Vesturland - 24.12.1959, Síða 7
VESTURLAND
7
JJann leit út fyrir að vera einn
þeirra manna, sem biðjast af-
sökunar á tilveru sinni. Frú Ossin-
paja kom auga á það um leið og
hann snaraðist inn í stofuna henn-
ar.
Augu þeirra mættust og hann
virtist eilítið óttasleginn.
Viljið þér ekki fá yður sæti . .?
Nafn mitt er Falliere, sagði
hann og settist á stólbrík, — ég
sá auglýsingu yðar um að þér tak-
ið að yður að lækna menn af van-
metakennd.
Þessvegna er ég kominn hingað.
Þér lítið sannarlega ekki út fyr-
ir að þjást af vanmetakennd, sagði
frú Ossinpaja brosandi, en hugs-
aði með sjálfri sér að aldrei hafi
hún augum litið mann sem bar eins
glögg einkenni vanmetakenndar
og þessi. Hún sagði þetta aðeins
til að hughreysta hann.
En ég þjáist þó af þessu sagði
herra Falliere, — ég er þjakaður
af þessu og mér finnst lífið vera
mér einskis virði. Ég er á fimm-
tugsaldri svo að það ér sannarlega
kominn tími til að losna við þetta.
Gætuð þér ekki gefið mér hug-
mynd um hvernig þetta lýsir sér.
Ég er hræddur — hræddur við
konuna mína og húsbónda minn.
Ég verð eitthvað skrýtinn þegar
húsbóndinn þarf að tala við mig.
Ég verð þurr í kverkunum og ég
get engu svarað, jafnvel þó að
hann spyrji mig um það, sem mér
er vel kunnugt um. Og konan mín.
Já, á sunnudögum langar mig
stundum til að njóta lífsins eitt-
hvað.
Hvað meinið þér með því að
njóta lífsins? skaut frú Ossinpaja
inn í.
Til dæmis að grúska í frí-
merkjasafninu mínu, svaraði herra
Falliere, en þá kemur konan mín
og segir, að við skulum fá okkur
gönguferð í kirkjugarðinn og fara
svo til systur hennar og mágs.
Ég get ekki sagt nei, jafnvel
þó ég myndi helzt vilja vera heima
og sýsla við frímerkin, og mér
leiðist að fara í kirkjugarðinn og
ég get ekki fellt mig við fjöl-
skyldu konu minnar.
Konan mín skipar fyrir og ég
hlýði. Mig langar oft til að mót-
mæla og ég hef ákveðið hvað ég
ætla að segja, en á síðasta augna-
bliki missi ég móðinn og læðist í
burtu.
Hafið þér alltaf verið svona?
Já, því miður. I skólanum hæddu
ust strákarnir að mér og slógu
mig, jafnvel þeir, sem voru miklu
minni en ég og ég hefði getað ráð-
ið við, en það fór allt á sama veg,
ég missti móðinn. Þegar ég var
drengur langaði mig til að hafa
gullfiska, en móðir mín bannaði
mér það. Tengdaforeldrar mínir
höfðu gullfiska og ég býst við því
að þessvegna hafi ég getað heim-
sótt þau.
Ég hélt að konan min myndi því
leyfa mér að hafa gullfiska þegar
við værum gift.
frú Ossinpaja hlustaði með sam-
úð á harmsögu herra Falliere
um vonbrigði þau og auðmýkingu,
sem hann hefur orðið að þola.
Loksins þagnaði hann og horfði
á hana eftirvæntingarfullur.
Þetta er dálítið óvenjulegt sagði
hún eftir andartaksþögn.
Haldið þér að ekkert sé hægt að
gera? sagði herra Filliere beygð-
ur.
Óvenjulegur sjúkdómur krefst
óvenjulegrar meðferðar sagði frú
Ossinpaja og horfði í augu hans.
Ég ætla að trúa yður fyrir nokkru,
sem þér verðið að lofa mér að
segja engum öðrum frá. Fyrir
nokkrum árum var ég í Algier og
þar hitti ég gamlan mann á mark-
aði. Ég hélt í fytstu að hann væri
innfæddur, en komst að raun um
að hann var Indverji. Hann komst
fljótt á snoðir um mína óvenju-
legu hæfileika og við gerðum
nokkrar tilraunir, sem tókust með
ágætum.
Jæja, sagði herra Falliere, sem
hlustaði fullur eftirvæntingar.
Þegar leiðir okkar skildu gaf hann
mér hring að skilnaði.
Eftir örstutta þögn sagði frú
Ossinpaja:
Indverjinn sagði mér, að sá mað-
ur, sem bæri hringinn gæti fengið
vilja sínum framgengt. Hann er
eins og hringurinn í Þúsund og
einni nótt og frá þessum degi hefi
ég átt hringinn. Hann hefur veitt
mér kraft til að fá vilja mínum
framgengt. Hérna er hringurinn.
