Vesturland

Ukioqatigiit

Vesturland - 30.06.1927, Qupperneq 2

Vesturland - 30.06.1927, Qupperneq 2
2 VESTURLAND. hreppum hafði þó Jón A. Jóns- son haldið leiðarþing með um- ræðufuridum á eftir, og var Finn- ur Jónsson mættur á þeim. Fátt hefir Vesturland írétt af þessum fundum annað en það, að bændum hafi ekki getist að rauða litnum, og þótt Leninsfóstri mjóróma. Munu þeir, sem verðugt er, örari við hann á öðrum greiða en atkvæðum. — Fundir í V.-ísafj.sýslu. Asgeir Ásgeirsson fræðslumála- stjóri hefir undanfarið verið hjá frændfólki sínu í Vestursýslunni. Hafa þeir síra Böðvar Bjarnason haldið fundi í öllum hreppum. Vesturland hefir ekki frétt af fund- unum, en eflaust hafa þeir farið vel fram af hálfu frainbjóðend- anna, sem báðir eru hinir virðu- legustu menn. Vesturland tnun skýra nánar frá fundahöldum, eftir því sem því berast af þeim áreiðanlegar iréttir. A Tíma vísu. hað er ekki venjulegl og þykir tæplega sæmandi, að þingmanns- efni haldi þingmálafundi áður en framboðsfrestur er liðinn þegar Alþingiskosningar standa fyrirdyr- um. Ný framboð geta komið fram og breytingar orðið á framboðum alt til þess er framboðsírestur er út runninn. Ritstj. Tímans gat ekki fylgt þessari sjálfsögðu reglu, en rauk í það strax að þingi loknu að halda fundi í Strandasýslu. A þessum fundum lét hann þess allsstaðar getið, og er það end- urtekið f Tímanum, að hann hafi með engu rnóti getað fengið keppi- naut sinn Björn Magnússon til að mæta sér á hólmi, og gefur í skyn, að hann hafi ekki þorað það. Björn Magnússon er ekki talinn hugdeigur af þeim sem þekkja hann. Þeirra vegna þarf því ekki að leiðrétta þetta. En Vesturland vill samt gera Tr. Þ. þann ógreiða að skýra rétt frá þessu máli. Rétt eftir þinglausnir talaði Tr. Þ. við B. M. í síma og sagði honum, að hann færi eftir nokkra daga (28. maí) norður í Stranda- sýslu til fundahalda og spurði hvort hann, B. M., sem hann hefði heyrt að yrði þarframbjóð' andi, vildi ekki mæta á þeiin fund- um. B. M. kvaðst ekki geta svar- að því samstundis, en tveiin dög- um síðar talaði hann við 1'r. Þ. og sagði honuni, að harin teldi ekki rétt að halda fundi svo snemma (áður framboðsfrestur væri útrunninn) og sagði að heim- ílisástæður (veikindi) væru því til fyrirstöðu, að hann gæti farið að heiman þá þegar. Fór hanri fram á það, að þeir frambjóðendurnir héldu sameiginlega fundi um 20. júní og færði enn sem ástæðu, að forsætisráðherra hefði ákveðið að halda stjórnmálafundi í Stranda- sýslu utn þetta leyti, er hann kæmi úr siglingu, og taldi, heppilegt að þessir fundir gætu faHið saman. Tr. Þ. aftók með öllu aö hann, gæti mætt á fundum á þessum tíma eða nokkrum öðrum, en hann hafði áður um taiaö. Kvað hann heimilisástæður sínar því til fyrir- stöðu; svo og þaö, að hann ætl- aði að sitja aðalfund B. Í. þ. 25. júní. Skildi þarna með frambjóö- endum. Og leiðir þeirra skildi á fleiri vegu. Tr. Þ. bar það út um alla Strandasýslu, að B. M. hefði ekki viljað mæta á fundum með sér (þótt Björn biði honum sam- eiginleg fundahöld) og gaf í skyn, að keppinautur sinn þyrði ekki að mæta á hólmi, en vildi fá tæki- færi til að koma aftan að sér. Sagðist hann ekkert hafa vitað, fyr en liann kom norður þangað, að Björn ætlaði. að halda fundi um 20. júní. Því siður að ráð- herra væri þangað von. Björn þar á móti halhnælti Tryggva livergi, þótt hann skor- aðist undan því að liafa meö hon- um sameiginlega fundi, og virti sein vera bar, ástæður hans. Tryggvi undir eftiriiti. Þegar íorsætisráðherra fékk það að/ vita, að Tr Þ. ætlaði að halda fundi sína á undan keppinaut sín- um og