Búnaðarrit - 01.01.1987, Page 87
SKYRSLUR STARFSMANNA
69
munu flestir átta sig á því að breytinga var þörf, en þessu
þarf að fylgja eftir með enn frekari breytingum, þannig að
framleiðendur úrvalskjöts njóti betur verka sinna en áður.
Hrúta- og afkvæmasýningar. Aðalsýningar á sauðfé skv.
búfjárræktarlögum voru nú haldnar í Borgarfjarðar- og
Mýrasýslu, Húnavatnssýslum, Skagafirði og á svæði Bún-
aðarsambands Eyjafjarðar. Afkvæmasýningar voru jafn-
framt á Snæfellsnesi, í Dalasýslu og á Vestfjörðum.
í Borgarfirði dæmdu auk mín Jón Viðar Jónmundsson,
Ólafur G. Vagnsson, Egill Bjarnason og Sigurjón Bláfeld.
Jón Viðar dæmdi enn fremur í Vestur-Húnavatnssýslu og
afkvæmahópa á Ströndum og Einar E. Gíslason í Austur-
Húnavatnssýslu, en ég var dómari í Skagafirði og Eyjafirði
og dæmdi einnig afkvæmahópa á Snæfellsnesi. Norðan-
lands eru víða lagðar hömlur gegn sameiginlegum sýningum
vegna smithættu og voru því í mörgum hreppum skoðaðir
hrútar heima á bæjunum, en það gerir sýningarstarfið mun
tafsamara, auk þess sem það dregur úr áhuga manna til
þátttöku.
Afkvæmarannsóknir fóru fram í Borgarfirði, á Snæfells-
nesi og á Ströndum, í Eyjafirði, Vestur-Skaftafellssýslu,
Rangárvalla- og Árnessýslu. Að mestu leyti var um að ræða
sömu bæi og áður, en þó bættust nokkrir við. Auk mín
önnuðust kjötmælingar þeir Jón Viðar Jónmundsson, Stef-
án Scheving Thorsteinsson og Þórður Sigurjónsson. í
viðbót við þessar fastmótuðu afkvæmarannsóknir lét Bún-
aðarfélagið framkvæma fitumælingar á flestum lömbum frá
nokkrum bæjum, sem vorur valdir með tilliti til þess, að
þangað hafa verið sóttir allmargir sæðingarhrútar á undan-
förnum árum. Var þetta gert til að bera saman fitusöfn-
unareiginleika fjárins, leita að einstaklingum, sem gefa vel
gerð en fitulítil föll, og safna gögnum um erfðabreytileika
með tilliti til fitusöfnunar.