Vesturland - 24.12.1958, Síða 6
6
VESTURLAND
Frá höfninni. — Júní 1958. Goðafoss hefur snúið inni og lestar
freðfisk við hafnarbakkann.
tíma. Aflahæsti báturinn var m.b.
Andvari, 38 tonn að stærð. Vél-
bátaútgerðin frá staðnum hefur
skapað mikla atvinnu hjá Hrað-
frystihúsi Patreksfjarðar h.f. á
Geirseyri, sem tekur til vinnslu
allan bátafiskinn, en hann er ýmist
frystur, saltaður eða hertur. Það
frystihús tekur einnig við fiski úr
togurunum, eftir því sem við verð-
ur komið.
Hraðfrystihúsið á Geirseyri, sem
var byggt á stríðsárunum, hefur
fyrir nokkru verið endurbyggt og
stækkað allmikið, en frystigeymsl-
ur hússins eru enn of litlar. Um
svipað leyti var beinamjölsverk-
smiðja fyrstihússins einnig byggð.
Hafnargerðin á Patreksfirði
er mikið mannvirki.
Örugg og góð höfn er eitt hið
mikilvægasta fyrir staði, sem
byggja alla afkomu sína á úterð
og sjósókn. Einu hafnarmannvirk-
in, sem til skamms tíma voru á
Patreksfirði, voru hafskipabryggja
úr tré og lítil steinbryggja að inn-
anverðu við Vatneyraroddann.
Einnig var áður trébryggja fyrir
framan verzlunarhús kaupfélags-
ins á Geirseyri, og fyrr á tímum
voru bryggjur innar á eyrinni, en
þá var mikill atvinnurekstur þar.
Almennt er álitið, að hafnir,
sem grafnar eru inn í landið, séu
öruggari og endingarbetri, en þær,
sem myndaðar eru af hafnargörð-
um. Að utanverðu á Vatneyrinni
var tjöm, sem myndaði eins konar
þríhyrning, og við hana rúmgott
og slétt athafnasvæði. Ákveðið var
að gera höfn úr þessari tjöm og
grafa skurð skáhallt út úr henni.
Árið 1946 var hafizt handa við
framkvæmd verksins, sem að vísu
er enn ólokið, en markar á vissan
hátt tímamót í sögu staðarins.
Þessar framkvæmdir hafa löng-
um verið umdeildar, og höfnin hef-
ur fengið á sig ýms miður viðeig-
andi nöfn. Ýmsir er þeirrar skoð-
unar, að heldur hefði átt að byggja
höfnina að innanverðu við oddann
með görðum, öðrum úr oddanum
og hinum einhvers staðar úr Geirs-
eyrinni. En við mat á því verða
menn að gera sér grein fyrir þeim
staðreyndum, sem blasa við í þess-
um efnum, með tilliti til kostnaðar,
hagkvæmni og framtíðar staðar-
ins.
Framkvæmdum miðaði bezt á-
fram á fyrstu árunum eftir að þær
hófust, og á sjómannadaginn 1949
sigldi bátaflotinn með blaktandi
fánum inn í höfnina í fyrsta sinn.
Árið eftir var höfnin svo tekin í
notkun fyrir alvöru. Var þá lokið
við að fullgera rennuna inn í tjörn-
ina, ramma niður 320 metra langt
stálþil og grafa skurð, allbreiða
ræmu, upp með því. Nær öll skipa-
afgreiðsla fór nú fram í hinni nýju
höfn, landanir úr togurunum og
afgreiðsla flutninga- og strand-
ferðaskipanna. Fyrsta skipið, sem
afgreitt var í höfninni, var hol-
lenzka kaupfarið Lingerstroom, og
nokkrum mánuðum síðar lá Trölla-
foss, stærsta skip íslenzka flotans,
við hafnarbakkann.
Síðan hefur verið grafið út úr
höfninni, eftir því sera fjármagn
hefur fengist til frekari fram-
kvæmda. Seinast var grafið í árs-
lok 1956 og fyrri hluta ársins 1957.
Var þá innsiglingin breikkuð og
grafið það mikið inni í höfninni,
að nú geta öll íslenzku skipin snú-
ið þar. Var það með öllu óumflý-
anlegt, því að 1954 neituðu skipa-
félögin algjörlega að láta skip sín
koma inn í höfnina, vegna þess
hve örðugt væri að athafna sig
þar. Var þá notast við gömlu haf-
skipabryggjuna, en eftir að fremsti
hluti hennar datt niður í fárviðri
í ársbyrjun 1957, varð um tíma
að afgreiða öll skip úti á firði, svo
sem tíðkaðist um aldamótin og á
öldinni sem leið.
