í heimsókn
með eitthvað gott í pokahorninu handa börnunum.
Við hvetjum alla sem möguleika eiga á því að koma með börnin sín og eiga
saman góða stund og reyna að endurvekja stemninguna sem var í þá gömlu
og góðu daga er jólaböllin voru haldin á Hótel Höfn á Sigló.
Stjórn jólaballsnefndar
Þessar ungu, glæsilegu ogprúðbúnu stúlkur
eru allarfœddar árið 1937. Síðustu helgina í
júlí í sumar hittistþessi árgangur og afþví
tilefiii ákvað ritstjóri að birta þessa mynd sem
hannfann í albúmi hjá frænku sinni í Kópa-
vogi, Áslaugu Gunnsteinsdóttur.
Efri röðfrá vinstri: Anna Þráinsdóttir og
Sigrún Davíðsdóttir. Neðri röð frá vinstri:
Helga Ólafsdóttir (Ólafs læktiis), Steinunn
Gunnsteinsdóttir Grónvaldt (Baddý) og
Hrafnhildur Stefánsdóttir (Rabbý hans
Stebba Guðmtinds). Helga er látin.
Myndin líklega tekin árið 1947
Ritstjóri
11