Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - sep. 1997, Blaðsíða 10
Eíísabet
Guðmundsdóttir
áttrœð
28. júlí 1997
Á Siglufirði sólin skein
um sumarfagra daga
ogþú varst, Dúa, ekki ein
að arka þar um haga.
Því síldin æddi upp á land
og öllþau lærðu og kunnu
að setja á hana sigurband
og salta niður í tunnu.
Þótt lífið sýni tökin tvenn
og tíminn kreppi hnefa,
ífórum þínum áttu enn
ómælt bros að gefa.
Attir bónda og barnahóp
svo brátt varð mörgu að sinna
og óðar létfætt hjörðin hljóp
úr húsi til að vinna.
En þú varst hússins heiðursfrú
og hlúðir vel að öllum.
Þú efldir hlýju og æskutrú
gegn öllum skakkaföllum.
Með hópnum þínum hafðu í dag
heill oggleði sanna.
Eigðu söngsins Ijóð og lag
í Ijósi minninganna.
Lóa Þorkelsdóttir
Gönguferð á Esjuna
21. september
Á síðasta aðalfundi SÍRON sl. haust var komið á fót útivistarnefnd.
Formaður hennar er Helga Ottósdóttir en aðrir í nefndinni eru
Þorsteinn Birgisson, Hákon Olafsson og Jóhann Vilbergsson.
Fyrsta ferð, gönguferð á Esjuna, er fyrirhuguð 21. september,
daginn eftir árshátíðina!
Siglfirðingar sunnan heiða og aðrir eru hvattir til að mæta við Mógilsá
kl. 12.00 ef veður leyfir.
Hvað er meira hressandi en góður göngutúr eftir dansinn kvöldið áður?
10