Vesturland - 16.06.1974, Síða 6
6
Ólafur Kristjánsson, Bolungarvík:
„Til þess eru vftin að
varast þau"
Eitt af síðustu orðum Jóns
skólameistara Hannibalssonar
í flokkakynningu 12. júní s.l.
„Til þess eru vítin að varast
þau“, vöktu óskipta athygli
áheyrenda. Hér hefur gott og
gamalt orðatiltæki snúist í
höndum meistarans og orðið
þeim, sem forðast vilja vinstri
villu, vegvísir að nýrri Við-
reisn.
Stuðningsmenn F-listans
halda því nú mjög á lofti, að
vilji menn vekja upp annan
vinstri draug eða blása lífi í
efnahagsiegt hrun vinstri
stjórnar verði að kjósa F-
listann. Með því sé bezt
tryggt, að ný vinstri stjórn
rísi úr braki og brostnum
vonurri ríkisstjórnar Ólafs
Jóhannessonar. Bent er á,
og því lofað, að sú hin nýja
stjórn verði víðsýnni, betri
traustari og ábyrgðarmeiri en
hin gamla. Ekki veitir nú af
að taka slikt fram. Byggja
skal upp að nýju með sömu
höndum, -— sama efnivið, —
sömu meisturum, — sem sé,
sama hrákasmíðin og áður.
En hvað réttlætir kröfuna
hjá þessum mönnum um nýja
vinstri stjórn? Batnandi sam-
búð Framsóknar og Alþýðu-
bandalags? Innreið Björns
Jónssonar í Alþýðuflokkinn?
Brotthlaup gömlu kempunnar
í Selárdal? Eða er það við-
skilnaður Karvels við Magnús
Torfa, sem nú einna helzt
minnir á brotna myndastyttu
sem límd hefur verið saman.
Ekki traustvekjandi né eigu-
legur gripur það. Er ekki
hætta á, að bresti í brotum
við fyrstu átök. Nei, sann-
leikurinn er sá, að ríkjandi er
meiri óánægja og almenn
þreyta í röðum almennings nú
eftir aðeins þriggja ára
vinstri stjórn, en var eftir 12
ára samfelda Viðreisnarstjórn.
F-listamenn slá mjög á þá
strengi, að á þeirra fram-
boðslista séu eingöngu heima-
menn. Þetta er aðalkosninga-
vopnið, svo ekki er nú risið
hátt. Jú, svo hafa þeir á síð-
ustu stundu fundið það upp,
að allt tal um vinstri sundr-
ung cg glundroða sé mark-
laust hja-1 eitt. „Sjáið, það eru
aðeins 5 flokkar í framboði“
— og sagt er með miklum
feginleik; „alveg eins og síð-
ast“.
Það er hægt að setja upp
svört blekkingargleraugu, en
að ætlast til að aðrir geri
slíkt hið sama, er einum um
of.
Vissulega skal ég játa, að
við Vestfirðingar eigum
marga mæta og ágæta menn
í röðum allra stjómmála-
flokka, sem hæfir er til setu
i sölum Alþingis. Menn, sem
starfað hafa og alizt upp með
sínum umbjóðendum, byggt
upp athafnalíf í hinum ein-
stöku og dreifðu byggðum
Vestfjarða eiga vissulega rétt
á að þeirra rödd hljómi
kröftuglega í ræðustól Al-
þingis.
Ég er hér ekki að óska
eftir aukinni hreppapólitík.
Ekki heldur að óska þess að
þingmenn þjóni aðeins hluta
síns kjördæmis, heldur óska
ég þess, að þingmenn þjóni
öllu sinu kjördæmi og sýni
um leið þá víðsýni í þjóðmál-
um, að þeir séu þingmenn
allrar þjóðarinnar. Lítil þjóð
þarf sameinuð að standa.
Spurningin er því ekki um
það hvort við eigum að kjósa
heimamenn — hversu svo nú
ágætir sem þeir kunna að
vera — heldur er spurningin
þessi: VILJA MENN NÝJA
VINSTRI STJÓRN?
