Vesturland - 06.05.1978, Page 4
4
UNDIR MERKI 8JÁLFSTÆÐISMANNA
Þaö þarf sennilega ekkert aö kynna Hermann
Skúlason fyrir lesendum Vesturlands. Þetta er að
veröa eins og í gamla daga þegar skipstjórar sem
fiska veröa landsfrægir-. Frægö skipstjóra á hverj-
um tíma fer eftir mikilvægi þeirrar fiskveiðigreinar,
sem þeir stunda. Meöan allt snerist um síldveiö-
arnar voru aflasælir síldveiðiskipstjórar á allra
vörum.
Hermann Skúlason og skipshöfn hans (ekki
fiska þeir nú einir, skipstjórarnir) - hafa oft gert
rispur, sem vakiö hafa athygli þeirra sem fylgjast
meö aflabrögðum og er þess skemmst aö minn-
ast, að Júlíus Geirmundsson komst í öll blöö
þegar hann veiddi um 900 tonn í júnímánuði í fyrra
sumar.
Hermann Skúlasón er fæddur í Hnífsdal 24. 3.
1943, byrjaði ungur sjómennsku og lauk Meira-
fiskimannsprófinu 1964. Hann er Heimabæarmað-
ur í aöra ættina en Ögurnesingur í hina. Kona
hans er Sólveig Gísladóttir útgeröamanns Berg-
sveinssonar á Noröfiröi. Þau hjón eiga 4 börn.
Vesturland átti langt viötal viö Hermann, en þaó
snerist skiljanlega mest um fiskveiðar en ekki
bæjarstjórnarmál. Ritstjóranum þykir svo vænt um
þetta fróðlega og faglega viötal, aö hann tímir ekki
aö ,,spandera“ því í blaöiö meðan þaö er alfarið
helgaö bæjarmálum.
Nú erum viö að hugsa um vöggustofur- dagvist-
unarheimili, leikskóla, elliheimili, íþróttavelli, orku-
mál, umhverfismál, húsnæöismál og gatnamál og
hafnarmál og þar komum viö á vettvang Her-
manns og hann sagði:
„Það liggur í hlutarins
eðli, að af þeim málaflokk-
um, sem þú hefur nefnt, og
allt eru nauðsynjamál í nú
tíma þjóðfélögum, þá stend-
ur mér næst að fjalla eitt-
hvað um hafnarmálin og
aðstöðu við höfnina fyrir
skipin.
Þá er fyrst að nefna, að
það þyrfti að auka viðlegu-
plássið í höfninni. Þar ligg-
ur beinast við í bili, að
lengja bryggjukantinn á tang-
anum á móts við múlann,
sem myndar bátahöfnina
gömlu. í Sundahöfninni vant-
ar aukið löndunarpláss og
skipanna, eins og víðast er í
höfnum...
Þú veizt, að það er kominn
fram listi til bæjarstjórnarkosn-
inganna, sem hefur salerni við
höfnina, sem aðalstefnumálið
?
-Já, ég sá það i Vestfirzku
fréttablaði, að Sturla hafna-
vörður hefur þetta á oddin-
um í málefnabaráttu sins
lista. Þetta er þörf fram-
kvæmd, en ég hugsa nú að
þetta mál hefði nú fengist
tekið upp af hinum flokkun-
Hafnarmannvirki
Ekki skrúðgarða
fleiri löndunarkrana. Hin
langa bið, sem stundum er
hjá bátunum, þegar al-
mennt er róið, er löngu orð-
in óviðunandi. Svo vantar
tilfinnanlega landtengi
þannig að hægt væri að
tengja rafkerfi skipanna við
land, og ekki þyrfti þá að
keyra ljósvélar allan tím-
ann, sem þau eru við
bryggju.
Síma vantar á hafnargarð-
inn og verzlun með varning
fyrir sjómenn, svo að þeir
þurfi ekki að hlaupa uppí
sveit eftir vettlingum eða
tóbaki. Það mætti einnig
koma lítil veitingastofa í
grennd við athafnasvæði
um í sambandi við hrein-
lætismálin yfirleitt, og ekki
hefði þurft að stofna til sér-
staks framboðs því til fram-
dráttar.
