Vesturland

Árgangur

Vesturland - 01.10.1971, Blaðsíða 6

Vesturland - 01.10.1971, Blaðsíða 6
6 VJ &CR9 a&SCFIRZXXR 33IÍOFS3i£í>JSMRX/tR Skólastarfiö að hefjast ísfirzk kona skrifar Menntaskólinn á ísafirði verður settur í Alþýðuhúsinu á naorgun kl. 3 e.h. Nemend- ur verða tæplega 80, þar af 49 nýir nemendur — 43 í fyrsta bekk og 6 í öðrum — Eru 33 nemendanna frá ísa- firði, 28 annars staðar frá Vestfjörðum og 17 utan Vest- íjarða, en í fyrra voru aðeins 3 utan Vestfjarða. Heimavist fyrir pilta verð- ur í vetur á Hjálpræðishern- um, og verða þar 15 piltar, en 6 stúlkur búa í Húsmæðra- skólanum Ósk. Aðrir aðkomu- nemendur munu búa víðs vegar út um bæ. Mötuneyti fyrir nemendur verður starf- rækt á Hjálpræðishernum. Annar bekkur skólans greinist nú í tvö kjörsvið, raungreinakjörsvið og við- skiptakjörsvið, en kennslan í viðskiptagreinum hefst þó ekki að ráði fyrr en í 3. bekk. Nýr kennari við skólann verður Axel Karl Kvist, sem mun kenna raungreinar. ★ Gagnfræðaskóli Isafjarðar værður settur í Isafjarðar- kirkju kl. 6 e.h. í dag. Nemendur í vetur verða 224 í 9 bekkjardeildum, þann- ig að í 1. bekk verða 68 nem- endur í þrem deildum, í 2. bekk verða 66 nemendur í tveim deildum, í 3. bekk verða 62 nemendur í þrem deildum, þar af 21 í lands- prófi, og í 4. bekk verða 27 ísafirði, sími 3416 MATARSTELL, KAFFISTELL einlit, rósótt, röndótt og brún. Stakir bollar og diskar, margar gerðir. Mjög fallegar keramikvörur nýkomnar. Kertalampar, skálar, vasar o.fl. Loftljós og lampar í miklu úrvali. FERÐATÖSKUR Bláar, rauðar, svartar og köflóttar. Fasíeignasala - Fyrirgreiðsluskrifstofa Jörðin Meiri-Hlíð, Hólshreppi — Tólf hundruð að fornu mati — 20 gripa fjós, nýlegt með mjaltavéla- kerfi, mjólkurhúsi, kælikeri, kælikerfi og öðru tilheyr- andi. — Sambyggt votheys- og þurrheyshlöðum — súgþurrkunarkerfi. Fjárhús, vélahús og fleiri útibyggingar. — Tveggja hæða íbúðarhús byggt árið 1949. Gólfflötur 72 ferm. Fjarlægð frá Bolungarvíkurkauptúni 800 metrar. Verð kr. 1.100.000,00 —- Góð áhvílandi lán. Útborg- un eftir samkomulagi 100—150 þús. kr. Ödýrar tveggja herbergja íbúðir í einu myndarleg- asta íbúðarhúsi ísafjarðarkaupstaðar. Eignin er innréttuð fyrir 3 séríbúðir, en gæti hentað td. sem íbúðir og /eða skrifstofur. Verð hverrar íbúðar aðeins kr. 500—700 þús. Kaup og sala fasteigna. Hafið samband við okkur að Skólastíg 13, Bolungarvík — Símar 7320 — 7119. Halldór Ben Halldórsson. nemendur í einni deild. Frá skólanum hverfa tveir kennarar, þær Ingibjörg Guð- mundsdóttir og Ólafía Sveins- dóttir, en í staðinn koma þau Sigrún Harðardóttir og Magn- ús Pétursson. Gústaf Lárusson lætur nú af skólastjórn, en hann hefur verið kennari við skólann frá 1938, skólastjóri í fjar- veru Hannibals Valdimars- sonar 1946—1954 og skóla- stjóri á ný frá 1961. Hann hefur því verið kennari og skólastjóri við Gagnfræða- skólann samfellt í rúma þrjá áratugi, og átt meiri þátt en flestir aðrir í mótun og uppbyggingu