Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - mai 2011, Síða 2
SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ
FRETTABLAÐ
ÚTGEFANDI OG ÁBYRGÐ:
SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ
RITSTJÓRI:
S. JÓNA HILMARSDÓTTIR
Ágætu félagar.
Gleðilegt sumar. Félagið okkar er
50 ára í ár, var stofnað á afmælis-
degi sr. Bjarna Þorsteinssonar
14. október 1961. Mikið er um
viðburði í tilefni afmælisins.
Einnig er í ár haldið upp á 150
ára afmæli sr. Bjarna, heiðursborgara Sigluíj'arðar og
þjóðlagasafnara. Stefnt er að útgáfu ævisögu sr. Bjarna
14. október í haust.
Afmælisárið hófst með dansleik á veitingastaðnum
Spot í Kópavogi í janúar sl. í samvinnu við unga
siglfirska listamenn sem þar tróðu upp.
Fjölskyldudagurinn verður svo haldinn í Grafar-
vogskirkju sunnudaginn 22. maí og hefst með messu kl.
14.00. Sr. Vigfús Þór Árnason prédikar og Jón
Sæmundur Sigurjónsson, fyrrverandi formaður
Siglfirðingafélagsins, flytur hátíðarræðu. Veitingar og
spjall verða í Safnaðarheimili Grafarvogskirkju á eftir.
Hin árlega Þjóðlagahátíð verður 8.-10. júlí á
Siglufirði. Ber hátíðin að þessu sinni yfirskriftina
„Látum dansinn duna“ og verður að stórum hluta
tileinkuð sr. Bjarna Þorsteinssyni.
Afmælisútgáfa af Fréttablaði Siglfirðingafélagsins
kemur út í október í haust. Stórt, fjölbreytt og veglegt
blað í tilefni afmælisársins þar sem félagsins og félaga
mun verða minnst með viðeigandi hætti.
Þann 22. október verður svo afmælishátíð á
Broadway þar sem íjöldi listamanna frá Siglufirði mun
koma fram. Verðinu verður stillt í hóf, allir hvattir til að
mæta, takið daginn frá.
í þessu blaði er sagt frá tilurð ævisögu sr. Bjarna
Þorsteinssonar og viðtal við Viðar Hreinsson,
skrásetjara bókarinnar. Einnig er einstakt viðtal við
Höllu Haraldsdóttur myndlistarkonu um listaverkið í
anddyri Sjúkrahúss Siglufjarðar en Halla gerði þetta
eftirminnilega verk árið 1966.
Félagar eru hvattir til að mæta á Fjölskyldudaginn og
í messu í Grafarvogskirkju 22. maí. Jón Ásgeir
Ásgeirsson, barnabarn Jónasar Ásgeirs, leikur á
harmonikku fyrir gesti. Lifið heil,
S. Jóna Hilmarsdóttir.
Sumrinu.
fiimum vú
á mhhUu-
defji féldúsm
22. maí
Fögnum sumri og hittumst í Grafarvogskirkju
sunnudaginn 22. maí nk. Dagurinn hefst meö
guðsþjónustu í kirkjunni kl. 14.00 þar sem sr.
Vigfús Þór Árnason prédikar og Jón Sæmundur
Sigurjónsson flytur hátíöarræöu. Kaffi og spjall
á eftir. Jón Ásgeir Ásgeirsson
leikur á harmonikku fyrir gesti.
Árgangar 1951-1961-1971 fjölmenna og
aöstoöa viö bakstur, uppröðun, þjónustu og
frágang. Siglfiröingar nær og Ijær eru hvattir til
aö mæta, sýna sig og sjá aðra.
Tekið veröur á móti kökum í kirkjunni eftir
klukkan 11.00 sama dag.