Vesturland

Árgangur

Vesturland - 01.10.1971, Blaðsíða 5

Vesturland - 01.10.1971, Blaðsíða 5
ficfío a&xrFixzxxn aa&aFsa'æsisMxxn 5 Högni Þórðarson Kristján J. Jónsson Garðar Einarsson Ásgeir Ásgeirsson Guðmundur H. Ingólfsson Veitum þeim hreinan meirihluta KD Odýr raforka á Vestfjörðum Hlutabrét í Rskimjöl föl í erindi, sem bæjarstjórn ísafjarðar hefur borizt frá sýslunefnd Vestur-Barða- strandarsýslu varðandi raf- orkumál Vestfjarða og aukna eignaraðild og áhrif vest- firzkra sveitarfélaga að þeim málum, kemur fram, að í 2.8 megawatts viðbótar-orku- veri í Mjólká má vinna raf- orku, sem kostar aðeins 40 aura pr. kílówattstund. Áætlun um þessa virkjun gerðu Rafmagnsveitur ríkis- ins, og þessar tölur, sem koma fram í bréfi til Iðnað- arráðuneytisins dags. 5. maí 1971, eru hafðar til saman- burðar við orkukostnað Suð- ur-Fossárvirkjunar á Rauða- sandi er sýslunefnd Vestur- Barðastrandarsýslu lét gera frumáætlun um fyrir um einu ári. Eitt af fyrstu verkum hinn- ar nýju bæjarstjórnar ísa- fjarðar verður að taka af- stöðu til raforkumálanna. Úr vestfirzkum fallvötnum er hægt að vinna raforku það ódýra, að hún er samkeppn- isfær við Sigöldu-stórvirkjun- arverð skv. áðurnefndum út- reikningum Rafmagnsveitna ríkisins, þó að virkjunin sé ekki stærri en 1/54 hluti af stærð Sigölduvirkjunar (Sig- ölduvirkjun 150 megawött, 38 aurar kwst., Mjólká II 2.8 megawött, 40 aurar pr. kwst.). Fyrir síðustu alþingiskosn- ingar birtist hér í blaðinu til- laga um fullnýtingu fallvatna á Mjólkár-Dynjandissvæðinu. Var þá gert ráð fyrir, að vinna mætti raforku allt að 200 milljónum kwst í orku- verum, sem væru samtals um 30 MW að stærð. Það fer ekki á milli mála, að skv. orkulögum hafa hér- uðin sjálf forgangsréttinn til að reka sínar eigin rafveitur, og eigendur orkuvera og flutningsvirkja verða þeir aðilar, sem fá að skrifa nöfn sín undir lántökurnar, þegar mannvirkin eru byggð, en neytendurnir borga síðan brúsann. Er ekki tími til kominn fyrir okkur Vestfirðinga að gera hér breytingu. Þegar svona hagkvæm fyrirtæki eru á ferðinni eins og fyrrnefndir útreikningar sýna, verður ó- verjandi annað en að Vest- firðingar gerist að minnsta kosti meðeigendur að, og að þeir taki sjálfir við stjórn þessara fyrirtækja og nýti hin hagkvæmu vestfirzku fallvötn fyrst og fremst fyrir Vestfirðinga. En hver er stefna Aage Steinssonar í raforkumálum Vestfjarða? Allir vita hvaða stefnu hann hefur og að hverju hann muni vinna í raforkumálum ísfirðinga ef hann kemst inn í bæjarstjórn. Hún er sú, að afhenda Raf- magnsveitum ríkisins Raf- veitu ísafjarðar og Eyrar- hrepps til fullrar eignar og umráða og gera ísfirðinga þar með áhrifalausa í þýð- ingarmiklu máli. En hvað vill Aage svo meira? Styður hann tillögu Fimm eigendur hlutabréfa í Fiskimjöl hf. á Isafirði hafa boðið bæjarsjóði að kaupa hlutabréf þeirra, sem eru sam tals 71 á 35-földu nafnverði, sem er kr. 1000,00. Telja eigendurnir æskilegt, að samn ingaviðræður um greiðslukjör og afhendingartíma geti far- ið fram innan eins mánaðar. Hér er um að ræða lóð, fasteignir og vélar fiskimjöls- verksmiðjunnar á Torfnesi, en bæjarsjóður er sjálfur eig- andi að um helmingi hluta- BERIÐ SAMAN BÆKUR YKKAR Fyrst talaði Guðmundur Sveinsson eins og nátttröll í heilbrigðismálum, og vildi tengja saman sjúkrahúsið og elliheimilið. Hann var ekki fyrr búinn að sleppa orðinu, en til máls tók Guðrún Eyþórsdóttir og lýsti yfir því, að ekki kæmi til mála að endurbyggja sjúkrahúsið, og Vestfjarðaþingmanna, í raf- orkumálum, sem flutt var á síðasta Alþingi að frumkvæði Matthíasar Bjarnasonar, og samþykkt þar einróma? Eða vill hann línu Magnúsar aust- an frá Sigöldu, eða er hann kannske á línunni, sem nær ennþá lengra austur; austur til olíulindanna í Kákasus í Rússlandi? Eða er hann eins og flugvallarpoki á stöng, sem snýst eins og þeir blása í hann þarna fyrir sunnan? Það er lang sennilegast. fjárins. í tilboði þessu eru innifalin nær öll hlutabréf, sem bærinn á ekki sjálfur. Af þessu 71 bréfi á Kaupfé- lag ísfirðinga 29 bréf, Sam- vinnufélag ísfirðinga 13, Njörður hf. 15, Muninn hf. 9 og Ólafur Guðmundsson 5. Heildarkaupverð þessara hlutabréfa, sem nú eru boðin föl á 35-földu nafnverði yrði samanlagt 2 millj. 485 þús. kr. Var lögfræðingi bæjarins falið að ræða við eigendur bréfanna. þar með auðvitað ekki heldur að tengja elliheimili við sjúkrahús, sem ekki verður endurbyggt. Væri ekki ráðlegt fyrir ræðumenn Framsóknar að bera saman bækur sínar um svona mál áður en þeir tala. VANTRAUST Á RÍKISSTJÓRNIN A Guðmundur Gíslason sagði í ræðu sinni, að hann liti á það sem vantraust á ríkis- stjórnina, ef Alþýðubanda- lagið fengi ekki mann kjör- inn. Við Sjálfstæðismenn greiðum atkvæði með þessari vantrauststillögu Guðmundar á sunnudag, og vitum að hún hefur nú þegar verið sam- þykkt. Kosninoaskrifstofa Á kjördag verður kosningaskrifstofa D-listans á Uppsölum, miðhæð. Upplýsingasími skrifstofunnar verður 3920 Bílasími á kjördag verður 3921 Stuðningsmenn D-listans eru vinsamlegast beðnir að veita skrifstofunni allar upplýsingar, sem kosningarnar varða. Stuðningsmenn D-listans eru vinsamlegast beðnir að fara snemma á kjörstað og kjósa. Það auð- veldar allt starf við kosninguna. KAFFI Á kosningadaginn ætlar Sjálfstæðiskvennafélagið að hafa kaffiveitingar á Uppsölum að venju. Vilja konurnar hvetja allt stuðningsfólk D- list- ans til að drekka kaffi á Uppsölum á kosninga- daginn. Opið frá kl. 2 e.h. Staksteínar

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.