Uppeldi og menntun - 01.07.2009, Qupperneq 81

Uppeldi og menntun - 01.07.2009, Qupperneq 81
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(2)/2009 81 le iðbe in ingar Leiðbeiningar fyrir greinahöfunda Tímaritið Uppeldi og menntun kemur út tvisvar á ári. Greinar sem eiga að koma til birt- ingar í vorhefti tímaritsins þurfa að berast ritstjóra á tölvutæku formi fyrir 1. október og greinar til birtingar í haustheftinu fyrir 1. maí – en æskilegt er að greinar berist þegar þær eru tilbúnar af hálfu höfunda en ekki sé beðið eftir þessum dagsetningum. Ritnefnd tekur afstöðu til þess hvort grein fæst birt í tímaritinu. Við ákvörðun um birtingu greina er í fyrsta lagi tekið mið af þeirri stefnu að um sé að ræða fræðilegar og/eða rannsóknartengdar greinar, í öðru lagi að þær eigi erindi til þeirra sem sinna uppeldis- og menntamálum og í þriðja lagi verður gætt að heildarsvip tímaritsins hverju sinni. Meginreglan er sú að innsendar greinar hafi ekki birst annars staðar. Undantekn- ing er gerð frá þessari reglu ef ritnefnd telur greinar sem birst hafa í viðurkenndum erlendum fagtímaritum eftirsóknarverðar til birtingar á íslensku. Erlendum fræði- mönnum er heimilt að birta efni í tímaritinu á ensku. Fyrsti höfundur greinar er jafn- framt ábyrgðarmaður og tengiliður við ritstjóra. Nöfn höfunda eru birt í sömu röð og tilgreint er í handriti. Tilgreina skal sérstaklega hver er fyrsti höfundur. Ef ritnefnd metur greinina svo að hún eigi erindi í tímaritið og uppfylli kröfur um efni og framsetningu er hún send til a.m.k. tveggja fræðimanna til ritrýningar. Grein sem samþykkt er með fyrirvara um að brugðist sé við faglegum ábendingum er send til greinarhöfundar til lagfæringar í samræmi við ábendingar ritrýna og ritnefndar. Höfundur sendir greinina síðan aftur til ritnefndar með greinargerð um þær breyt- ingar sem hann hefur gert á greininni. Framsetning efnis Miðað er við að framsetning efnis sé í samræmi við venjur sem gilda í virtum erlend- um tímaritum um uppeldis- og menntamál. Miðað er við APA-kerfið við framsetn- ingu efnis, þetta á m.a. við um gerð heimildaskrár, tilvísanir í texta, töflur og myndir, kaflafyrirsagnir og lengd beinna tilvitnana. Neðanmálsgreinar verða ekki birtar, en ef þörf krefur er heimilt að hafa aftanmálsgreinar, í lágmarki þó. Reglur um framsetn- ingu má finna t.d. í Gagnfræðakveri handa háskólanemum 4 . útgáfu (2007) eftir Friðrik H. Jónsson og Sigurð J. Grétarsson og Publication Manual of the American Psychological Association, nýjustu útgáfu. Vitna skal til skírnar- og föðurnafns íslensks höfundar en ekki föðurnafns eingöngu eins og gildir um erlenda höfunda. Jafnframt skal raða íslenskum höfundum í heimildaskrá samkvæmt skírnarnafni þeirra. Ætlast er til að beinar tilvitnanir úr erlendum tungumálum séu þýddar á íslensku. Tekið skal fram að um þýðingu höfundar sé að ræða, nema annar hafi þýtt. Mikilvæg atriði varðandi skil handrita: Lengd handrita skal að jafnaði vera 15–25 blaðsíður. • Handrit skulu vera með 12 pt. letri (Times New Roman) og línubili 1,5. • Einfalt orðabil skal vera á eftir punkti.•
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.