Vesturland - 11.01.1949, Síða 6
6
VESTURLAND
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður Bjamason frá Vigur
Skrifstofa Uppsölum, sími 193
Verð árgangsins krónur 20,00
Afgreiðsla og auglýsingar Hafnarstræti 12 (Uppsalir)
Hjakkað í sama farinu.
Samkvæmt yfirlýsingum ríkisstj ómarinnar á Alþingi fyrir
jólin er ráðgert að á þessu nýbyrjaða ári verði varið a.m.k. 70
miljónum króna til dýrtíðarráðstafana. Er það svipuð eða
nokkru hærri upphæð en ríkissjóður mun hafa greitt á árinu
1948 til niðurgreiðslna á verði nauðsynj avara innanlands og
uppbóta á útflutningsafurðir, fisk og kjöt.
Þrátt fyrir þennan óhemju fjáraustur úr ríkissjóði í hít dýr-
tíðarinnar getur engum dulist að dýrtíðin er stöðugt að aukast.
Atvinnulífið á stöðugt erfiðara uppdráttar. Og dýrtíðin bitnar
með vaxandi þunga á öllum almenningi.
Rétt fyrir jólin samþykkti Alþingi tvenn lög, sem fyrst og
fremst eru til þess ætluð að létta byrðum af vélbátaútgerðinni
og halda dýrtíðinni i skefjum. 1 þeim fyrri er gert ráð fyrir að
létt verði nokkuð skuldabyrði útvegsins vegna aflabrests á síld-
veiðum. 1 hinum síðari er útgerðinni veittur gjajdfrestur á skuld-
um þehn, sem hún hefur stofnað til vegna síldarútgerðar.
En megin atriði hinnar nýju dýrtíðarlöggjafar er framlenging
á ábyrgð þeirri, sem ríkissjóður héfur tvö s.l. ár tekið á útflutn-
ingsverði bátaútvegsins og hraðfrystihúsanna. Samkvæmt hin-
um nýju lögum er gert ráð fyrir óbreyttu verði.
Hvorki ríkisstjórn né Alþingi mun hafa dulizt það, þrátt fyrir
samþykkt þessara ráðstafana, að í þeim er lítið bjargráð. Það
er fráleitt að láta sér koma til hugar að aðalatvinnuvegur þjóð-
arinnar verði til lengdar rekinn með ríkisstyrkj um og uppbótar-
greiðslum á afurðaverð hans.
Það er hægt að hugsa sér að vöruverði innanlands megi halda
niðri með greiðslum úr ríkissjóði. En frumskilyrði þess, að það
sé mögulegt, er að útflutningsframleiðslan beri sig, þegar svo er
komið að hana þarf að verðuppbæta úr ríkissjóði ár eftir ár er
auðsætt að út í fullkomið öngþveiti og vitleysu er komið.
En til þess að halda þessum ráðstöfunum, niðurgreiðslum á
vöruverði innanlands og uppbótum ó afurðir bátaútvegsins verð-
ur rikissjóður að leggja á háa skatta og innheimta ýms gjöld af
borgurunum. Þannig hafa með hinni nýsamþykktu dýrtíðarlög-
gjöf verið lögð á gjöld, sem eiga að færa ríkissjóði miljónatugi
í auknum tekjum. Er þar að vísu leitast við að skattleggja óþarfa
eyðslu og draga þar með úr verðþenslunni innanlands.. En sum
þessara gjalda hljóta óhj ákvæmilega að leiða til aukinnar dýr-
tíðar og verðþenslu. Ber þar til að nefna söluskattinn, sem hækk-
aður er um helming og á að skapa rikissjóði 34 milj. kr. tekjur
á þessu ári. Ennfremur hefur verið boðuð mikil hækkun benzin-
skattsins og mun benzinlíterinn hækka við það upp i eina krónu.
Báðir þessir skattar hljóta að auka dýrtíðina í landinu.
En verzt ér'þó að mæta þeirri staðreynd að hin nýja dýrtíðar-
löggjöf skapar bátaútveginum engan veginn rekstrargrundvöll
þannig að við borð liggur að hann stöðvist að verulegu leyti.
Ríkissjóð brestur hinsvegar bolmagn til þess að ganga lengra í
stuðningi við hann.
Sá sannleikur blasir þessvegna greinilegar við nú en nokkru
sinni fyrr að eina leiðin til þess að tryggja rekstrargrundvöll
atvinnutækj anna er raunveruleg lækkun framleiðslukostnaðar-
ins. Alþingi og ríkisstjórn skilja þetta vel en ótti stjómarfor-
ystunnar, Alþýðuflokksins, við kommúnista og fíflalæti þeirra,
torveldar skynsamlegar aðgerðir. Þessvegna er hjakkað áfram
í fari úrræðaleysisins í þessum málum. Það er sú mynd, sem
blasir við augum þjóðarinnar á þessu nýbyrjaða ári.
