Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2011, Page 5

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2011, Page 5
hlustaði á gamalt fólk sem fætt var fyrir 1820 raula þjóðlög og skrifaði upp eftir því. Hann byrjaði að safna þjóðlögum árið 1880 í Lærða skólanum en fór að safna þeim skipulega eftir að hann kom til Siglufjarðar, líklega kringum 1894. Á þessum árum voru menn mikið að safna þjóðsögum og þóttu þjóðlög frekar gamaldags þar sem ný menning tónlistar var að ryðja sér til rúms á íslandi. En Bjarni hélt áfram og vann mikið brautryðjendastarf í söfnun þjóðlaga á árunum 1880 til 1906. Hann skrifaði handritið að þjóðlagasafninu 1899-1904, ritaði mjög ítarlegan formála upp á tæpar 100 blaðsíður. Hann flokkaði allt safnið og skráði. Vann Bjarni mikið þrekvirki við söfn- unina og skráninguna og ákvað að gefa safnið út. Hann sótti um styrk til þess hjá Carlsberg bjórframleiðenda í Danmörku vegna þess að svo kostnaðarsamt verk vafðist fyrir íslenska bók- menntafélaginu. Bjarni var einnig gott tónskáld og samdi all- mörg ágæt sönglög auk Hátíðarsöngva sem enn eru sungnir á helstu stórhátíðum kirkjunnar. Árið 1930 gaf Bjarni út Ættarskrá um sína ætt, mikið rit, og áætlað er að Bjarni hafi verið í kringum tíu ár að safna efni í þessa bók. Kolbeinn og Einar Þorsteinsson, bræður Bjarna, eru nefndir á forsíðu sem „kostnaðarmenn“. Sr. Bjarni var oft kallaður „faðir Siglufjarðar“ á þessum árum sem hann gegndi þar prestsskap. Hann háði mikla sjálfstæðisbaráttu sem lauk með því að Siglufjörður fékk kaupstaðarréttindi árið 1918. Sr. Bjarni var kosinn í fyrstu bæjarstjórn Siglufjarðar. Eina skemmtisögu sagði Viðar mér úr grúski sínu um Bjarna. „Bjarna þótti gott að fá sér í staupinu og var talað um að hann hafi oft sést fara um borð í skip sem komu úr siglingum og kanna áfengisbirgðir sjómannanna og fór einatt ekki frá borði fyrr en allt áfengi var búið. Sjó- mennirnir tóku þá það ráð að vera einungis með hálfa flösku tilbúna þegar Bjarni kom og kölluðu hana prestinn!“ Lengi vel gengu hálfflöskur undir nafninu „prestur“ í ÁTVR á Siglufirði! Mikill áhugi er fyrir útgáfu þessarar bókar um sr. Bjarna Þorsteinsson en útgáfa hennar er styrkt af fjölskyldu Arnolds Bjarnasonar, Siglfirðinga- félaginu, Vildarvinum o.fl. Veröld gefur út. í bókinni er að finna ýmislegt um sr. Bjarna og ævi hans sem ekki hefur áður birst og prýða bókina fjölmargar myndir. Sjb 5

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.