þessarar stofn- unar. Við skólastjórn tekur nú Jón Ben Ásmundsson frá Akranesi. Hann hefur um árabil verið kennari við Gagn- fræðaskólann á Akranesi og tekið mikinn þátt í æskulýðs- starfi þar í bæ. Hefur hann m.a. verið einn af leiðtogum skátahreyfingarinnar á Akra- nesi um langt árabil. Vesturland þakkar Gústaf Lárussyni störf hans að skólamálum á liðnum árum og býður Jón Ben Ásmunds- son velkominn til starfa við Gagnfræðaskólann. Það þakk- ar einnig Sigurði K.G. Sig- urðssyni, sem annaðist skóla- Af hverju blað núna, aftur blað og fleiri blöð? Jú, alveg rétt, það á að kjósa í bæjar- stjórn á sunnudaginn. Hvað er að? Er ekki allt í lagi, af hverju öll þessi skrif? Ég get ekki einu sinni stillt mig, verð að skrifa líka. Af einhverjum ástæðum virð- ist bæjarstjórnin vera hrædd um breytingu. Þó sendi hún út bréf til fólks, fimmtíu og sjö ára og eldri, svona til að vita hvort allir hefðu salerni, bað eða gætu eldað ofan í sig. Og það bezta! Hvað vill þetta fólk; einbýl- ishús, elliheimili, heimilisað- stoð (kaupa, leigja o.s.frv.) Mér finnst ekkert skrýtið þótt þessu fólki vefðist tunga um tönn og almennt væri gert grín að þessu á vinnu- stöðum. Við vitum öll í hvaða vandræðum við erum. Reykjavík gleypir fólkið og peningana þess af því að það hefur enga fyrirgreiðslu feng ið hjá okkur. Hér er það jafn vel búið að eyða starfsævi sinni, en getur ekki fengið að vera þó að það geti borgað fyrir sig. Aumt er nú ástand- ið. Leiðin er því að vinna og stjórn s.l. vetur, störf hans við skólans, en hann hefur nú tekið við öðru starfi. sofa þangað til við getum komizt suður. Gott barnagæzluheimili er nauðsyn því að hér þurfa allir að vinna. Annar hver maður er í skóla, því nóg er af þeim þó æskulýðsstarf- semi sé lítt uppbyggileg þar. Þetta og margt fleira vita allir Sjálfstæðismenn, sem vilja byggja upp bæinn með sóma og virðingu hver fyrir öðrum. Við höfum því ótal ástæður til að treysta Sjálfstæðis- flokknum bezt allra flokka fyrir málum almúgafólksins. Vona að ykkur finnist þetta ekki verri þvæla en bréfið hans Helga frænda til Gvend- ar frænda. Stöndum nú saman og sýn- um hvað í okkur býr, allir Isfirðingar. Kær kveðja. K.F.H. ALLAR ALMEIMNAR MYNDATÖKUR LJÓSMYNDASTOFAN Er.gjavegi 28 — ísafirði Sími 3 77 0 TIL SÖLU! Barnavagn og barnavagga Upplýsingar í síma 3107 Kassafiskur er á hærra verði, rýrnar minna og flokkast betur. Athuganir hafa sýnt, að fiskikassar eru hagkvæmasta fjárfesting sem völ er á í sjávarútveginum. Hafin er innlend framleiðsla úr nýju plastefni, ABS, sem er harðara, sterkara og léttara en áður hefur þekkzt. 90 I. kassar taka 45-50 kg af fiski. Uppskipun verður fljótari og léttari. Nýhannaðir kassar — handhægir, léttir og ótrúlega auðvelt að þrífa. AUKIÐ VERÐMÆTI AFLANS Leitið nánari upplýsinga. HúJpn R OUnAnwF PLASTIÐJAN BJARG AKUREYRI SÍMI (96) 12672 FISKIKASSAR Kjarabót fyrir sjómenn, hagsbót fyrir útgerðina

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.