honum, fékk hann hraðrit- ara, sem var á ferð norður í Hrútafiröi, lil afi rita ræðu hans. Tryggvi reyndi aö telja Stranda- mönnum trú um, að þetta væri hinn mesti sómi fyrir sig, og lést vera rnjög upp með sér, en sjálf- sagt hefir liann rent grun í ástæð- una, sem var auðvitað sú, að for- sætisráðherra hefir gert ráð fyrir, að liann mundi deila á stjórnina, og ætlað að svara því fyrir sömu áheyrendum, en til þess þurfti hann að vita hvað Tr. Þ. hafði sagt. E. t. v. hefir honum og dott- ið i hug, að ekki yrði óhlutdrægt eða ráðvandlega skýrt frá þing- tnálum. Tryggvi á nokkra fortíð. — Ekki er vert að fullyrða neitt um það, hvernig ræða Tr. hefði orðið, ef honum liefði gefist kost- ur á að flytja hana eftirlitslaust, en um það getur hver gert sér nokkra hugmynd, er hanp sér, hvað harm leyfði sér undir eftir- litinu. Skulu því hér tilfærð nokk- ur atriði: Kæliskipið. í þessu máli sneri Tr. alveg við sánnleikanum. Sagði hann sig per- sónulega og samflokksmenn sína hafa komið því rnáli frám. And stæðingar þess voru auðvitað stjórnin og íhaldið. Sem betur fer vita flestir lands- inenn sannleikann í þessu tháii. Atvinnumáiaráðh. Magnús Guð- inundsson leysti það mál og átti Tr. og Frainsókn engan þátt í því. Tr. Þ. Iiafði vérið í nefnd, sem kosiri var í málið. En sú nefnd klofnaði, og korn minni hlutinn, sem Tr. var í, með tillögur, sem iðeins voru stilaðar til að veifa framan í þá fáfróðari af kjósend- um. Engum þm. datt víst í hug að taka þær í alvöru. Vildu þeir kumpártar láta ríkissjóð byggja á eigin spítur tniljóna skip. Aðrir nefndarmenn bentu á, að fyrst bærí aó vinna markaðinn meö vel hepnuðum sendinguin. Það tekur langan tíma að vinna siíkan markað, og ríður á að spilia ekki fyrir sér í byrjun, hvorki með lélegri vörtt né of miklu framboði. Enginn leit sem sagt við tillög- um Tryggva, en stjórnin fann þá lausn á málinum, sem enginn leyfir sér nú að hafa í móti. En svo kemur Tr. norður á Strandir og segir að þetta sé sitt verk! Kjöttollurinn. Tr. Þ. sagði, að enginn einn maður hefði gert jafn mikið fyrir kjöttollsmálið og hann. Þetta er að þvi leyti satt, að enginn einn maður hefir unnið landinu jafn óbætanlegt tjón í því máli, sem ritstj. Tímans. Stjórn sú er Frantsókn réði, hafði setið 11 /2 ár frá því kjöttollurinn var fyrst hækkaður. og þar til hún hrökklaðist frá. Á þvt tfmabili hafði hénni orðið það ágengt, að toll- urinn hafði verið hækkaður tvisvar á ný. Norðmenn liöfðu ekki einu sinni nmnað eftir okkur, þegar tollurinti var fyrst hækkaður. Okkar kjöt fylgdi bara með í athugaleysi því verðinætara kjöti, sem tollurinn var stílaður gegn. En Tr. Þ. vakti fyrstur tnanna eftirtekt Norðmanna á því, að þeir ættu að fá sérstakar ívilnanir hér á landi, ef þeir lækk- úðu tollinn. Og þáverandi atv.m.- ráðh., tengdafaðir Tr., fór að veita þær tvilnanir, án þess nokkuð kæmi í móti nema nýjar hækkanir. En núverandi stjórn hafði ekki setið nema mánuð að völdum, þegarhún hafði samið ttm lækkun kjöttollsins, án þess að gefa nokkrar frekari íyilnanir, en áður vortt gefnar. Já, þjóðin á Tr. og Tímanum mikið að þakka i kjöttollsmálinu! Þá fræddi Tr. Strandamenn á því, að Jarðræktarlögin og Rækt- unarsjóðurinnn væru sér að þakka. Sá maöur' á, tæplega gnægð sjálfvaxinna fjaöra, sem ekki reynir á öðru að fljúga en stolnum fjöðr- um. En óheppilegt var það að minstakosti að grípa í þessu skyni til Ræktunarsjóðsins, sem Tr. hefir varið svo miklum tíma til að ó- frægja og sýna fram á, að sé hefndargjöf íhaldsins til bænda. Sáðmenn Tímans. Tfmaforkólfarnir tóku snemma upp þá hernaðaraöferð að senda