Búnaðarrit - 01.01.1987, Page 198
180
BÚNAÐARRIT
geta þess sérstaklega, að það er þýðingarmikið og ánægju-
legt, að það er og hefur verið góð samvinna á milli
Stéttarsambands bænda og Búnaðarfélags íslands. Sam-
vinna þessi hefur leyst mörg vandamál landbúnaðarins.
Þótt verkefni þessara félaga séu annars ólík, þá starfa þau
bæði fyrir bændurna — landbúnaðinn — og geta stutt
hvort annað á fjölmörgum sviðum. Ég þakka Stéttarsam-
bandinu góða samvinnu og óska því góðs gengis.
Síðar í dag gerir búnaðarmálastjóri grein fyrir störfum
Búnaðarfélags íslands á s.l. ári svo ég ræði þau ekki neitt.
Eg óska Búnaðarfélagi íslands og öllum, er að því
standa, til hamingju með afmælisárið. Það er líka trú mín og
von, að félagið lengi lifi.
Að lokum þakka ég meðstjórnendum mínum,
búnaðarmálastjóra, ráðunautum og öðru starfsfólki Búnað-
arfélags Islands gott samstarf og vel unnin störf.
Ég þakka ykkur öllum fyrir komuna. Það er mér mikil
ánægja að sjá hér ráðherra, forseta Alþingis, alþingismenn,
fulltrúa frá Stéttarsambandi bænda, Kvenfélagasambandi
Islands og fjölda marga aðra áhugamenn í landbúnaði. Það
er gleðilegt á þessum tímum að finna það, hve margir hafa
hug á að fylgjast með Búnaðarþingi og störfum Búnaðarfé-
lags íslands.
Að síðustu leyfi ég mér að þakka forseta íslands, Vigdísi
Finnbogadóttur, fyrir komuna og þann heiður og velvild,
sem forsetinn hefur jafnan sýnt Búnaðarfélagi íslands,
Búnaðarþingi og bændastéttinni. Það er bændum þessa
lands mikils virði í þeim andblæstri, sem þeir hafa mætt, að
njóta þess siðferðiiega stuðnings, sem forseti þjóðarinnar
hefur veitt þeim við margháttuð tækifæri. Innilegar þakkir.
Ég þakka ykkur öllum komuna og óska ykkur góðs
gengis.
Sextugasta og níunda Búnaðarþing er sett.“