Vesturland - 24.12.1952, Blaðsíða 9
VESTURLAND
9
Hafnarbakkinn í Neðstakaupstað
Hafnarbakkiun í smíðum.
Þessi mynd var tekin af járnþili hafnar-
bakkans í Neðstakaupstað 1947. Engan hefði
þá grunað, að fyrst fimm árum síðar yrð:
fyrsti hluti hans tekinn til afnota. Um 90
metra langur kafli, næst bátahöfninni, er nú
fullgerður, en hafnarbakkinn er 220 metra
langur. Enn er eftir að ganga frá uppfyllingu
innan við jámþilið og vantar um 8—10 þús.
teningsmetra af fyllingarefni til að Ijúka verk’
inu. Hinn mikli dráttur, sem orðið hefur á
%
ísafirði 3. marz 1880.
Herra ritstjóri!
„Isafjarðarkaupstað má að sjálfsögðu telja
höfuðstað Vestfjarða eða réttara sagt alls
Vestfirðingafjórðungs, því bæði er fólks-
fjöldi hér meiri en á nokkrum öðrum verzlun-
arstað á vesturlandi, (íbúatala á Isafirði er
nú um 470) enda hefur ísafjörður fengið
kaupstaðarréttindi, hér er og mest verzlun
og mestar siglingar. Eigi má fagurt kalla
landslag á Isafirði, en einkennilegt er það
mjög. Bærinn stendur á tanga einum, er geng-
ur fram í Skutulsfjörð og er tangiim svo
mjór á einum stað, að hann slitnar nálega í
sundur, enda brýtur þar af árlega. Að austan-
verðu við tangann gengur mjótt sund og er
þar innsiglingin á höfnina, en þegar komið er
inn úr sundi þessu, slær sjórinn sér aftur út
og myndar höfn mikla, er kölluð er „Pollur-
inn“, gengur höfnin inn með tanganum vestan-
verðum. Isafjarðarhöfn er eflaust sú fegursta
og tryggasta höfn á öllu íslandi. Fjöll liggja
hér fyrir þremur áttum; þau eru mjög nærri,
eru snarbrött og gnæfa við himin; taka þau
af alla útsýn eða víðsýni og kreppa svo að, að
framkvæmdum við hafnarbakkann stafar fyrst
og fremst af fjárskorti, en auk þess kom það
óhapp fyrir, að neðri hluti bakkans tók að
síga og hefir haldið því áfram til skamms
tíma. Þetta óhapp gerir mannvirkið mörg
hundruð þúsund krónum dýrara en ella, auk
þess sem naumast er hægt að fullgera verkið
fyrr en sigið hefur verið stöðvað.
Marzellíus Bemharðsson, skipasmíðameist-
ari, hefur staðið fyrir byggingu hafnarbakk-
eigi sér sól í kaupstaðnum hálfan þriðja mán-
uð í skammdeginu. Að norðanverðu við kaup-
staðinn liggur sjór eingöngu.
Flest eru hús hér í kaupstaðnum fremur
lítil og standa óskipulega. Annars er sjálfur
kaupstaðurinn ekki í einulagi, heldur skiptist
í þrjá hluta, nl.: Efstakaupstaðinn, þar eru
verzlunarhús H. A. Clausen, Miðkaupstaðinn,
þar eru þrjár sölubúðir, og Neðstakaupstað-
inn, þar standa verzlunarhús Sars. í miðkaup-
staðnum er barnaskólahúsið. Barnaskólinn
var settur á stofn 1874, og er honum nú hald-
ið áfram sem að undanförnu. Yfirkennari við
skólann er cand. theol. Grímur Jónsson, en
undirkennari Stefán ólafsson dómkirkjuprests
Pálssonar. Skólanum er skipt í sundur í tvo
bekki. 1 efri bekknum eru kenndar 9 náms-
greinar, nl. kver, bíblíusögur, skrift, lestur,
reikningur, danska, réttritun, saga og landa-
fræði, en í neðri bekknum eru aðeins kenndar
hinar fimm fyrst töldu námsgreinar. Söngur
er kenndur 2 stundir í viku í báðum bekkjum
í senn. Skólinn byrjar 1. sept. og stendur í 9
mánuði eða til 1. júní. Skólatími er 5 stundir
á dag, nl. frá kl. 9—11 f.m. og frá kl. 11%
f.m. til 2% e.m. Nú sem stendur eru í skól-
ans og farist það prýðilega úr hendi, eins og
öll verk sem hann tekur að sér.
