Vesturland - 01.10.1971, Blaðsíða 1
Ávarp til
Góðir samborgarar
Merk tímamót eru á næsta leiti. Á simnudaginn
kemur sameinast ísafjörður og Eyrarhreppur
eftir 105 ára aðskilnað í eitt sveitarfélag, nýjan
og öflugri ísafjarðarkaupstað.
Það er einlæg von okkar allra, að sameiningin
verði til heilla og hið nýja bæjarfélag verði sterk-
ari og áhrifameiri félagsheild jafnt innávið sem
útávið.
Á þessum tímamótum fara fram mjög mikil-
vægar kosningar, sem ráða örlögum um fram-
tíð og velferð hins nýja bæjarfélags.
Þeir, sem þá veljast til forystu, munu móta
framþróun og bæjarmálastefnu sveitarfélagsins
fyrstu árin. Skiptir verulega miklu, að þetta
vandasama verk verði vel af hendi leyst.
Vinstriflokkarnir þrír, sem með völdin fóru,
gáfust hreinlega upp í samstarfinu vegna inn-
byrðis sundurlyndis og glundroða, og brugðust
þannig þeim skyldum, sem kjósendur höfðu lagt
þeim á herðar með því að skapa þeim aðstöðu til
að mynda meirihlutastjórn.
Nú bjóða fjórir flokkar fram, sem allir kalla
sig vinstriflokka. Þeir gerðu ítrekaðar tilraunir
áður en framboðsfrestur rann út til þess að ná
zm BRETTUH TIL - SKIPTDM DM FORVSTD
kjósenda
samkomulagi um sameiginlegt framboð, en ekk-
ert gekk.
Síðan hafa þeir haldið uppi látlausu málþófi
um þessar misheppnuðu sameiningartilraunir og
borið svik og lævi hver á annan.
Kjósendur góðir!
Teljið þið líklegt, að þessir fjórir flokkar séu
færir um að mynda sterkan og samhentan meiri-
hluta að kosningum loknum ef þeir fengju að-
stöðu til þess?
Eru horfur á því, að þeir taki fjármál bæjar-
ins föstum tökum eða leysi fremur nú en endra-
nær, þau vandasömu verkefni, sem úrlausnar
bíða?
Þeir kjósendur, sem hugsa fyrst og fremst um
hag og velferð síns bæjarfélags gera sér ljóst,
að stefnubreytingar er þörf.
Eina leiðin til þess að knýja fram breytta
stefnu í bæjarmálum er að velja samhenta og
ábyrga forystu.
Kjósendur eiga um það að velja, hvort þeir
vilja áfram sundrungu og glundroða hins höfuð-
lausa hers, eða ábyrga og samvirka forystu Sjálf-
stæðismanna.
Sameinumst öll um að kjósa X - D
Frambj óðendur Sj álfstæðisflokksins.