Vesturland - 15.02.1947, Qupperneq 5
VESTURLAND
5
VESTURLAND
Ritstjórar og ábyrgðarmenn:
Sigurður Bjarnason frá Vigur
Siguröur Halldórsson.
Skrifstofa Uppsölum
Sími 193.
Verð árgangsins 10 krónur.
Afgreiðsla:
Hafnarstræti 14 (Uppsalir)
Jtað sumar voru þarna 43 telp-
ur. Man ég það að við lærðum
þarna að stoppa og bæta,
rikkja og kappmella, falda og
sauma húllsaum, og allt fór
þetta fram á laugri hörlérefst-
prufu, og kenndi þar margra
grasa, eldri telpurnar hekluðu
og saumuðu þann útsaum, sem
þá tíðkaðist.
Eitt haustið var farið með
hópinn inn í skóg. Skólinn
starfaði í nokkur sumur, en að-
sóknin þótti ekki nægileg, en
sú ástæða var fyrir því, — cins
og segir í gamalli fúndargerð
um aðsóknina, „að fátækt fólk
horfir í að taka börn sín, sem
annars geta gengið í vinnu., og
láta þau ganga í skólann,
hæsta vinnutímann".
Þetta var sem sé á saltfisks-
öldinni, þegar að Isafjörður
var Jjlómlegur bær, eins og þar
stendur, einhver mesti útflutn-
ingsbærinn á öllu landinu, og
saltfiskurinn setti svip á bæ-
inn, þegar bærinn var í góðu
veðri á sumrin, nálega ein
samhangandi fiskbreiða frá
Skúla Thoroddsen og niður í
Suðurtanga-odda, úti á Riis-
túni og víðar, — og þessi drif-
hviti fiskur á reitúnum, hann
var bæjarprýði, hann var okk-
ar „stolt“ í þá daga. Gamlir
Isfirðingar kannast við þessa
augnabliksmynd af bænum,
'þegar allir voru í önnum við
saltfiskinn, — en það er önn-
ur saga. En það var sem sé
engin furða, þótt telpurnar
hefðu ekki tíma til að sitja við
sauma, — því það þótti nayð-
synlegra. að breiða fisk, fyrir
10 aura á tímann.
Þennan skóla má telja vísir
að Húsmæðraskólanum.
Nú var larið að tala um mat-
reiðslunámskeið og það haldið
1911, að nokkru leyti fyrir til-
hlutan félagsins, en 1912 var
Húsmæðraskólinn stofnaður.
Fyrstu árin var hann starf-
ræktur í húsi Eðvarðs Ás-
mundssonar kaupmanns, föður
frú Láru Eðvarðsdóttur, — í
húsi því í Pólgötu, sem í dag-
legu tali nú er kallað „Stjarn-
an“. Var ]iað heimangöngu-
skóli. Fyrsta forstöðukonan
var frk. Fjóla Stefánsdóttir
Félsted. Veitti hún skólanum
forstöðu í 5 ár, eða þangað til
afleiðingar fyrra striðsins
stöðvuðu hann í bili.
En konurnar í kvenfélaginu
Ósk voru ekki á þvi að gefast
upp, alltaf voru þær að tala
um skólann, og fyrir tillögu
okkar mætu og góðu félags-
konu, frú Sigríðar Jónsdóttur
í Dagsbrún, sem því miður er
ekki hér viðstödd í kvöld, en
sem við í huganum sendum al-
veg sérstaklega hlýjar kveðjur
og þakkir — var hafist handa á
ný, og 1921 tók skólinn aftur
til starfa, veitti honum þá for-
stöðu frk. Gyða Maríasdóttir,
héðan úr bæ, átti hún mikinn
þátt í mótun skólans, og aflaði
honum orðstírs og álits þau 12
ár, sem hennar naut við. En
hún andaðist sem kunnugt er
1936 — og þegar við á þessu
kvöldi erum að minnast ár-
anna, hugsum við til hennar
með hlýjhug og þakklæti fyr-
ir „skólans fræðslu og forsjá,
fórn og vinarhug“. —
Kvenfélagið Ósk starfrækti
Húsmæðraskólann í 22 ár, eða
þangað til haustið 1941, að hús-
mæðrafræðslulögin nýju gengu
í gildi, og hann var gerður að
„ríkisskóla“, sem kunnugt er.