Hvað viltu segja um skipu-
lagið við höfnina almennt ?
-Ég held, að við ættum
ekki að lenda í sömu villu
og Akureyringarnir, að taka
strandlengjuna við þessa líf-
höfn -Pollinn- undir bygg-
ingar, sem engin nauðsyn er
að standi við sjó eða á hafn-
arbökkum. Svo verður síðar
að byggja brimvarnargarð,
sem sé annan tanga útúr
náttúrulega tanganum,
vegna þess að við Pollinn
vantar rými fyrir vöru-
skemmur og fiskmóttökuhús
eða skipasmíðastöðvar og
alla aðstöðu fyrir fiskiskip
og vöruflutningaskip. Menn
sjá oft ekki nægjanlega fyrir
þróunina, einkum ef bæir
vaxa ört, og bezta hafnar-
plássið oft tekið undir al-
mennar byggingar. Ég gæti
trúað, að okkur hér á ísa-
firði, veitti ekki af í framtíð-
inni að nýta strandlengjuna
að austan og norðan við
Pollinn fyrir viðlegupláss og
þjónustu mannvirki fyrir
skipin. Ég vil bryggjur en
ekki skrúðgarða við Pollinn,
og ég er andvígur hótel-
byggingum eða sjúkrahúss-
byggingum á sjávarbakkan-
um. Það gæti hafa verið
eðlilegra að byggja þurrkví
en menntaskóia og
sjúkrahús í fjörunni að vest-
an við Pollinn. Skipulags-
mál hafnarinnar held ég að
ættu að endurskoðast með
tilliti til langrar framtíð-
ar...
Þegar hér var komið við-
talinu, þurfti Hermann að
halda til skips. Hann var að
fara útí túr og Vesturland
óskar honum góðrar veiði.
ÆSKA - ELLI
- UMHVERFI
— viötal viö Sigurð Pálmar
Þórðarson
Sigurður er fæddur í Ön-
undarfirði 12. júní 1950,
fluttist ungur suður og
lærði rafvirkjun og er raf-
virkjameistari. Hann flutt-
ist til ísafjarðar fyrir tæp-
um 6 árum og réðist til
rafverktaka fyrirtækisins
Pólsins h.f., fyrst sem raf-
virki en síðústu árin verzl-
unarstjóri. Sigurður hefur
verið virkur í starfsemi
ungra Sjálfstæðismanna
en býður sig nú
fram í fyrsta skipti til bæj-
arstjórnar í ísafjarðarkaup-
stað. Erna kona Sigurðar
er Sigurðardóttir, Gísla-
sonar Sigurðssonar, sím-
stöðvarstjóra í Bolungavík
fjölda ára. Mikill sóma-
maður Gísli. Þau hjón eiga
tvö börn.
Vesturland hitti Sigurð
að máli og spurði hann,
eins og aðra unga menn,
sem eru að gefa kost á sér í
fyrsta skipti til bæjar-
stjórnarstarfa, hvaða erindi
hann teldi sig eiga í bæjar-
stjórn.
-Ég kem náttúrulega ekki til
með að sitja í bæjarstjórn á
næsta kjörtímabili, ég er það
neðanlega á lista Sjálfstæðis-
manna, en ég get lagt málun-
um lið með ýmsum hætti, eins
og aðrir á lista okkar, til dæmis
átt sæti f nefndum, sem fjalla
um mál sem mér eru kunnug.
Helztu áhugaefni mín f bæj-
armálum eru umhverfismál,
málefni æskulýðs- og aldraða
og iðnaðarmála.
I sambandi við UMHVERFIS-
MÁLIN má segja með almenn-
um orðum að brýnast sé að
fegra bæinn og umhverfi
hans. Isafjörður má ekki vegna
vanhirðu koðna undir nafni,
sem höfuðstaður Vestfjarða.