Það geta þannig orðið miklar
sveiflur í vinnubrögðum og þjón-
ustu, sem byggist á opinberum
framkvæmdum, er eiga framgang
sinn undir náð hins íslenzka ríkis-
valds á ofanverðri 20. öld.
Kostnaður hafnarframkvæmda
er nú um 9—10 millj. ltr.
1 upphafi varð gerð kostnaðar-
áætlun um verkið, og átti heildar-
kostnaðurinn að verða 4—5 millj.
króna, miðað við þáverandi verð-
lag. Allar slíkar áætlanir eru nú
staðlausir stafir. Um það hefur
verðbólguþróun undanfarinna ára
séð. Það kostaði 5 krónur að grafa
fyrsta rúmmetrann 1946, en 30 kr.
þann síðasta, aðeins 11 árum síð-
ar.
Kostnaður við höfnina, eins og
hún er nú, mun vera orðinn um
9—10 millj. króna. Grafnir hafa
verið um 2/3 hlutar af heildar-
magninu og álitið er, að það, sem
eftir er að grafa, sé fremur auð-
velt viðfangs. Er það að nokkru
leyti 1 eir, sem mætti grafa á
skömmum tíma með stórvirkari
tækjum, en hingað til hafa verið
notuð. Fyrst var grafið með vél-
skóflu og úr uppgreftrinum mynd-
að nýtt land í Króknum að innan-
verðu við Vatneyrina og akbraut
inn með sjónum. Gekk það mjög
vel og hefði mátt framkvæma
meira af verkinu með þeim hætti.
Síðan hefur dýpkunarskipið Grett-
ir aðallega grafið út úr höfninni,
en afkastageta þess er afar tak-
mörkuð. Islendinga vantar stærra
og fullkomnara dýpkunarskip,
sem er í samræmi við kröfur tím-
ans og getur grafið hafnir á
skömmum tíma.
Nauðsynlegt er að halda þessum
framkvæmdum áfram sem fyrst.
Grafa þarf meira út, en einnig
vantar stálþil hinum megin við
rennuna til þess að koma í veg
fyrir að hún mjókki og vinna þurfi
aftur það verk, sem einu sinni hef-
ur verið unnið. Mega þær hafnir,
sem enn er ólokið, sízt við því,
eins og fjárveitingum til þessara
framkvæmda og vinnubrögðum við
þær nú er háttað.
Bygging skólahúss og fleiri
opinberar framkvæmdir.
Auk hafnarinnar hafa á undan-
fömum árum átt sér stað marg-
háttaðar framkvæmdir á Patreks-
firði. Nú sem stendur er svo verið
að gera stórátak í skólamálunum
í kauptúninu. Um miðbik staðar-
ins hefur risið af grunni nýtt og
glæsilegt skólahús ásamt við-
byggðu íþróttahúsi. Verður það
eflaust fullnægjandi um langa
framtíð, enda byggt af miklum
stórhug og framsýni. í hinni nýju
byggingu eru 7 stórar kennslu-
stofur, íbúð húsvarðar o. fl.
Verkið var hafið sumarið 1956,
og árið eftir var aðalbyggingin
steypt, en íþróttahúsið var steypt
í sumar. Gert er ráð fyrir, að hægt
verði að taka skólann í notkun á
komandi hausti.
Sumarið 1956 var einnig ruddur
nýr íþróttavöllur skammt frá
skógræktinni í Mikladal. Síðan
hafa félagar úr íþróttafélaginu
Herði unnið að lágfæringu vallar-
ins. Að vísu er enn margt ógert
við þennan völl, en með þessari
byrjun var bætt úr brýnni þörf
og aðstaða til íþróttastarfsemi á
Patreksfirði stórlega bætt.
Verður þarna án efa hið
skemmtilegasta íþróttasvæði í
framtíðinni.
Eitt af mestu hagsmunamálum
Patreksfirðinga og annarra Barð-
strendinga og óskadraumur þeirra
um langt árabil, var að komast í
akvegasamband við þjóðvegakerfi
landsins. Þessi óskadraumur náði
að rætast fyrir fjórum árum, og
með akvegasambandinu skapaðist
nýtt og bjartara viðhorf í sam-
göngumálum héraðsins. Nutu
Barðstrendingar í því máli, sem og
öðrum framfaramálum héraðsins,
farsællar forustu Gísla Jónssonar,
fyrrv. þingmanns kjördæmisins.
Allmikil og vaxandi bílaumferð
hefur verið um Barðastrandar-
sýslu, síðan vegasambandið komst
á. Yfir sumarmánuðina voru tekn-
ar upp áætlunarferðir frá Reykja-
vík vestur á Bíldudal og Patreks-
fjörð, fyrst eingöngu með farþega,
en síðan hafa vöruflutningar með
Hluti af Vatneyrinni. Samkomuhúsið til hægri.