Félagið áskildi sér þó rétt til
að hafa hlutdeild í stjórn skól-
ans.
Þær kvenielagskonur, sem
lengsl áttu sæti í skólastjórn-
inni, eru þær frú Kristín Sig-
urðardóttir, sem var form.
skólanefndar í 17 ár. Frú Sig-
ríður Jónsdóttir, frá 1924, —
og frú Anna Björnsdóttir i
mörg ár.
Þær voru þrautseigar þessar
konur, og gáfust ^kki up-p, þótt
stundum væri erfiður áfanginn
með skólann, en þeim tókst
líka að leiða hann yfir örðuga
hjalla, í örngga höfn.
En þó að skólinn sé nú orð-
inn „rikisskóli", mun Kvenfé-
lagið Ósk samt ekki hætta að
hugsa um hann, og ég full-
yrði, að það muni alltaf sýna
honum umhyggju, stuðning og
velvild.
1 stjórn Húsmæðraskólans
eru nú: Baldur Johnsen, hér-
aðslæknir, er hann formaður
skólanefndarinnar, skipaður
af ríkinu. Frú Lára Eðvarðs-
dóttir, og Helgi Hanness., kenn-
ari, tilnefnd af bæjai’stj. Isa-
fjarðar, og þær frú Sigríður
Jónsdóttir í Dagsbrún og frú
Sigríður Guðmundsdóttir frá
Lundum, kosnar af Kvenfélag-
inu Ósk.
Forstöðukonur skólans hafa
verið auk þeirra frú Fjólu
Stefánsdóftur og frk. Gyðu
Maríasdóttur, sem áður eru
nefndar, þær: frú Dagbjört
Jónsdóttir, frú Ingibjörg Jóns-
dóttir, frk. Jónína Guðmunds-
dóttir og núverandi forstöðu-
kona er: frk. Þórey Skapta-
dóttir.
Við vonum að þessi „auga-
steinn“ kvenfélagsins eigi eftir
að vinna þessum bæ og þjóð-
inni í heild sóma og gagn með
því að ala upp sannmenntaðar
og kristilega sinnaðar konur,
sparsamar, ráðdeildarsamar,
umhyggj usamar fyrirmyndar
húsmæður.
Þegar minnst er á starf
Kvenfélagsins Ösk, má ekki
gleyma sumrinu 1927. Þá kom
félagið upp heimilisiðnaðar-
sýningu hér í bænum. Var
salnað á hana um 700 munum
úr bænum og nágrenni.
Mæltist þetta framtak vel
fyrir. Sýningin var opin dag-
ana 15.—20. júní, því 19.
j úni var líka verið með
skemmtun og Basar. A seinni
árum hafa saumanámskeið
verið haldin á vegum félagsins
á vetri liverj um. Þau eru mj ög
vel látin, og til mikillar gagn-
semdar fyrir heimilin.
Þá er að minnast á einn
veigamesta þáttinn í starl-
semi félagsins, en það er sú
líknarstarfsemi, sem félagið
hefur innt af hendi öll þessi
ár. 1 17 ár var haldið jólatré
fyrir fátæk börn. Var boðið
um 200 börnum, þegar flest
var og þeim veittar góðgcrðir.
En eftir að fleiri félög fóru að
hafa. jólatré og bjóða börnum,
jólatré var komið í hvert hús
að heita má,og sælgætið nálega
á hvers manns borði, þá var
. var fyrirkomulaginu noklcuð
breytt.
I 39 ár hefur Kvenfélagið
Ósk hlúð að fátækum sængur-
konum á ýmsan hátt, þeim
hefur verið lánaður sængur-
fatnaður, nærfatnaður, gefin
barnaföt, og heimfærður mið-
degismatur sængurlegutímann,
þegar um hefur verið beðið, og
sjúkrahúsvist greidd, þegar
þörf var á því.