Með þessum orðum er ég ekki
að ásaka fráfarandi bæjar-
stjórn, hún hefur haft ærið að
starfa, verkefnin mörg og að-
kallandi, og eitthvað hefur því
orðið að sitja á hakanum. Það
er aldrei hægt að vinna allt í
einu og á heldur ekki að reyna
það, heldur raða niður fyrir sér
verkefnum eftir nauðsyn þeirra
hverju sinni.
Ég vil leggja áherslu
á það, að bæjaryfirvöld
láti vinna að uppgræðslu
svæða, sem eru í eigu eða
vörzlu bæjarins og beiti sér
fyrir þvf að einstaklingum se
gert að SKYLDU að hirða vel
lóðir sínar.
Það er staðreynd víða í bæj-
um, að of margir einstaklingar
láta hirðingu lóða sinna undir
höfuð leggjast, nema það sé
gert að kvöð af hálfu bæjaryfir-
valda. Ætlunin mun að ráða
garðyrkju ráðunaut bæjarins
og er fullnaðsyn á þvf.
Aðstaða til ÆSKULÝÐS-
STARFSEMi er ekki fullnægj-
andi. Einkum á það við um
ýmiskonar fþróttastarfsemi.
Það er margt, sem
drepa mætti á. Það er til dæm-
is tiivalið hér að reka siglinga-
klúbb líkan þeim, sem er í
Nauthólsvíkinni syðra. Til
þeirra starfsemi þarf hentuga
litla bryggju til að renna bátun-
um fram og einnig húsnæði til
geymslu. Það ætti ekki að vera
vandræði að finna slíkri klúbb-
starfsemi stað hér við lognkyrr-
an Pollinn. Siglingar eru ein
vinsælasta fþróttin víða með
æskufólki, en lítið verið hlúð
að henni hérlendis. f sambandi
við æskulýðsmálin ber að
fagna því«fyrirhugað er að
ráða sérstakan æskulýðs- eða
íþróttafulltrúa.
Ekki megum við heldur
gleyma ELLINNI. Aldraða fólk-
ið, sem lagði grunninn að því
þjóðfélagi, sem við búum f á
ekki sfður skilið aðstoð okkar,
sem erum í fullu fjöri og starfi.
Þótt ég sé engan veginn á-
nægður með þann stað, sem
elliheimilinu hefur verið vallnn,
tel ég að hraða beri fram-
kvæmdum við elliheimilið svo
sem kostur er, og nú þegar
þessar Ifnur eru ritaðar, má
segja, að það verk sé f fullum
gangi og ber að þakka fráfar-
andi bæjarstjórn þær fram-
kvæmdir.
IÐNAÐARMÁLEFNI hafa
heldur dregist aftur úr í þess-
um bæ, eins og öðrum, sem
byggja mest á sjávarútvegi,
nema þeim iðnaði, sem veitir
honum þjónustu, enda var
hans brýnust þörfin. En um
margs konar annan iðnað get-
ur verið að ræða, sem gæti nýtt
starfskrafta marga, sem ekkl
eru færir um erfiðustu störfln í
fiskveiðum, fiskvinnslu og
þjónustu iðnaðinum fyrir þess-
ar greinar. Ýmiskonar léttur
iðnaður er það sem mörg bæj-
arfélög leggja mikla áherzlu á
fyrir þá, sem eru orðnir ófærir
til erfiðustu starfanna, í því
sar.ibandi má nefna ýmsan
plastiðnað. Að hálfu bæjarlns
er margt einnig hægt að gera
til að bæta aðstöðu þeirra iðn-
fyrirtækja, sem hér eru starf-
andi.
Þar sem ég er 15. maður á
listanum og hef engar Ifkur fyr-
ir kjöri, finnst mér ég ekki sér-
staklega kallaður til að ræða
ýtarlega f blaðinu bæjarmál-
efnin og slæ því botnin í viðtal-
ið með ósk um MIKINN SIGUR
lista Sjálfstæðismanna.