Herra Falliere varð undrandi
þegar frú Ossinpaja rétti honum
hringinn.
Þér trúið á hann? hvíslaði hann.
Já, ég hef líka séð árangurinn,
sagði hún og ég lofa yður að þessi
hringur muni gera yður að hús-
bónda á heimilinu.
Þegar þér þurfið að koma fram
einhverju máli skuluð þér setja
upp hringinn. Hafið hann í vasan-
um og setjið hann á fingurinn,
þegar þér lendið í kröggum. Þá
eruð þér ekki lengur einn. Þá haf-
ið þér töframátt hringsins yður til
hjálpar.
En, ætlið þér virkilega að gefa
mér þennan hring?
Ekki gefa, heldur lána. Þér skil-
ið mér honum aftur þegar hann
hefur orðið yður að liði. Og þetta
verður að vera algjört leyndarmál
okkar á milli.
Því lofa ég, en hvernig á ég að
gjalda þetta?
Það skuluð þér ekki hugsa um.
Ég fæ bara mínar þakkir fyrir
ráðleggingamar.
JJversvegna kemur þú svona
seint heim í dag? nöldraði friji
Falliere um leið og hann kom inn
í ganginn. Hefur þú verið á kránni
og drukkið þig fullan?
Nei, ég . . .
Fíflið þitt, þú óhreinkar nýbón-
að gólfið með rennblautri regn-
hlífinni, sagði frú Falliere. Við
skulum flýta okkur að borða og
heimsækja svo systur mína í
kvöld.
Herra Fallier stakk hendinni í
vasann. Hann fann hringinn og
kom honum á fingurinn. í sama
vetfangi var eins og heitur
straumur liði um hann allan og
hann fann að á honum varð ein-
hver breyting. Hann heyrði ein-
hverja raust, og það var ekki fyrr
en þessi raust hafði talað nokkra
stund að hann gerði sér ljóst að
þetta var hans eigin rödd.
Ég fer ekkert. Ég ætla að raða
fáeinum frímerkjum . . . og viltu
gjöra svo vel að tala við mig á
kurteisari hátt en þú gerðir áð-
an. Ef það lekur af regnhlífinni
minni þá gjörðu svo vel að þurrka
það upp.
Hvernig ert þú farinn að tala,
Emil? sagði frú Falliere.
Auk þess kæri ég mig ekki um
nein brigslyrði þó að ég komi ekki
beint heim frá skrifstofunni. Ég
ætla að láta þig vita að maturinn
á að vera til klukkan sex og nú
vantar hana fimm mínútur . . .
Hvað er þetta? Ert þú ekki enn-
þá búin að leggja á borðið?
Emil, ert þú veikur? spurði frú
Falliere óttaslegin.
Mér líður vel ef enginn er að
þreyta mig. Sæktu inniskóna mína.
Já, já, sjálfsagt. Frú Falliere
flýtti sér inn í svefnherbergið og
sótti inniskó eiginmannsins í
fyrsta sinn í 20 ára hjónabandi.
Rg veit ekki hvernig ég get þakk-
að yður, en í þessu umslagi er
ávísun, sem því miður er ekki eins
há og hún þyrfti að vera. Og hérna
er hringurinn, sagði herra Falliere
og rétti henni umslag og hring-
inn.
Það voru liðnir rúmir fjórir
mánuðir síðan hann kom til henn-
ar og hún lánaði honum hringinn.
Hefur hann leitt eitthvað gott
af sér?
Já mjög gott. Nú á ég gullfiska.
Konan mín snýst í kring um mig.
Ég hef fengið launahækkun og
verið hækkaður í stöðu. Nú fer ég
aldrei í kirkjugarðinn á sunnudög-
um og ég hef sagt mágkonu minni
og manni hennar mitt álit á þeim.
Og konu minni finnst ég vera
hetja.
Ég óska yður til hamingju.
Ég þakka. Það er aðeins eitt,
sagði herra Falliere hikandi. Get
ég fengið hringinn lánaðan aftur
ef ég lendi í klípu og þarf að nota
hann.
Auðvitað getið þér fengið hann
hvenær sem yður hentar, svaraði
frú Ossinpaja.
Þér getið komið og sótt hann.
Hún fylgdi honum til dyra,
gekk svo aftur inn í stofuna og dró
út skúffuna. Þar voru fyrir um það
bil fimmtíu hringar og annað eins
var í notkun. Þessir hringar voru
allir eins.
Frú Ossinpaja hafði keypt þá í
Milano og fengið mikinn afslátt af
því að hún keypti svo marga.
Jean Volls.
(lauslega þýtt).