Og mörgum hefur Kvenfé-
lagið Ósk reynt að sýna sam-
úð þessi árin, þegar sjúkdóm-
ar eða aðrir erfiðleikar hafa að
höndum borið. En það
eru „hljóðu verkin“ og verða
ekki gerð að umtalsefni hér.
Sem að líkum lætur, hafa
margar mætar konur verið í
Kvenfélaginu Ósk þessi 40 ár.
Eins og gengur ílengdust sum-
ar ekki lengi, en aðrar áttu ó-
rjúfandi tryggð. Af stofnend-
um félagsins eru 3 enn eítir
hér í félaginu. En það eru þær:
frú Ástríður Ebenesersdóttir,
frú Kristín Sigurðardóttir og
frú Helga Tómasdóttir, en auk
þeirra er í Rvík frú Andrea
Filippusdóttir. Eru þær allar
heiðursfélagar. — Þessumlion-
um með 40 ára- tryggð og mikil
og margvísleg störf að baki,
minnumst við alveg sérstak-
lega og þökkum þeim allt, sem
þær hafa uniiið og á sig lagt
fyrir félagið. Þessar konur eru.
allar mikið búnar að starfa,
hafa verið þrautseigar og ekki
horfið frá þeim félagslega
verkahring, sem þær upphaf-
lega lögðu út í.
Það er oft ýmsum erfiðleik-
um háð að vera í félagsskap,
reynir þá stundum á mann-
gildið að guggna ekki eða gef-
ast upp.
En þessar konur héldu sína
leið að settu marki. Þær báru
tryggð til félagsins, og höfðu
skilning á þvi að það er borg-
araleg skylda, að liðsinna góð-
um málefnum, eftir þvi sem
hver og einn getur.
Við þökkum ykkur, kæru
heiðursfélagar, sem hér eruð
og hinum, sem sökum ’elliár-
anna ekki gátu verið hér við-
staddar í kvöld, — kærlega
fyrir ykkar langa og vel unna
„dagsverk“ i þágu félagsins.
Að lokum vil ég geta þess,
liverjar hafa verið formenn
Ivvenfélagsins Ósk.
1. Frú Camilla Torfason 6 ár.
2. Frú Margrét Auðuns 4 ár.
3. Frú Kristín Sigurðard. 6 ár.
4. Frú Anna Björnsdóttir 4 ár.
5. Frú Andrea Filippusd. 4 ár.
6. Frú Helga Tómasdóttir 4 ár.
7. Frú Sigrún Júliusdóttir 8 ár.
8. Frú Guðrún Pétursd. 1 ár.
9. Frk. María J.ónsdóttir 2 ár.
10. Frú Guðbjörg Bárðardótt-
ir, sem er núverandi formaður
félagsins.
1 fyrstu stjórn kvenfélagsins
Ósk voru þessar konur:
Form. frú Camilla Torfason.
Ritari frú Þórunn Thorsteins-
son.
Gjaldkeri frú Kristjana Jóns-
dóttir frá Gautlöndum.
Meðstj.: frú Steinunn Thord-
arson og frú Helga Jónsdótt-
ir (í Norðurtanganum.)
I dag á þessum tímamótum,
þegar lélagið éí’ 40 ára, er
stjórnin þannig skipuð:
Form. frú Guðbjörg Bárðard.
Varaf. frú Sólveig Ölafsdóttir.
Ritari frú Bergþóra Árnadóttir.
Gjaldk. frú Kristín Einarsd.
Meðstj.: frk. Jónína Jónsdótt-
ir. Fyrir hönd stjórnarinnar
vil ég leyfa mér að þakka öll-
um félagskonum, eldri sem
yngri, lífs og liðnum, fyrir vel
unnin störf í þágu félagsins.
Okkar sameiginlega ósk og
von er sú hin sama og for-
göngukyennanna fyrir 40 ár-
úm: Við óskum þcss að við
getum haldið hópinn og látið
eitthvað gott af okkur leiða hér
í bænum í framtíðinni.