Vesturland - 24.12.1952, Qupperneq 8
8
VESTURLAND
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður Bjamason frá Vigur
Skrifstofa Uppsölum, sími 193
Afgreiðsla og auglýsingar: Engilbert Ingvarsson, Hafnar-
stræti 12 (Uppsalir). — Verð árgangsins krónur 20,00.
?
Nú skal leika á langspilið veika
og lífsins minnast í kveld,
hjartanu orna við hljóma foma
og heilagan jólaeld,
meðan norðurljós kvika og blástjörnur blika
og boganum mínum eg veld.
Eg blundaði hljóður við brjóst þín, móðir,
sem blómin um lágnættið.
Þú söngst um mig kvæði; við sungum bæði
um sakleysi, ástir og frið.
Þú gafst mér þann eld, sem eg ennþá í kveld
get ornað hjartanu við.
Þú hófst mína sál yfir hégóma og tál
og hug mínum lyftir mót sól.
Þú gafst mér þá þrá, sem eg göfgasta á,
og gleði, sem aldrei kól.
Ef eg hallaði mér að hjarta þér,
var mér hlýtt; þar var alltaf skjól
En útþráin seiddi mig ungan og leiddi
á ótroðinn skógarstig.
Þrestimir sungu; þyrnarnir stungu,
og þorstinn kvaldi mig;
þá græddi það sárin og sefaði tárin
að syngja og hugsa um þig.
Og nú vil eg syngja og sál mína yngja
með söngvum um lágnættið hljótt
og hvísla í norður ástarorðum,
meðan allt er kyrrt og rótt,
og láta mig dreyma um ljósin heima,
sem loga hjá mömmu í nótt.
Davíð Stefánsson.
I
I
Jól á Cuha.
Veistu hvað Cuba er? Cuba er
stór, stór eyja. Ef þú hefur ein-
hverntíman litið á landabréf yfir
Ameríku hefur þú kannske séð, að
það er nokkuð sem heitir Norður-
Ameríka og Suður-Ameríka. Á
milli Norður- og Suður-Ameríku
er landið ákaflega mjótt. Þar eru
margar eyjar og heitir sú stærsta
þeirra Cuba.
Á Cuba er alltaf hlýtt. Á vetr-
um er hlýtt og á sumrum ennþá
hlýrra. Það er skrýtið að kaupa
jólatré í 30 stiga hita. Þér finnst
ef til vill að jólatréð og hitinn
eigi illa saman, en ég get sagt þér,
að það er jafn notalegt að hafa
jólatré í stofunni sinni í Havana,
höfuðborg Cuba, eins og það er í
Kaupmannahöfn eða á Isafirði eða
hvar sem vera skal.
Ég kom til Havana í byrjun des-
ember fyrir 5 árum síðan og var
mikil forvitni á að vita hvernig
tækist að skapa jólagleði.
Sízt bjóst ég við að sjá jólatré,
því greni vex ekki á Cuba. En jóla-
trén koma. En það var ekki neitt
venjulegt jólatré. Það kom frá
Bandaríkjunum (meira að segja
frá Hyde Park, hinum stóra bú-
garði Franklin D. Roosewelts, hins
látna forseta Bandaríkjanna), þar
sem grenitré eru gróðursett og
höggvin og send til Cuba fyrir jól-
in.
Trén eru innborin strax og þau
eru höggvin, til þess að þau þoli
hitann, og grenið falli ekki af.
Til Cuba eru trén flutt í kæli-
klefum. Allt þetta umstang gerir
það að verkum að þau eru mjög
dýr. Eitt jólatré kostar 8—10 doll-
ara og er það mikið fé.
Jóladagarnir voru einkennilegir
en skemmtilegir. Veðrið var gott
og hlýtt. Ég fór í sjóinn á aðfanga-
dagsmorguninn. Þeir innfæddu á
Cuba segja að á vetruma sé svo
kalt að ekki sé hægt að fara í sjó-
inn og því byrja þeir fyrst á bað-
ströndinni um páska.
En allir amerísku ferðamenn-
imir og aðrir sem eru á ferðalagi,
fara í sjóinn allan veturinn.
1 sandinum á baðströndinni var
stórt jólatré í fullum skrúða, og
öll börnin á baðströndinni döns-
uðu nakin í kringum það.
Cubabúar halda ekki aðfanga-
dagskvöld hátíðlegt. Hátíðisdagur
þeirra er eiginlega Dia de los
Reyes eða „kvöld þriggja heilögu
konunga", sem er 6. jan. En nú eru
margir farnir að halda jóladaginn
hátíðlegan eins og gert er í
Ameríku. Á aðfangadagskvöld
hengja börnin upp sokkana sína og
jóladagsmorgun reyna þau að
vakna eldsnemma í von um að fá
augum litið Sánti Claus, en svo
heitir jólasveinninn þar. En hann
kemur alltaf svo hræðilega
snemma og stingur jólagjöfum sín-
um í sokka barnanna.
Húsin em öll skreytt með líku
sniði og í Ameríku með ,,farger“
og „guirlander“ og „Happy Christ-
mas“, sem þýðir gleðileg jól.
Á jóladag eru allir á kreiki og
heimsækja hver aðra og gefa og
fá jólagjafir. Efst á óskalista
flestra bamanna eru venjulega
rúlluskautar og reiðhjól.
Það er svo heitt á Cuba, að við
vorum fegin að fá ekki þungan
jólamat, eins og venja er á Norð-
urlöndum. í hitanum er ekki hægt
að torga eins miklu af feitmeti og
kraftfæði og þar er gert.
Á Cuba er enginn sérstakur jóla-
matur. Margir steikja kalkun. En
þeir hafa heilmikið af allskonar
jólasætabrauði.
1 jólavikunni ganga götusópar-
arnir í húsinu og afhenda kort með
nýársóskum og eiga þá allir að
gefa þeim peninga.
Á kvöldi þriggja heilagra kon-
unga, 6. jan., eru gjafir gefnar aft-
ur og þar með em jólin úti.
GUÐM. E. GEIRDAL:
Ypt á aöra.
Mælt af munni fram á götu
við J. T. tónskáld.
Ætla’ að líta ef ég má
inn í dyrnar hjá þér,
ef þú vilt það ekki — þá
er ég rokinn frá þér.
Sagt við braskara.
Haldirðu þig heilagan
himnaríkis varning,
segi ég þig syndugan
satans átta barning.
Mætti tveim Þórðum á götu.
Úti’ á götu upp hóf raust
einn — án fyrirvara:
Það er ekki Þórðarlaust
þar, sem slíkir fara.
<
Bjarnarvísa.
Þarna’ er Björn að þramma um
torg,
þyrnigjörn er leið í borg,
barnavöm og barnaorg
Birni hrörnun valda’ og sorg.
Staka.
Hafirðu komizt eldraun í
og þig brennt til muna,
geyma örin upp frá því
innri þjáninguna.