Ekkert er jafn þýðingarmikið í útgerðarbæ
og góð höfn. Isaf jarðarhöfn er víðfræg, svo vei
er hún úr garði gerð frá náttúrunnar hendi.
Innsiglingarsundið er þó of þröngt og
grunnt miðað við hin stóru hafskip nútímans.
Sá stóri galli er á, að t.d. nýsköpunartogarar
verða að sæta sjávarföllum til að sigla um
Sundin.
Næsta skrefið í hafnarmálum ísafjarðar er
tvímælalaust dýpkun Sundanna, svo að öll
venjuleg skip geti siglt út og inn án tillits
til hvemig á sjó stendur. Þá er ísafjarðar-
höfn ábyggilega orðin ein allra öruggasta,
bezta og fullkomnasta höfn landsins.
Með byggingu hafnarbakkans skapast mik-
ið athafnasvæði í Neðstakaupstaðnum. Er ráð-
gert að útgerðarfélögin í bænum fái þar lóðir
til byggingar fiskverkunar- og geymsluhúsa.
Isfirðingur h.f. hefur þegar sótt um lóð þarna
og ráðgerir að hefja byggingu stórrar fisk-
verkunarstöðvar þegar næsta vor.
Ber brýna nauðsyn til, að skapa útgerðinni
viðhlýtandi aðstöðu í landi til nýtingar aflans,
en um langt skeið hefur mikið skort á að svo
hafi verið.
Framtíð Isafjarðar, sem annara útgerðar-
bæja, byggist á útgerð og fiskiðnaði. Óvíða
munu fiskverkunarstöðvar betur staðsettar en
við hafnarbakkann nýja, þar sem auðvelt er
að koma fyrir hagkvæmum tækjum til upp-
og framskipunar á aflanum.
Vonandi rísa á næstu árum myndarlegar
fiskverkunarstöðvar á nýja hafnarbakkanum,
sem skapa næga atvinnu fyrir hverja starf-
andi hönd í þessum bæ.
anum 32 böm, þar af 17 í efri bekknum en
15 í þeim neðri.
Hér voru leiknir gleðileikir í vetur eftir jól-
in. „Skuggasveinn, eftir séra Matthías Joch-
umsson og „Brúðuhvarfið“ nýsamið leikrit,
eftir Magnús kaupmann Jochumsson, bróður
séra Matthíasar, þótti mönnum það góð
skemmtun, voru leikirnir allvel sóttir, en þó
einkum brúðuhvarfið, var þeim leik veitt hin
bezta viðtaka. 1 eitt skipti var leikið fyrir
fátæka“.
Úr Isafjarðarsýslu gamlársdag 1880.
„Skóli sá er talað var um að stofna í minn-
ingu Jóns sál. Sigurðssonar liggur enn sem
komið er í þagnargildi, samskotin munu lítið
hafa aukist síðan ég ritaði síðast. Á fundi,
sem haldinn var á Isafirði, var ekki hægt að
ráða annað af en að halda áfram að safna, því
allt strandaði á féleysinu. Það er vonandi að
menn líti á nauðsynina meir en erfiðleikana,
„sigursæll er góður vilji“ jafnan. Menn mega
heldur ekki vera svo bráðlátir að hugsa allt
komist í kring á einu ári. Nei, svo stórhuga
megum við ekki vera. Það er meira undir-
komið að áhuginn dofni ekki, þó vér sjáum
að langt sé í land; og höfum það jafnan hug-
fast, að vér vinnum fyrir alda og óalda niðja
vora. Höldum því áfram að auka samskotin
eftir því sem efni og tími leyfa og örlæti
hvers einstaks, þá mun að endingu viðleitni
vor bera ríkulegan ávöxt“.
Frá fyrri iímum.