Vesturland

Årgang

Vesturland - 24.12.1958, Side 3

Vesturland - 24.12.1958, Side 3
Séra Tómas Guónmndsson: Heliji jólatiita. „Yður cr í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg DavíSsLúk. 2, 11. Jólahátíðin kemur til mannanna með birtu og yl. Birtu og yl heimilisgleðinnar og hina innri birtu trúarinnar og kær- leikans til alls er lifir. Enginn boðskapur hefur skotið dýpri rótum í hjörtu mann- kynsins, enginn haft jafn víðtæk áhrif. Og þó finnst okkur svo oft að áhrifa kristinnar trúar gæti svo lítið. Það er því miður satt, að í lífi og störfum manna og þjóða virðist oft * ekki vera rúm fyrir fagnaðarerindi frelsarans, líkt og forðum, þegar ekki var rúm fyrir hann í gistihúsinu. En ef við lítum aftur á móti á þær miklu breytingar, sem orðið hafa til hins betra á allri hjálpar- og líknarstarfsemi, þá sjáum við þar hvað gleggst áhrifin af kenningu Krists. „Hann, sem gekk um kring, gjörði gott og græddi alla“, hefur sannarlega opn- að augu fjölda margra, bæði fyrir því, hve víða er hjálpar þörf og fyrir gleðinni, sem líknarstörfin veita. Boðskapur jólanna hefur sérstök áhrif á alla. Það er eins og slakni á hinum kalda streng hversdagsleikans og hver og einn verði hið innra með sér mildari, kærleiksríkari og hjálp- fúsari en venjulega. Undirbúningur jólanna og ánægjan yfir að hafa glatt einhverja gera líka sitt til að gefa jólahátíðinni sérstaka helgi. Við finnum, að um leið og kirkjuklukkurnar hringja á aðfangadagskvöld hefst heilög stund. Og áhrifin, sem hljómur kirkjuklukknanna hefur á okkur, eru svo sterk, að eins og ósjálfrátt, knúð af innri þörf göngum við til kirkju, ef þess er nokkur kostur. Jafnvel þeir, sem aldrei koma í kirkju á öðrum árstíma, koma í kirkju á jólunum og eiga þar helga stund, sem þeir vildu ekki missa, þótt mikið væri í boði af veraldargæðum. Og vissulega er okkur ekkert dýrmætara, en að eiga sem flest- ar slíkar helgar stundir. Við finnum öll, hve helgi jólanna er okkur mikils virði, hve boðskapur Drottins er háleitur og hugg- unarríkur og hve náð Drottins er mikil. En helga stund í húsi Drottins getum við átt á hverjum messudegi og oftar, ef við aðeins notum þau miklu tækifæri, sem okkur eru gefin til and- legrar uppbyggingar í samfélagi við Hann, sem öllu ræður. En hvað er það, sem gefur jólahátíðinni svo mikla helgi, að jafnvel kaldasta steinhjarta hrærist? Það er Jólabarnið. Litla barnið, sem lagt var í jötuna í‘fjárhúsinu á Betlehemsvöllum og boðskapur engla Drottins: „yður er í dag frelsari fæddur.“ Ekkert hjarta er svo kalt, að lítið barn fái ekki brætt ísinn og boðskapurinn dásamlegi gefur nýja von og nýtt líf. Þama urðu þáttaskil í lífi alls mannkynsins og þessi þátta- skil lifum við upp aftur og aftur á hverjum jólum. Og minn- ingar jólanna og þá sérstaklega jólanna á bernskuheimilinu, geymum við sem helgan gimstein. Við finnum, að náð Drott- ins er stöðugt yfir okkur. Á helgri jólanótt ríkir friður, gleði og kærleikur í hjörtum okkar. Við finnum nálægð Jólabarnsins og í þökk og heitri bæn lofum við nafn þess og syngjum: Ó, Jesú barn, þú kemur nú í nótt, og nálægð þína ég í hjarta finn. Þú kemur enn, þú kemur undra hljótt, í kotin jafnt og hallir fer þú inn. Sem ljós og hlýja í hreysi dimmt og kalt þitt himneskt orð burt máir skugga og synd. Þín heilög návist helgar mannlegt allt, í hverju bami sé ég þína mynd. (J. J. S.) CjLkLy fó(!

x

Vesturland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.