Vesturland

Volume

Vesturland - 24.12.1958, Page 10

Vesturland - 24.12.1958, Page 10
10 VESTURLAND Grummanbátur kemur upp í fjöruna ofan við Bæjarbryggjima. undir nefinu en ekki stélinu — og þolir hún því minni halla en Grummanbátarnir, sem komu upp í fjöruna til Óla Jakobs, skósmiðs. Árið 1951 lögðu Loftleiðir inn- anlandsflugið niður og Katalinur Flugfélagsins hafa síðan verið ísa- firði og reyndar fleiri byggðarlög- um hreinasti bjargvættur. En þessar flugvélar hafa týnt tölunni í eigu okkar íslendinga. Flugfélag- ið á nú aðeins eftir tvær og sjaldn- ast er nema önnur þeirra gangfær hverju sinni. Landhelgisgæzlan á auk þess eina slíka flugvél, eins og kunnugt er — og hefur hún ær- inn starfa um þessar mundir. Viðhald Katalinaubátanna er mjög frekt. Aðallega er það sjávar- seltan, sem veldur — svo og barn- ingur og hristingur, sem þessar vélar verða oft fyrir í lendingu og flugtaki á sjó. Hreyflar þeirra eru sagðir endast helmingi verr en aðr- ir hreyflar vegna seltunnar, sem líka tærir aluminiumbúk flugbáts- ins svo, að oft verður að bæta. Sem kunnugt er mun Flugfélag- ið ekki sjá sér fært að endurnýja þennan sjóflugvélaflota, enda harla erfitt um vik, því framleiðsla Katalinabátanna lagðist niður 1946 og engar sjóflugvélar framleiddar, sem hæft gætu okkur jafn vel. Er þess vænzt, að endar nái saman: Flugbrautin á Skipeyri verði full- gerð, þegar Katalinabátarnir fara að syngja sitt síðasta. Og þá leysa Douglasvélarnar Katalinu senni- lega af hólmi. Þær eru ýfið hrað- fleygari en Katalína, tveggja hreyfla og taka 28 manns. En Isfirðingar munu lengi minn- ast Katalinu, sem í nær 10 ár hef- ur verið bænum hið mesta „happa- skip“. En það munu fleiri minnast Katalinu. Á meðan orrustan um Atlantshaf í síðari heimsstyrjöld- inni verður í minnum höfð mun Katalina ekki gleymast, þótt sein- fær og klunnaleg sé. Kafbátsfor- ingjarnir þýzku, sem lifðu Kata- linu og stríðið muna hana þó sennilega bezt þessarar kynslóðar, því að þessi flugvél, sem ber Is- firðingum tómata og banana á sumrin, bar á stríðstímunum hel- sprengjur, sem urðu mörgum þýzkum kafbátsmanninum að bana. Katalina var um skeið sterk- asta vopn Bandamanna gegn þýzku kafbátunum. Framleiðsla Katalinu hófst árið 1934 og hún var eingöngu fram- leidd fyrir Bandaríkjaher með strandgæzlustörf og kafbátaveiðar fyrir augum. Islenzku vélarnar eru því allar gamlar hervélar. Há- marksflugtaksþungi Katalinu sem hervélar var um 16,5 tonn (13,835 tonn, sem farþegavélar) og þá hafði hún yfir 20 stunda flugþol. Djúpsprengjur hennar féllu oft í sjóinn umhverfis skipalestir Bandamanna og Þjóðverjarnir höt- uðu hana eins og pestina. Hún var vel vopnuð. Frammi i nefinu fyrir framan flugmennina, sat aðal- skyttan við mikla vélbyssu — það- an var djúpsprengjuvörpunum neðan undir vængjunum einnig stjómað. Þar, sem nú er inngangurinn í Katalínur Flugfélagsins voru áð- ur stórir plasthjálmar, sem hvelfd- ust út úr báðum hliðum — og sátu tvær skyttur, sín við hverja vél- byssuna, sem gat bunað úr sér 6—800 skotum á mínútu. Aftast, undir stélinu, var lítið gat og út um það gægðist byssukjaftur. Og þar aftur í, sem nú er farangurs- geymsla í FlugfélagsKötunum, lá fjórða skyttan. Framleiðsla Katalinu nam mörg- um þúsundum, en örust var hún á stríðsárunum. Nú eru örfáar eftir í notkun, farið er að bera á erfið- leikum með endumýjun þeirra og markaðsverð þeirra er sáralítið. í Bandarikjunum var í sumar hægt að fá gangfæra Katalínubáta á 8 þús. dollara, en að vísu þurftu þeir aðgerðar við. Til samanburðar má geta þess, að ný flugvél af sömu Prestsfrúin gekk inn í vinnustofu mannsins síns. Börnin sátu við skrifborð föður síns. Þá sagði prestsfrúin við bömin: „Hvað eruð þið að gera hérna?“ „Það er leyndarmál." „Hvaða bók er þetta?“ „Þetta er biblían, sem við ætl- gerð og hin fjögurra sæta sjúkra- flugvél Björns Pálssonar, er marg- falt dýrari. Þeir Katalínubátar, sem enn eru í notkun, eru sennilega töluvert innan við hundrað. Bandaríkja- her hefur örfáa svo og danski her- inn og sá norski. Til farþegaflutn- inga eru þeir notaðir af lítt þekt- um flugfélögum í fjarlægum lönd- um, einn er í Burma, annar í Col- umbiu, fjórir í Peru, fimm á For- mósu og í norðurhéruðum Kanada hafa þeir eitthvað verið notaðir, en þó fáir eftir í notkun. En fáar flugvélar hafa reynzt jafn öruggar og Katalina. Hún hefur alla tíð reynzt hinn bezti og tryggasti farkostur hvort sem henni hefur verið flogið í óstöð- ugri og erfiðri vetrarveðráttu norður á íslandi, suðlægum sól- skinslöndum, eða í langar og strangar herferðir út yfir úfið Atlantshafið á styrjaldarárunum. Og alveg eins og Manni hætti einn góðan veðurdag að koma með Grána gamla og mjólkina í bæinn um 11 ieytið á morgnana — kemur Katalina einn góðan veðurdag ekki lengur. Strákarnir hætta að biðja um að fá að koma með bátnum út að „flugvélinni" og Bjössi hætt- ir að vera „Bjössi á bátnum“, kannski verður hann bara „Bjössi“ — og báturinn einhver bátur, sem enginn veit að er til. um að gefa pabba í afmælisgjöf." „Hvað eruð þið að skrifa í hana?“ „Við erum að skrifa það sama og vinir hans pabba skrifa í bæk- urnar, sem þeir senda honum.“ „Hvað er það?“ „Með beztu kveðjum frá höf- undi.

x

Vesturland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.