ENN FARA ÞEIR.
Hver fær
Undanfarið hafa margir
verkamenn og sjómenn i bæn-
um, sem fylgt hafa Alþýðu-
flokknum að málum og sumir
hverjir í fjölda ára, látið ó-
spart í ljós gremju sína yfir
því hvernig leiðtogar þessa
flokks hafa blekkt þá hver á
fætur öðrum. Þessir alþýðu-
menn hafa sagt, að þeir hafi
fylgt þessum flokki að málum
vegna þess að þeir tx-úðu því
að flokkurinn og leiðtogar
þeirra vildu vinna fyrir þá,
skapa þeim atvinnu, öryggi og
um leið betri lífskjör, því hafa
þeir talið þessa leiðtoga Al-
þýðuflokksins sína velgerðai’-
menn, menn sem óvallt hugs-
uðu um hag fjöldans, en ekki
sjálfs síns.
En nú er skoðun jxessara al-
þýðumanna að breytast, nú eru
þeir búnir að sjá að þessir
menn eru ekki þeirra menn,
sem vilja berjast við hlið al-
þýðufólksins í blíðu og stríðn,
heldur eru þeir aðeins eigin-
hagsmunamenn, sem hugsa um
að korna sér í feitar stöður,
þessir menn benda réttilega á,
hvað hefur skeð hér á Isafirði.
Haraldur Guðmundsson, hann
kom sér í bankastjórastöðu og
er nú forstjóri einnar fjár-
sterkustu stofnunar landsins,
Tryggingarstofnunar ríkisins.
Vilmundur fór héðan og kom
sér í landlæknisembættið. Finn
ur er farinn héðan, hann er nú
að verða „innkaupastjóri rík-
isins,“ undanfarið hefur hann
verið talinn einn bitlingasj úk-
asti maðurinn á landinu, og
orðið vel ágengt. Og nú er
Helgi farinn, hann er bæjar-
stjóiá í Hafnarfirði.
Hafa menn gert sér grein
fyrir hverjir það eru, sem hafa
hleypt öllum þessum spekú-
bita næst?
löntum til vegs og virðingar?
Það er alþýðufólkið í þessum
bæ, sem skapað hefur þessum
mönnum, þessar góðu stöður,
með pólitízkum metorðum
hafa þeir tyllt sér þar. Allir eru
þeir nú horfnir héðan, þeir
lifa í vellystingum syði-a við
gnægð fj ár, um ykkur ísfirzka
alþýðumenn varðar þá ekki
neitt, þeim er gersamlega sama
um ykkur, nema Finni, hon-
urn er ekki sama, þvi hann vill
nota yklcur til þess að fleyta
sér inni á Alþingi, en ekki til
þess að vinna að málum ykkai’,
eða þessa byggðarlags í heild.
Það hefur enginn Isfirðingur
séð eða vitað hann gera, en hitt
vita Isfirðingar að Finnur vill
vera alþingismaður fyi’ir sig
og þá aðstöðu sína. hefur hann
notað til þess að ti’oða sér í
„innkaupast j órastai’fið.“
Alþýðufólldð hér á Isafirði,
er farið að þekkja þessa fals-
spámenn. Það er hætt að óska
þeim góðrar ferðar, það eru
alltaf fleii-i og fleiri alþýðu-
menn, sem fyrirlíta þá og þann
flokk, — Alþýðuflokkinn —
sein er ekki annað en klika
fórra manna, sem nota kjós-
endur sína til þess að koma
sjálfum sér í feitar stöður, und-
ir yfirskyni þeii’ra svívirði-
legu hræsni, að þeir séu að
vinna og berjast fyrir þá fá-
tæku, þá menn sem minnst
mega sín í þjóðfélaginu.
Alþýðumanni, sem fylgt
hefur þessum flokki í fjölda
ára varð nýlega að orði: „Þess-
um hræsnurum fylgi ég ekki
lengur, og það fullvissi ég þá
um, að margir fleiri munu
gera.“ Þessi orð alþýðumanns-
ins ætti allt alþýðufólk að hug-
leiða.
— ------—-—■—~—----—---------———— —— -
Innilegustu þakkir flytjum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð við fráfall og jarðarför Lárúsar
Jakobssonar.
Aðstandendur hins látna.
- ----------------------,-------------------»
V élf ræðinámskeið.
Ef næg þátttaka fæst hefur Fiskifélag Islands gefið kost á
vélfræðinámskeiði, er hefjist fyrri hluta n. k. marzmánaðar.
Þeir, sem vilja sækja námskeið þetta gefi sig fram við:
Arngr. Fr. Bjaraason eða Ki-istján Jónsson frá Garðstöðum.
Umsóknir verða að bei’ast fyrir 25. þ.m.