Vesturland

Ukioqatigiit

Vesturland - 24.12.1959, Qupperneq 19

Vesturland - 24.12.1959, Qupperneq 19
VESTURLAND 19 Ólafur Ásgeirsson, tollvörður, átti 65 ára afmæli 14. desember. Ólafur hefur í fjölda mörg ár gengt tollgæzlustörfum á Vest- f jörðum, en var áður um skeið lög- regluþjónn. Á yngri árum var hann sjómaður. Hann er traustur og áreiðanlegur maður í hverju því starfi sem hann tekur að sér. Kona Ólafs er Freyja Rósantsdótt- ir og eiga þau tvo syni. Jón Guðnason, fyrrum bóndi á Sléttu í Sléttuhreppi átti sjötugs- afmæli 18. desember s.l. Hann fluttist hingað til bæjarins fyrir rúmum áratug. Jón er atorku- og dugnaðarmaður, og háði lengi lífs- baráttu sína við erfið skilyrði á jörð sinni, en var ávallt sjádfum sér nógur. Kona Jóns er Emelía Alberts- dóttir og eiga þau 6 börn uppkom- in. Vesturland árnar afmælisbörn- unum heilla og blessunar. Ný bók um Önnu Frank Nýkomin er út bók hjá Kvöld- vökuútgáfunni á Akureyri um Önnu Frank eftir þýzka rithöfund- inn Erns Schnabel. Jónas Rafnar læknir hefur þýtt bókina og nefn- ist hún í þýðingunni „Hetja til hinztu stundar". Höfundurinn hef- ur tekið sér fyrir hendur að rekja slóð önnu Frank frá fyrstu bernsku til æviloka með því að tala við 42 manneskjur sem þekkt höfðu önnu og verið henni sam- tíða, kennara hennar og vinkonur, vini fjölskyldunnar og samfanga hennar í fangabúðunum. Kristbjörg Kjeld leikkona, er fór með hlutverk Önnu í „Dagbók- inni“ hefur ritað formálsorð við bókina og mynd er af henni í hlut- verkinu ásamt fleirum. I niðurlagi formálans farast Kristbjörgu Kjeld þannig orð: „Anna var ekki álitin nein fyrir- mynd á heimili sínu, og engir sem þekktu hana, töldu hana neitt undrabarn, en í augum allra ungra stúlkna, sem vilja hugsa og þrosk- ast, mun hún ávalt verða sönn fyrirmynd." Anna lézt í fangabúðum Þjóð- verja svo sem kunnugt er. Hún gat sér heimsfrægð fyrir Dagbók- ina er hún skrifaði meðan hún dvaldi í felum í bakhýsinu í Am- sterdam. Dagbókin hefur nú verið kvikmynduð og verður væntanlega sýnd hér á næstunni. Hvítasunnusöfnuðurinn SALEM óskar öllum lsfirðihgúm gleði- legra jóla og farsældar á kom- andi ári. Verið hjartanlega velkomin á samkomur um jólin. Sunnudaginn 20. des.: Kl. 11 Sunnudagaskóli. Kl. 16,30 Vakn- ingasamkoma. Jóladaginn: Kl. 16,30 Hátíðar- samkoma. Annan jóladag: Kl. 16,30 Vakn- ingasamkoma. Sunnudaginn 27. des.: Kl. 14 og 17 Hátíð Sunnudagaskólans. Gamlárskvöld: Kl. 23 Áramóta- samkoma. Nýársdag: Kl. 16,30 Hátíðar- samkoma. Sunnudaginn 3. jan.: Kl. 11 Sunnudagaskóli. KI. 16,30 Vakn- ingasamkoma. Þriðjudaginn 5. jan.: Kl. 20,30 Biblíulestur. Sunnudaginn 10. jan.: Kl. 11 Sunnudagaskóli. Kl. 16,30 Vakn- ingasamkoma. Kl. 20,30 Áramóta- samkoma safnaðarins. Salemsöfnuðurinn Fjarðarstræti 24, ísafirði. j(i ihiii i ii iii i n iii i ii 1111111111111 iii iii iii ii iii iii iii iiii ii 1111111111111 Nytsamar jólagjafir: Vegglampar Standlampar Borðlampar Gufustraujárn Brauðristar Rakvélar Jólatrésseríur Perur o. m. fl. 4IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII ■111111111111111111111111111111111111111111111111 Til jólagjafa: Kuldaskór karla, kvenna, drengja Inniskór karla, kvenna, drengja Töflur karla, kvenna, drengja Bomsur Skóhlífar Unglingaskór Lakkskór karlmanna og margt fleira. Skóverzlun LEÓS h.f. ísafirði. Jiiiiiiniiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiitiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiini MYND af fimleikaflokki á bls. 14. Afstasta röð frá vinstri: 1. Þórir Bjarnason, Reykjavík. 2. Jóh. Jóhannsson, Isafirði. 3. Jón Ásgeirsson. 4. Finnur Magnússon, ísafirði. 5. Gunnar Andrew, Reykjavík. 6. Viggó Bergsveinsson, Rvík. 7. Páll Jónsson, Reykjavík. 8. Guðm. Bjarnason, Isafirði. 9. Ásgeir Magnússon. Miðröð frá vinstri: 10. Jón Björnsson, Siglufirði. 11. Gunnar Þorsteinsson, (látinn) 12. Magnús B. Magnússon, Rvík. 13. Magnús Hólmbergsson, Rvík. 14. Elí Ingvarsson, ísafirði. Fremsta röð frá vinstri: 15. Hrólfur Benediktsson, Rvík. 16. Guðjón Bjarnason, (látinn). 17. Karl Bjarnason, Reykjavík. 18. Eggert Ólafsson, Reykjavík. 19. Viggó Jessen, Reykjavík. Gleðileg jól! Farsælt nýtt ár! Þökkum viðskiptin á líðandi ári. Grótti h.f. Gylfi h.f. Kaldbakur h.f. Vélsmiðjan Sindri h.f. Verzlun Ö. Jóliannessou h.f. Vörður h.f. Samlag skreiðarframleiðenda Reykjavík óskar félögum sínum og viðskiptamönnum gleðilegra jóla og farsæls nýárs.

x

Vesturland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.