Andstæðingar nýrrar vinstri
stjórnar hljóta því að gera
orð Jóns skólameistara Hanni-
balssonar „Til þess eru vítin
að varast þau“,að sínum orð-
í MAl kom til landsins Fokk-
er Friendship skrúfuþota sem
Flugfélag íslands hefir fest
kaup á og sem hefur nú bætst
í innanlandsflugflotann. Kaup-
in voru gerð með milligöngu
norsks fjárfestingarfyrirtækis
og með ábyrgð Plugleiða hf.
Flugvélin er af sömu gerð
og tvær fyrri Friendship
skrúfuþotur félagsins, „Blik-
faxi” og „Snarfaxi” að öðru
leyti en því, að á þessari ný-
fengnu flugvél eru stórar
vörudyr, sem auðvelda vöru-
flutninga og gera reyndar
mögulegt að flytja stór
Úrslita frá Vestfjarðakjör-
dæmi verður beðið með eftir-
væntingu. Allir sannir and-
stæðingar glundroða nýrrar
vinstri stjórnar eiga því að-
eins um eitt að velja. Kjósa
Sjálfstæðisflokkinn við kosn-
ingarnar hinn 30. júní n.k.
stykki. Þessi Friendship
skrúfuþota, sem keypt var af
fyrirtæki í Þýzkalandi ber
einkennisstafina TF-FIP.
Kaupverð var um 55 milljónir
króna. Henni var flogið frá
Dusseldorf með viðkomu í
Glasgow. Flugstjóri var Ól-
afur Indriðason, flugmaður
PáM Stefánsson og vélamaður
Henning Finnbogason.
Þessi nýja skrúfuþota er
sú fimmta í innanlandsflug-
flota Flugfélags íslands.
Á komandi hausti mun flug-
véMn verða máluð í litum
félagsins.
Tllkynning
um aðstöðugjald í Vestfjarðaumdæmi.
Eftirtalin sveitarfélög hafa tilkynnt um álagningu
aðstöðugjalds í Vestfjarðaumdæmi 1974, skv. 5.
kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga:
ísafjarðarkaupstaður — Gufudalshreppur — Flat-
eyjarhreppur — Barðastrandarhreppur — Rauða-
sandshreppur — Patrekshreppur — Tálknafjarðar-
hreppur — Suðurfjarðahreppur — Auðkúluhreppur
Þingeyrarhreppur — Mýrahreppur — Flateyrar-
hreppur — Suðureyrarhreppur — Hólshreppur
Súðavíkurhreppur — Nauteyrarhreppur — Snæ-
fjallahreppur — Árneshreppur — Kaldrananes-
hreppur — Hrófbergshreppur — Hólmavíkurhrepp-
ur — Fellshreppur og Bæjarhreppur.
Gjaldstigar liggja frammi á skrifstofu minni og
hjá viðkomandi sveitarstjórn.
Skv. greindum lögum þurfa þeir, sem hafa atvinnu-
rekstur í nefndum sveitarfélögum, en heimilisfesti
annars staðar að skila sérstöku framtali til að-
stöðugjalds. Þeir, sem reka margþætta starfsemi
þurfa að senda greinargerð um hvað af útgjöld-
unum tilheyri einstökum gjaldaflokkum.
Áðurnefnd gögn þurfa að berast sem fyrst, ella
má búast við, að áætlun verði beitt á aðstöðu-
gjaldið eða skiptingu í gjaldflokka.
ísafirði, 29. apríl 1974,
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi.
SÍMASKRÁIN
er komin.
Afhent á skrifstofunni kl. 13—16.
PÓSTUR og SÍMI, ísafirði
fsafjarðarkaupstaður
Skrifstciustúlka óskast
Bæjarsjóður ísafjarðar óskar eftir að ráða skrif-
stofustúlku til afleysinga í sumar. Nánari upplýs-
ingar veitir bæjarritari, sími 3722.
BÆJARSJÓÐUR ÍSAFJARÐAR.
Arður til hluthafa
Á aðalfundi H.f. Eimskipafélags íslands 30. maí
1974 var samþykkt að greiða 10% — tíu af hundr-
aði — í arð til hluthafa fyrir árið 1973.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.
Afgreiðslan ísafirði.
Gólfapússning
Steypi og vélpússa gólf
og plön.
SÆMUNDUR JÓHANNSSON
múrarameistari
Flateyri — Sími 7704
Ólafur Kristjánsson.
Ný skrúfnþotn F.I.
X D Aldrei framar vinstri stjórn X D