ár hvert menn út um alt land lil að flytja mál flokksins og útbreiða málgagrt lians. Til þessa eru valdir ttngir og sporviljugir menn, sem fátt vita og litlum frama hafa áð- ur átt að fagna, og þykir því ttpphefð að þvi að vera valdir sem trimaðarmenn svona öflugs stjórnmálaflokks. Menn þessir eru uppfræddir á Tímavísu og þeini lögð öll orð í munn. Hundtrygðir með matarvoninni og skjalli leggja þessir auiningjar af stað, einfaldir í trúnni á matgjafann, en vitandi ekkert um opinber mál. Snemma tók þessi trúboðsstarf- semi cinhliða ákveðna stefnu, þá, að níða Timaandstæðingana. Þetta stafaði fyrsl og fremst af því, að þeitn er uppfræddu trúboðatia og sendu, var tungutamast upploginn óhtóður um andstæðinga sína, og í annan stað voru slík fræði auð - lærðust, en gáfnafar sendimanna oft á þann veg, að þörf var á að létta námið sem tnest. A s. I. vetri var trúboðunum fyrir lagt að flytja aðallega tvenn fræði. í fyrsta lagi að þylja upp utan að lærðar klausur tint þaö, hvernig núverandi stjórn væri búin að setja ríkið á hausinn fjárhags- lega. í öðru lagi að hrósa forkólf- um Tímans og skýra frá því, að þeir hefðu opnar leiðir til að rétta alt við, svo hagur allra lands- manna stæði á sköinntum tíma í blóma, ef þeir aðeins kæmust í stjórn og fengju að njóta sín. Þessir menn eiga auðvitað helst að þefa uppi þá sem ófróðir eru, en fyrir kemur það þó, að þeir lenda hjá mönnum, sem betur vita, og verður þeim þá veganestið — lýgi lærifeðranna að mestu ógagni. Er skoplegt að sjá þessa vesalinga í gapastokknum, setn þeir eru svo auðleiddir í. Eitt slíkt atvik kom nýlega íyrir hér í sýslu. Útsendari Tímans kom á bæ einn, þar sem margbýli var. Hitti hann einn bóndann og bauð Tímann; fór síðan að leysa frá fræðasyrpunni. Bóndi kvaðst alls ómóttækilegur fyrir pólitík og lét lítið yfir þekkingu þeirra sambýlis- manna, cn vísaði þó tii eins sam- býlings síns, er hann kvað vera fyrir þeim. En þetta var hin mesta forsend- ing, sem síðar kom fram. Trúboðinn drap nú á'dyrhjá þeim, sem til var vísað, og liugð- ist nú gegnum þennan eina mann brátt mundu méfkja Tlmanum alla sambýlingana. Bóndi bauð gesti til stofu og lét sem hann væri alls ófróður í stjórnmálunum, en lagði við bæði eyru. Trúboðinn vildi nú ekki spara útsæði í svo frjóan akur og þuldi upp alt er honum liafði verið kent. Sagði hann Jón Þor- láksson hinn mesta skaðræðis- mann, sem nú væri best á dagiun komið; væri hann búinn að eyða öllu fé rikissjóðs og taka ógurleg lán, sem öll væru upp etin. Nefndi hann stórlán í Englandi, sem Jón hefði ekki nú um langt skeið get- að borgað af samkvæmt samningi og ætti því að fara að ganga að ríkinu. Bóndi teygði flónið lengra og lengra út á hálkuna og lést ekkert vita, en þegar honum fór að leiðast, sneri hann við blaðinu og sagði pilti sannleikann í þess- um málum. Bað hann nú þyggja góð ráð og snúa heim aftur, því bændur væru yfirleitt svo vel að- sér, að slíkar lygar sem þessar. blektu þá ekki. Drengrýjan vissi nú ekki hvað hann átti af sér að gera. Hatin vissi ekki hverju trúa skyldi, en það eitt vissi hann, að hatin sjálf- ur vissi állra manna minst, hafði verið illa að heiman búinn og orðið gintur sem þurs. Hvarf hann af bænum tneð svo miklu skyndi, að við sjálft lá að liann færi sér að voða. Fór hann flóttalega um sveitina og lagði kollhúfur, er hann varð á vegi bænda. Oft vill það sýna sig, hve upp- fræðsla Títnans kemur hatts eigin mönnum i koll. Verður það tnest að baga þeitn, sem standa eiga fyrir máli Tímaflokksins á niann-

x

Vesturland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.